„Þeir eru að eyðileggja eyjuna okkar“

Deilum um bygg­ingu átta 150 metra háa vind­mylla á norskri eyju er ekki lokið þó að and­stæð­ingar vind­orku­vers­ins hafi tapað enn einu dóms­mál­inu. Þeir segja ekki í boði að gef­ast upp. Deil­urnar hafa klofið fámennt sam­fé­lagið.

Tölvuteiknuð mynd af vindorkuvirkjuninni á Harams-fjalli.
Tölvu­teiknuð mynd af vind­orku­virkj­un­inni á Harams-fjalli. Mynd: Af vefsíðu Haram Kraft AS

Norðmenn eru þekktir fyrir að taka þjóð­há­tíð­ar­dag sinn alvar­lega, klæð­ast þjóð­bún­ingum, koma saman og síð­ast en ekki síst: Flagga. Á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum þetta árið, hinn 17. maí, var hins vegar ekki flaggað við hvert hús á Hara­ms­eyju og á nálægum eyjum úti fyrir Álasundi. Hluti eyja­skeggja var ein­fald­lega ekki í hátíða­skapi heldur miklu frekar sorg­mæddur. Sorgina má rekja til þess að nýverið tap­aði hópur þeirra máli sem höfðað var til að reyna að koma í veg fyrir að vind­orku­virkjun með átta 150 metra háum vind­myllum verði reist á eyj­unni. Á föstu­dag féll dómur sem stað­festi gild­is­töku leyfis til að reisa vind­orku­verið. Því geta fram­kvæmdir nú haf­ist af fullum krafti.

And­stæð­ingar hins fyr­ir­hug­aða vers höfð­uðu mál gegn bæði norska rík­inu og fram­kvæmda­að­il­anum, Zephyr (áður Haram Kraft AS). „Öllum þykir vænt um landið sitt, þetta snýst ekki um það,“ hefur norska rík­is­sjón­varpið eftir Lisbeth Marie Austnes, íbúa á eyju skammt frá sem leiðir bar­átt­una gegn virkj­un­inni. Hún var ein þeirra sem flagg­aði ekki í til­efni þjóð­há­tíð­ar­dags­ins líkt og hún er vön. Hún segir marga sorg­mædda og að þeir hafi með þessu viljað tjá þær til­finn­ingar sínar.

[adspot]

Deil­urnar um vind­orku­verið hafa klofið sam­fé­lagið á Hara­ms­eyju sem telur um 350 manns. And­staðan er ekki minni á eyj­unni Longva þar sem nokkru fleiri búa, m.a. Austnes. Þaðan yrði beint útsýni yfir vind­orku­garð­inn.

[links]Það var þó ekki þannig að allir þeir sem eru á móti ver­inu hafi sleppt því að flagga. Sumir gerðu það. Aðrir ekki. Fyrir utan von­brigðin sem fylgja því að hafa tapað dóms­mál­inu situr bar­áttu­hóp­ur­inn uppi með máls­kostnað, um 1 milljón norskra króna. Þetta er í þriðja sinn sem málið ratar fyrir dóm. Enn geta and­stæð­ingar vers­ins áfrýjað en engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt. Það tekur bæði orku og fjár­magn að standa í mála­rekstr­inum og nú þarf að sögn Austnes að vega og meta þá þætti. Hins vegar segir hún ekki koma til greina að gef­ast upp.

„Órétt­lætið er of mikið,“ segir hún við norska rík­is­sjón­varpið. „Við munum halda áfram að reyna að finna leiðir út úr þessu.“

Þeir eyja­skeggjar sem hafa barist gegn bygg­ingu virkj­un­ar­innar segja að deil­urnar hafi tekið toll af heilsu sumra þeirra. Fram­kvæmdir, m.a. vega­lagn­ing upp á fram­kvæmda­svæðið á Hara­ms­fjalli eru þegar hafnar. „Nei, ég er ekki farin að sætta mig við líf hér á eyj­unni með vind­myllum,“ segir Austnes. Hún leyfi sér ekki að hugsa þannig – þá fyrst myndi van­líð­anin hell­ast yfir.

Sveit­ar­stjórnin í Álasundi hefur beðið fram­kvæmda­að­il­ann Zephyr að meta áhrif vind­orku­vers­ins á heilsu fólks. Slík rann­sókn er talin kosta um 1 milljón norskra króna sem Zephyr skal að mati stjórn­valda greiða. Þessu fagnar Austnes og segir gott að vita að stjórn­völd taki áhyggjur íbú­anna alvar­lega.

Leyfi fékkst til bygg­ingar vind­orku­garðs­ins á Hara­ms­eyju árið 2009 en það var þó ekki fyrr en tíu árum síðar, árið 2019, sem áformin komust í hámæli og áformunum var ýtt úr vör. Sú ákvörðun kom and­stæð­ingum virkj­un­ar­innar að óvörum. Þeir héldu að horfið hefði verið frá hug­mynd­inni. Fyrstu hug­myndir gerðu ráð fyrir sextán vind­myllum en síðar kom í ljós að á hluta hins fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæðis var of vinda­samur og því ákveðið að fækka myll­unum í átta. And­stæð­ingar vers­ins höfð­uðu mál á þessum grunni, að fram­kvæmda­leyfið væri ekki í takti við þá fram­kvæmd sem nú standi fyrir dyrum. Orkan sem verið á að fram­leiða er t.d. umtals­vert minni en til stóð.

Fram­kvæmda­stjóri Zephyr í Noregi, Olav Rommet­veit, segir fram­kvæmd­irnar hafa verið á teikni­borð­inu í yfir tvo ára­tugi. Hann hefur vísað því alfarið á bug að fram­kvæmda­leyfið nái ekki yfir hin breyttu áform um stærð virkj­un­ar­innar.

And­stæð­ingar virkj­un­ar­innar segj­ast hins vegar litlar sem engar upp­lýs­ingar hafa fengið á þessum tveimur ára­tugum fyrr en bréf kom inn um lúg­una hjá þeim sem næst búa fjall­inu þar sem verið á að rísa. Leyndin er mikil, segja þeir, og svo virð­ist sem allt hafi verið ákveðið og íbú­arnir lítið haft að segja um fram­haldið.

[adspot]

„Þeir eru að eyði­leggja eyj­una okkar,“ segir Lorgen Giske. Margir íbúar hafa að hennar sögn misst traust á yfir­völdum vegna máls­ins. Hún er meðal kvenna sem mót­mæltu komu stór­tækra vinnu­véla á bryggj­unni og reyndu, með frið­sömum hætti, að koma í veg fyrir að þær kæmu í land. Konurnar ganga nær dag­lega upp á fram­kvæmda­svæðið og fylgj­ast með gangi mála. Taka myndir og skrifa hjá sér. Sam­skipti þeirra við verka­menn­ina er kurt­eis­is­leg.

„Þótt við höfum meiri­hluta eyja­skeggja með okkur í liði eru nokkrir land­eig­endur sem hafa sam­þykkt fram­kvæmd­ina,“ segir Austnes. „Þetta er lítið sam­fé­lag sem deil­urnar hafa klofið. Við verðum að halda áfram að búa hér saman eftir þetta og við verðum að gæta þess að deil­urnar verði ekki of ákafar, passa hvað við segjum og gerum því hér tengj­ast allir með ein­hverjum hætti. Þetta er flókið.“

Í nýbirtri umfjöllun Teknisk Ukeblad segir að leitað hafi verið eftir við­brögð land­eig­enda. Þeir hafi hins vegar ekki viljað koma í við­tal. Segjast hafa orðið fyrir áreiti vegna afstöðu sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár