Áhrifasvæðið myndi ná langt inn á óbyggð víðerni

Bæði Skipu­lags­stofnun og Nátt­úru­fræði­stofnun vilja að fugla­rann­sóknir vegna áform­aðs vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu standi í tvö ár. Á svæð­inu eru upp­eld­is­stöðvar rjúpu. Þeim er sér­stak­lega hætt við að fljúga á hindr­anir. Myll­urnar yrðu um 200 metra háar.

Hið áformaða virkjanasvæði er í grænum lit fyrir miðri mynd.
Hið áform­aða virkj­ana­svæði er í grænum lit fyrir miðri mynd. Mynd: Úr drögum að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings

Skipu­lags­stofnun féllst á mats­á­ætlun fyrir mat á umhverf­is­á­hrifum vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu með skil­yrðum sem sett eru fram í sautján liðum. Bent er m.a. á að fram þurfi að fara mat á áhrifum á óbyggð víð­erni þar sem hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði ein­kenn­ist af víð­feðmu flat­lendi og sjá­ist því víða að. Þá leggur stofn­unin á það sér­staka áherslu að í frum­mats­skýrslu, sem er næsta skref í mati á umhverf­is­á­hrifum, verði við nálgun og fram­setn­ingu mats á áhrifum á fugla fylgt bestu starfsvenjum og að rann­sóknir á þeim þurfi að standa í að minnsta kosti tvö ár.

Fyr­ir­tækið Qair Iceland áformar að byggja og reka vind­orku­ver á Mel­rakka­sléttu og er verk­efnið kennt við örnefnið Hnota­stein. Það bónda­býli sem stendur næst fram­kvæmda­svæð­inu er í 2,9 kíló­metra fjar­lægð og næsta þorp við fram­kvæmda­svæðið er Kópasker, í um 6,5 km fjar­lægð.

[adspot]

Í til­lögum fyr­ir­tæk­is­ins kemur fram að áætluð stærð vers­ins, með 34 vind­myllum, yrði allt að 200 MW og að það yrði reist á rúm­lega 30 fer­kíló­metra lands­svæði. Um er að ræða alþjóð­lega mik­il­vægt fugla­svæði (IPA) fyrir æður, ritu, kríu, álku, lóm og himbrima á varp­tíma og á far­tíma fyrir rauð­bryst­ing, sand­erlu, send­ling og tildru. Strönd Mel­rakka­sléttu er auk þess mik­il­vægur við­komu­staður far­fugla á leið milli Evrópu og Græn­lands/Kanada.

[links]Þá hefur Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands lagt til að Mel­rakka­slétta fari á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár sem á að njóta for­gangs um frið­lýs­ingu eða friðun á næstu fimm árum. Mel­rakka­slétta er til­nefnd á skrána vegna ferskvatns­vist­gerða, fjöru­vist­gerða og fugla.

Gert er ráð fyrir að upp­bygg­ing vind­orku­vers­ins fari fram í tveimur áföngum. Áætlanir mið­ast við að vind­myllur verði allt að 200 metrar að hæð. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkju­turn 74 metrar. Fyr­ir­hugað er að lagðir verði nýir 4,5 metra breiðir mal­ar­slóðar um svæðið og að hverri vind­myllu. Gert er ráð fyrir að jarð­strengir frá hverri myllu verði grafnir með­fram slóð­unum og aðal­vegi að safn­stöð­inni og stöðin síðan tengd flutn­ings­kerfi Lands­nets með háspennu­línum. Und­ir­stöður undir hverja vind­myllu verða um 1600 m² og vinnuplan við vind­myllur rúm­lega 2200 m². Heild­ar­efn­is­þörf fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda er áætluð um 250.000 m³.

Ekki tekið til meðferðar í rammaáætlun

Skip­un­ar­tíma verk­efn­is­stjórnar 4. áfanga ramma­á­ætl­unar lauk í vor og í til­lögum hennar, á flokkun virkj­una­kosta, voru fimm vind­orku­kostir teknir fyrir. Vind­orku­verið Hnota­steinn var ekki einn þeirra og á því enn eftir að fara í gegnum það mats­ferli sem lýkur með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Alþingi þarf að sam­þykkja. Ferlið er hins vegar í miklum hnút og enn á eftir að afgreiða þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að 3. áfanga áætl­un­ar­innar sem byggir á loka­skýrslu verk­efn­is­stjórnar sem gefin var út í ágúst árið 2016.

Skipu­lags­stofnun sam­þykkir mats­á­ætlun Qair vegna áform­aðs vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu með ýmsum skil­yrðum og er í ákvörðun hennar mest áhersla lögð á rann­sóknir á fuglum enda segir í ákvörðun hennar að mat á áhrifum á fugla sé einn þýð­ing­ar­mesti þáttur umhverf­is­mats vind­orku­vera.

Fram kemur í til­lögu Qair að aðferða­fræði sú sem stuðst er við til að rann­saka fugla­líf á svæð­inu taki mið af leið­bein­ingum Scottish Natural Heritage (SNH) þar sem mælt sé með að fugla­líf á til­teknu fram­kvæmd­ar­svæði sé kannað í tvö ár nema hægt sé að færa rök fyrir því að þess sé ekki þörf.

Sögðu lítinn fjölbreytileika fugla á svæðinu

Fyrstu nið­ur­stöður fyr­ir­tæk­is­ins, eftir 162 klukku­stundir af sjón­ar­hóls­mæl­ingum á tímum haust­fars árið 2020, sýna, að því er fram kemur í til­lög­unni, lít­inn fjöl­breyti­leika fugla og að fugla­líf á fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði sé fremur fábreytt. Því metur fram­kvæmd­ar­að­ili það svo að yfir­grips­miklar rann­sóknir á einu ári séu nægj­an­legar til að fram­kvæma áreið­an­legt mat á áhrifum fram­kvæmd­ar­innar á fugla­líf. Þessu eru bæði Skipu­lags­stofnun og Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands ósam­mála.

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar um til­lögu Qair að mats­á­ætlun kom fram að flokkun Mel­rakka­sléttu sem mik­il­vægs fugla­svæðis byggi ekki aðeins á sjó­fugla­byggðum líkt og full­yrt væri í til­lög­unni. Þar séu einnig mik­il­vægir vetrar,- og við­komu- og fjaðra­fell­is­staðir, auk mik­il­vægra varp­svæða fyrir himbrima og fálka. Báðar þessar teg­undir verpa og/eða nýta svæðið við Hnota­stein til fæðu­öfl­unar.

Í ljósi þessa verði að gera ríkar kröfur til rann­sókna á fugla­lífi í tengslum við fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd. Stofn­unin lagði í umsögn sinni til að þar sem Hnota­steinn væri á mik­il­vægu fugla­svæði og það nýtt af teg­undum á válista, auk þess sem mikið af far­fuglum leggi leið sína um þessar slóðir og að far­leiðir væru ekki þekktar, yrði að gera ráð fyrir a.m.k. tveggja ára athug­unum á fugla­lífi með sjón­ar­hóls­at­hug­unum sem nái yfir varp­tíma og far­tíma vor og hausti.

Tífaldur munur á fjölda rjúpa á milli ára

Nátt­úru­fræði­stofnun benti enn­fremur á að upp­eld­is­stöðvar rjúpu væru á svæð­inu og að rjúpur væru meðal þeirra fugla sem rann­sóknir sýni að er sér­stak­lega hætt við að fljúga á hindr­anir. Um þessar mundir er stofn­inn í sögu­legu lág­marki og því er frekar lítið af rjúpum við Hnota­stein en allt að tífaldur munur getur verið á rjúpna­mergð í hámarks- og lág­marks­árum. Þá minnti stofn­unin á að rjúpur væru mikið á ferli um dimmu­mótin og að þær athug­anir sem Qair hyggð­ist fara í myndu ekki varpa ljósi á þýð­ingu svæð­is­ins fyrir rjúpur utan varp­tíma.

Í svörum Qair kemur fram að fram­kvæmd­ar­að­ili telji rat­sjár­mæl­ingar vera bestu leið­ina til að kanna atferli rjúp­unnar í ljósa­skiptum. Þó að aðferðin væri ekki galla­laus, t.d. þegar rjúpan flýgur lágt, þá teldi fram­kvæmd­ar­að­ili þessa aðferð henta betur en aðrar. Auk þess yrðu lagðar fram mót­væg­is­að­gerðir í frum­mats­skýrslu eins og að mála hluta vind­mylla.

[adspot]

Qair hefur lýst því yfir að sú aðferða­fræði sem stuðst er við til að rann­saka fugla­líf á svæð­inu taki mið af leið­bein­ingum Scottish Natural Heritage en eins og Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands hefur bent á í sínum umsögnum um vind­orku­ver er ekki alfarið hægt að yfir­færa skoskar leið­bein­ingar um þetta efni upp á aðstæður hér á landi, segir í ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar.

„Sú upp­bygg­ing sem hér er fyr­ir­huguð er án for­dæma hér á landi, en þekkt er erlendis að vind­orku­ver geta haft mikil áhrif á fugla­líf,“ segir stofn­unin. Þá séu almennt einnig til tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um far­leiðir fugla um Ísland. Hér eigi því við að leggja var­úð­ar­sjón­ar­mið til grund­vallar.

Í ljósi þess að ekki liggja fyrir sér­stakar reglur eða leið­bein­ingar um það hvernig standa skal að mati á áhrifum vind­orku­vera á fugla­líf hér á landi, telur Skipu­lags­stofnun að rann­sóknir þurfi að standa a.m.k. í tvö ár og spanna, auk varp­tíma, far­tíma vor og haust. Rann­sókn­irnar þurfi að ná yfir allt fram­kvæmda­svæðið. „Upplýsa þarf um það hvaða fuglar verða helst í árekstr­ar­hættu við vind­myllur og hver eru lík­leg afföll þeirra.“

Skipu­lags­stofnun gerir ekki athuga­semdir við rat­sjár­mæl­ingar en bendir á að bera þurfi nið­ur­stöður þeirra undir stofn­un­ina, sem muni í sam­ráði við Nátt­úru­fræði­stofnun leggja mat á hvort þær kalli á frek­ari athug­anir og mat á áhrifum á áflugs­hættu, áður en frum­mats­skýrslu er skilað.

Aðrir þættir sem Skipu­lags­stofnun leggur sér­staka áherslu á í ákvörðun sinni eru ásýnd lands og áhrif á sam­fé­lag, úti­vist og ferða­mennsku. Stofn­unin segir m.a. að vind­orku­garður af þeirri stærð­argráðu og fyr­ir­hug­aður er að Hnota­steini komi óhjá­kvæmi­lega til með að breyta ásýnd á umfangs­miklu svæði sem ber lítil merki mann­legra athafna og sýni­leiki vind­myll­anna kunni að hafa áhrif á upp­lifun ferða­manna og eins og Vatna­jök­uls­þjóð­garður bendi á í umsögn sinni er þjóð­garð­ur­inn í næsta nágrenni við fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði. Sjónræn áhrif vind­mylla sé sá áhrifa­þáttur sem er lík­legur til að hafa mest áhrif á ferða­þjón­ustu og úti­vist.

Í frum­mats­skýrslu þurfi því að meta gildi og aðdrátt­ar­afl svæð­is­ins með til­liti til ferða­mennsku og úti­vistar, t.a.m. með við­horfskönn­unum eða við­tölum við ferða­menn, ferða­þjón­ustu­að­ila og íbúa á svæð­inu. Slíkt mat þurfi að leggja til grund­vallar mati á áhrifum á sam­fé­lag, úti­vist og ferða­menn. Fyr­ir­liggj­andi rann­sóknir á við­horfi til vind­garða þurfi að setja í sam­hengi við fram­kvæmda­svæðið. Þá þurfi að gera ráð fyrir að við matið verði tekið mið af sýni­leika­korti og mati á áhrifum á lands­lag og ásýnd.

Aðalskipulagsbreyting í farvatninu

Fyrstu drög að breyt­ingu aðal­skipu­lags Norð­ur­þings vegna hins fyr­ir­hug­aða vind­orku­vers voru kynnt á íbúa­fundi á Kópa­skeri um miðjan júní. Full­trúar Qair kynntu verk­efnið ásamt full­trúum Eflu verk­fræði­stofu. Við skipu­lags­breyt­ing­una, sem end­an­lega verður mótuð á næstu vikum og mán­uðum, er horft til þess að rúm­lega 33 fer­kíló­metra svæði verði skil­greint sem iðn­að­ar­svæði og að þar megi byggja upp allt að fjöru­tíu vind­myllur.

Á heima­síðu Norð­ur­þings segir að fund­ur­inn hafi verið vel sóttur og að á honum hafi skap­ast „umtals­verðar umræður“ þar sem fram komu „ýmis sjón­ar­mið“ sem horft verði til við fram­hald vinn­unnar.

Hér er hægt að nálg­ast drögin að aðal­skipu­lags­breyt­ing­unni. Ef og þegar breyt­ing­arnar verða aug­lýstar verður lögum sam­kvæmt leitað umsagnar stofn­ana og fleiri aðila sem og almenn­ingi gefið færi á að gera athuga­semdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár