Áforma 200 MW vindorkuver á einu helsta varpsvæði rjúpunnar á Íslandi

Vind­orku­ver Qair á Mel­rakka­sléttu yrði innan alþjóð­lega mik­il­vægs fugla­svæðis, á svæði sem til­nefnt hefur verið á nátt­úru­minja­skrá og á flat­lendri slétt­unni og því sjást víða að.

Vindmyllur hafa farið hækkandi með árunum. Á Melrakkasléttu yrðu þær um 200 metra háar í hæstu stöðu. Á myndinni má sjá mann ganga innan um vindmyllur í Belgíu.
Vind­myllur hafa farið hækk­andi með árunum. Á Mel­rakka­sléttu yrðu þær um 200 metra háar í hæstu stöðu. Á mynd­inni má sjá mann ganga innan um vind­myllur í Belgíu. Mynd: EPA

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands (NÍ) getur ekki tekið undir þær stað­hæf­ingar sem fram koma í til­lögu fyr­ir­tæk­is­ins Qair Iceland að mats­á­ætlun fyr­ir­hug­aðs vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu um að stað­setn­ingin hafi verið valin að teknu til­liti til fjar­lægða frá nátt­úru- og menn­ing­arminjum, íbúa­byggð og ferða­manna­stöðum. „Á Mel­rakka­sléttu, Hóla­heiði og innan fyr­ir­hug­aðs fram­kvæmda­svæðis, eru margar merkar nátt­úru­minjar og fyr­ir­bæri er varða jarð­minjar, fugla og vist­gerðir. Svæðið er lítt raskað, þar eru miklar víð­áttur og fjöl­breyti­legt lands­lag. Á svæð­inu eru miklir fram­tíð­ar­mögu­leikar fyrir ferða­mennsku og úti­vist,“ segir í ítar­legri umsögn stofn­un­ar­innar við til­lög­una.

[adspot]

Orku­verið yrði innan alþjóð­lega mik­il­vægs svæðis (IBA) fyrir æður, ritu, kríu, álku, lóm og himbrima á varp­tíma og á far­tíma fyrir rauð­bryst­ing, sand­erlu, send­ling og tildru. Strönd Mel­rakka­sléttu er auk þess mik­il­vægur við­komu­staður far­fugla á leið milli Evrópu og Græn­lands/Kanada.

Þá hefur Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands lagt til að Mel­rakka­slétta fari á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár sem á að njóta for­gangs um frið­lýs­ingu eða friðun á næstu árum. Mel­rakka­slétta er til­nefnd á skrána vegna ferskvatns­vist­gerða, fjöru­vist­gerða og fugla.

[links]Fyr­ir­tækið Qair Iceland ehf. áformar að láta reisa allt að 200 MW vind­orku­ver innan 3.330 hekt­ara lands á hinni flat­lendu Mel­rakka­sléttu og er verk­efnið kennt við örnefnið Hnota­stein. Gert er ráð fyrir að vind­myll­urnar, sem yrðu um 34 tals­ins, verði reistar í tveimur áföngum. Fram­kvæmda­svæðið er innan sveit­ar­fé­lags­ins Norð­ur­þings á Norð­ur­landi eystra. Nálæg­asta íbúa­byggð er bónda­býli í 2,9 kíló­metra fjar­lægð og næsti þétt­býl­is­staður er Kópasker, í um 6,5 km fjar­lægð.

Qair Iceland ehf (áður Quadran Iceland Develop­ment ehf.) er dótt­ur­fé­lag franska fyr­ir­tæk­is­ins Qair SA. Vind­orku­verið á Mel­rakka­sléttu var einn af þeim 34 virkj­ana­kostum í vind­orku sem bár­ust verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar. Af þeim voru níu á vegum Qair. Hins vegar mat stjórnin það svo að nægj­an­leg gögn hefðu aðeins fylgt fimm kost­anna. Vind­orku­ver við Hnota­stein var ekki þeirra á meðal.

Tappi í rammaáætlunarferli

Mikil stífla hefur mynd­ast í ramma­á­ætl­un­ar­ferl­inu þar sem þings­á­lykt­un­ar­til­laga að þriðji áfangi áætl­un­ar­innar hefur enn ekki verið sam­þykkt á Alþingi, rúm­lega fjórum og hálfu ári eftir að hún var fyrst lögð fram. Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga náði svo, m.a. vegna þess­ara tafa, ekki að ljúka sinni vinnu. Öll kynn­ing á til­lögum hennar, sem birtar voru 30. mars er skip­un­ar­tíma hennar lauk, er því enn eftir og loka­skýrsla, sem lögum sam­kvæmt á að afhenda umhverf­is­ráð­herra, ekki til­búin.

[adspot]

Orku­stofnun hefur um ára­bil gert ágrein­ing um það að ramma­á­ætlun fjalli um hug­myndir að vind­orku­virkj­unum líkt og þær sem nýta eiga vatns­afl og jarð­varma. Til að taka af vafa þar um kynnti umhverf­is­ráð­herra í upp­hafi árs drög að breyt­ingu á lögum um ramma­á­ætlun, svo að kveðið verði sér­stak­lega á um vind­orku í lög­unum og að hug­myndir að vind­orku­verum, 10 MW eða meira að afli, heyri undir ramma­á­ætlun.

Vegna þess­arar óvissu sem skap­ast hefur er skipu­lags­ferli nokk­urra afl­mik­illa vind­orku­vera þegar hafið hjá sveit­ar­fé­lögum eða þau komin áleiðis í umhverf­is­mats­ferl­inu líkt og það sem áformað er að reisa á Hóla­heiði á Mel­rakka­sléttu.

Vind­orku­ver falla undir lög um mat á umhverf­is­á­hrifum og til­laga að mats­á­ætlun er eitt fyrsta skrefið í slíku ferli. Kynn­ing­ar­tíma til­lög­unnar er lokið en Skipu­lags­stofnun er enn að vinna í mál­inu.

Um 200 metrar á hæð

Vind­myll­urnar 34 sem fyr­ir­hugað er að reisa á Hóla­heiði yrðu um 200 metra háar í hæstu stöðu og þver­mál spað­anna 167 metrar. Þetta er þó meðal þeirra þátta sem enn eru óljósir þar sem ekki er búið að ákveða hvaða teg­und yrði fyrir val­inu. Undir hverri og einni vind­myllu þyrfti svo að vera um 30 fer­metra steyptur grunnur. Þá er gert ráð fyrir að á fram­kvæmda­svæð­inu verði lagðir nýir vegir, sam­tals um sautján kíló­metrar að lengd. Við hverja vind­myllu yrðu vinnu­plön fyrir krana, 160 metrar á lengd og 14 m á breidd.

Nátt­úru­fræði­stofnun segir í umsögn sinni að í til­lögu Qair að mats­á­ætlun vegna mats á umhverf­is­á­hrifum vind­orku­vers­ins að Hnota­steini sé ekki lagt mikið upp úr umhverf­is­á­hrifum á jarð­minjar. Bent er í því sam­bandi á að ætl­unin sé að reisa orku­verið að mestu á nútíma­hrauni sem njóti sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Þar að auki séu stöðu­vötn og tjarnir innan svæð­is­ins sem einnig njóta verndar. Samkvæmt lög­unum beri að forð­ast að raska þessum nátt­úru­fyr­ir­bærum nema að brýna nauð­syn beri til.

Stofnun vekur einnig athygli á því að ekki sé rétt hjá skýrslu­höf­undum að flokkun hins alþjóð­lega mik­il­væga fugla­svæðis byggi aðeins á sjó­fugla­byggðum. Þar séu auk þess mik­il­vægir vetrar,- og við­komu- og fjaðra­fell­is­staðir, auk mik­il­vægra varp­svæða fyrir himbrima og fálka sem verpa og/eða nýta svæðið við Hnota­stein til fæðu­öfl­unar. Þá eru þar mik­il­vægar varp- og upp­eld­is­stöðvar rjúpu en þær eru meðal þeirra teg­unda sem rann­sóknir sýni að sé sér­stak­lega hætt við að fljúga á hindr­anir. „Í ljósi þessa verður að gera ríkar kröfur til rann­sókna á fugla­lífi í tengslum við fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd“ og leggur stofn­unin til að minnsta kosti tveggja ára athug­anir.

Víðernin einkenni Melrakkasléttu

Í athuga­semdum SUNN – Samtaka um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi segir að allan rök­stuðn­ing vanti í til­lög­una fyrir þörf á að reisa 200 MW virkjun á Íslandi á næstu árum, hvað þá nokkrar slíkar. Í til­lögu Qair kemur fram að vind­orku­verið verði ein­ungis reist „ef kaup á þeirri raf­orku sem þar verður fram­leidd eru tryggð“.

Ferða­þjón­ustu­sam­tökin Norð­ur­hjari benda á að ósnortin víð­erni séu eft­ir­sótt meðal ferða­manna og eitt af því sem ein­kenni Mel­rakka­sléttu „Með vind­orku­garð­inum er stóru ósnortnu víð­erni raskað og mögu­leikar ferða­manna og íbúa til að njóta þess minnka veru­lega þar sem áhrifa og sjón­meng­unar gætir á stóru svæði.“

María Hrönn Gunn­ars­dóttir frá Kópa­skeri segir í sinni athuga­semd ríka ástæðu til að fram­setn­ing virkj­ana­hug­mynd­ar­innar sé gagn­særri svo íbúar eigi þess kost að meta ávinn­ing sveit­ar­fé­lags­ins á móti þeirri röskun sem hlýst af fram­kvæmd og rekstri vind­orku­vers­ins. Hún fjallar um 200 metra hæð vind­myll­anna og rifjar til við­mið­unar upp að Hall­gríms­kirkju­turn sé 74 metrar og því „rétt rúm­lega þriðj­ungur hámarks­stærðar hverrar vind­myllu í hæstu stöðu“. Vind­myll­urnar yrðu „gríð­ar­stórar“ og myndu sjást víða að frá lág­lendri Mel­rakka­slétt­unni.

Mælingar í dag segja ekkert til um framtíðina

Gunnar Ein­ars­son, sem á land að fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði, vekur sér­staka athygli á fugla­líf­inu í sinni athuga­semd. Hann bendir á að fyrir árið 1950 hafi verið „feyki­mikið“ af rjúpu á þessum slóðum. „Þegar við komum hingað 1982 var miklu minna af henni en samt veru­legur fjöldi. Þarna á heið­inni þar sem vind­myllu­garð­ur­inn á að rísa, voru oft margir hópar með hund­rað rjúpum eða meira. Núna hefur stofn­inn hrunið. Fálkum hefur líka fækkað enda rjúpan aðal­fæða hans.“ Hann skrifar svo að mæl­ingar sem gerðar eru í dag segi ekk­ert til um stofn­stærð í fram­tíð­inni. „Vind­myll­urnar yrðu „gríð­ar­stór“ mann­virki sem myndu breyta upp­lifun af land­inu langt út fyrir landa­merki jarða sem þær rísa á. Vind­orku­verið yrði „hættu­legur fuglum, algjör­lega óþarfur til að fram­leiða þá orku sem við þurfum og myndi valda mjög mik­illi umhverf­is­röskun og allt að óþörfu.“

Í umsögn Veð­ur­stof­unnar er bent á að í til­lög­unni sé ekk­ert fjallað um vinda­far né aðra þætti veð­ur­fars nema að mjög stutt­lega sé minnst á mæl­ingar á vindi. Þá skorti umfjöllun um nátt­úruvá, s.s. aftaka­veður og jarð­skjálfta.

Nátt­úru­vernd­ar­nefnd Þing­ey­inga segir í sinni umsögn að í til­lög­unni komi fram að fram­kvæmda­að­ili hygg­ist end­ur­meta flokkun svæð­is­ins sem alþjóð­lega mik­il­vægs fugla­svæðis. „Það er varla í verka­hring fram­kvæmda­að­ila að end­ur­meta flokkun svæð­is­ins á þann hátt. Inn­lendar fag­stofn­anir þar sem starfa inn­lendir líf­fræð­ingar og fugla­fræð­ingar eru mun betur til þess fallnar.“

Bendir nefndin á að Mel­rakka­slétta sé eitt helsta varp­svæði rjúpu á Íslandi og að hún, auk stærri fugla á borð við himbrima, lóm og fálka, sé sér­stak­lega við­kvæm fyrir áflugi á vind­myllur.

Vind­orku­ver á Hóla­heiði á Mel­rakka­sléttu mun hafa gríð­ar­leg áhrif á lands­lag og ásýnd svæð­is­ins og valda mik­illi sjón­mengun, bæði á byggðu og óbyggðu svæði, segir enn­fremur í umsögn nefnd­ar­innar. „Mel­rakka­sléttan er flat­lend og er flatneskjan eitt að stað­ar­ein­kennum svæð­is­ins og um leið eitt helsta aðdrátt­ar­afl þess með til­liti til ferða­þjón­ustu.“

[adspot]

Þá sé Hóla­heiði nyrsti hluti af stærsta víð­ern­is­svæði lands­ins utan víð­erna mið­há­lend­is­ins. „Ferða­þjón­usta er vax­andi atvinnu­grein á Mel­rakka­sléttu, í Þistil­firði og á Langa­nesi en þar hefur meðal ann­ars verið lögð áhersla á fugla­tengda ferða­þjón­ustu auk ann­arrar nátt­úru­tengdrar ferða­þjón­ustu. [...] Vind­myllur á svona stóru svæði á Hóla­heiði myndu sjást langt að og hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á útsýni og upp­lifun ferða­manna sem heim­sækja svæðið.“

Á þessu stigi er óvíst hvenær fram­kvæmdir við upp­setn­ingu vind­orku­vers­ins að Hnota­steini gætu haf­ist, segir í til­lögu Quar. Gert ráð fyrir að fram­kvæmdir muni í heild­ina taka um 12 mán­uði sem lík­lega myndu dreifast yfir tveggja ára tíma­bil. Að því loknu er áætlað að rekstur vind­orku­garðs­ins geti haf­ist og standi yfir í að minnsta kosti 25 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár