Kæra vindorkufyrirtæki vegna dauða hafarna

Vind­myll­urnar lim­lesta og valda dauða fjölda fugla, segja sam­tök íbúa á norskri eyju, íbúa sem töp­uðu bar­átt­unni við vind­myll­urnar en hafa nú kært orku­fyr­ir­tækið.

Átta myllur eru í vindorkuverinu á Haramseyju. Þær sjást víða að.
Átta myllur eru í vind­orku­ver­inu á Hara­ms­eyju. Þær sjást víða að. Mynd: Haram Kraft

Að minnsta kosti tveir hafernir hafa drepist í árekstrum við vind­myllur á hinni norsku Hara­ms­eyju úti fyrir Álasundi. Íbúa- og nátt­úru­vernd­ar­sam­tök sem börð­ust gegn því að vind­orku­ver yrði reist á eyj­unni, hafa kært vind­orku­fyr­ir­tækið Harams Kraft fyrir brot á lögum um dýra­vel­ferð og lögum um verndun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika. Krefjast sam­tökin þess að yfir­völd rann­saki hin meintu brot á grund­velli sömu laga. Þess er jafn­framt kraf­ist að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins verði ákærðir fyrir van­rækslu sem valdið hefði dauða haf­arn­anna.

[adspot]

Talsmenn Harams Kraft, dótt­ur­fé­lags Zephyr, hafa svarað því til að á tveggja vikna fresti sé leitað með hundum á virkj­un­ar­svæð­inu, líkt og yfir­völd kröfð­ust við útgáfu fram­kvæmda­leyfa. Það vill hins vegar ekki tjá sig um hvernig brugð­ist er við til­kynn­ingum um slas­aða fugla.

[links]Íbúa­sam­tökin segja að fuglar sær­ist, örkum­list og drep­ist með reglu­bundnu milli­bili og í miklum mæli vegna vind­myll­anna. Þau telja að vöktun virkj­un­ar­að­il­ans sé ekki í sam­ræmi við lög.

Vind­orku­verið á Hara­ms­fjalli hóf að rísa í lok maí í fyrra. Íbúa­sam­tökin höfðu barist gegn bygg­ingu þess fyrir dóm­stólum en allt kom fyrir ekki. Átta 150 metra háar vind­myllur standa nú á fjall­inu.

Á þessu sama fjalli eru tvö frið­lönd fyrir fugla. Svæðið er enn­fremur vin­sælt til úti­vistar.

Samtökin vilja að Harams Kraft verði gert að grípa til aðgerða til að draga eins mikið og hægt er úr árekstrum fugla á vind­myll­urnar. Þau hafa m.a. bent á að á öðru svæði, Smøla, hafi spaðar myll­anna verið mál­aðir svartir.

„Málið er nú komið til lög­regl­unnar og þá kemur í ljós hversu hátt Hamars-eyja er skrifuð á for­gangs­list­anum,“ sagði í frétta­til­kynn­ingu frá íbúa­sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár