Innviðaráðherra staðfestir ekki aðalskipulagsbreytingar vegna vindorkuvera

Ráðherra hefur hafnað aðal­skipu­lags­breyt­ingum vegna þriggja vind­orku­vera í Reyk­hóla­hreppi og Dala­byggð. Skipu­lags­stofnun hafði ítrekað bent sveit­ar­fé­lög­unum á atriði sem þyrfti að bæta úr.

Þrjú vind­orku­ver í Reyk­hóla­hreppi og Dala­byggð verða ekki færð inn á aðal­skipu­lag þar sem inn­við­a­ráð­herra hefur ákveðiðað synja stað­fest­ingu skipu­lags­breyt­inga þar um.

Sveit­ar­stjórnir Reyk­hóla­hrepps og Dala­byggðar sam­þykktu á síð­asta ári breyt­ingar á aðal­skipu­lagi vegna vind­orku­vera; í landi Garps­dals, Hróð­nýj­ar­staða og Sólheima. Um er að ræða stefnu um iðn­að­ar­svæði þarf sem áformað er að reisa vind­myllur til raf­orku­fram­leiðslu með allt að 89 MW upp­settu afli í landi Garps­dals, 130 MW í landi Hróð­nýj­ar­staða og 150 MW í landi Sólheima. Skipu­lags­stofnun hafði við vinnslu og afgreiðslu skipu­lags­til­lagn­anna ítrekað bent sveit­ar­fé­lög­unum á til­tekin atriði sem bæta þyrfti úr, til að unnt væri að stað­festa aðal­skipu­lags­breyt­ing­arnar, sem sveit­ar­fé­lögin féllust ekki á.

Í vís­aði Skipu­lags­stofnun afgreiðslu aðal­skipu­lags­breyt­ing­anna til inn­við­a­ráð­herra til ákvörð­unar um stað­fest­ingu, en stofn­unin taldi að synja bæri stað­fest­ingu aðal­skipu­lags­breyt­ing­anna þar sem efni og fram­setn­ing þeirra sam­ræmd­ist ekki lögum um ramma­á­ætlun (verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun).

Í grein­ar­gerð Skipu­lags­stofn­unar til ráð­herra kom fram að áformuð vind­orku­ver falla undir lög um ramma­á­ætlun og að hún væri bind­andi við gerð skipu­lags­á­ætl­ana. Stofn­unin benti á að í lög­unum kemur fram að virkj­un­ar­kostir sem ramma­á­ætlun tekur til og hefur ekki verið tekin afstaða til í gild­andi ramma­á­ætlun skulu lúta sömu reglum og virkj­un­ar­kostir í bið­flokki áætl­un­ar­innar. Umræddir virkj­ana­kostir eru ekki í gild­andi ramma­á­ætlun.

Í til­kynn­ingu á vef Skipu­lags­stofn­unar segir að ráð­herra hafi tekið ákvörðun um málið í byrjun apríl og að í ákvörðun hans sé tekið undir það með Skipu­lags­stofnun að skil­grein­ing iðn­að­ar­svæðis án tak­mark­ana sam­ræm­ist ekki lögum. Einnig að for­senda þess að unnt sé að stað­festa aðal­skipu­lags­breyt­ing­arnar sé að fyr­ir­huguð iðn­að­ar­svæði séu skil­greind sem var­úð­ar­svæði í aðal­skipu­lagi. Ákvörðun ráð­herra, var því að synja stað­fest­ingu á umræddum breyt­ingum á aðal­skipu­lagi Reyk­hóla­hrepps og Dala­byggðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár