Áforma vindorkugarð á flatlendu fuglasvæði í Meðallandi

Vind­orku­virkjun í Með­al­landi var meðal þeirra kosta sem verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar ákvað að taka ekki til umfjöll­unar. Skipu­lags­ferlið er þó komið af stað í hinni flat­lendu sveit sem er skil­greind sem alþjóð­lega mik­il­vægt fugla­svæði.

Í Meðallandi er m.a. að finna votlendi sem nýtur sérstakrar verndar í náttúruverndarlögum.
Í Með­al­landi er m.a. að finna vot­lendi sem nýtur sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Mynd: Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi

Vind­orku­virkjun sem fyr­ir­tækið Qair Iceland er með á prjón­unum í Með­al­landi í Skaft­ár­hreppi, sem telja myndi á bil­inu 20-40 vind­myllur, var ekki tekin til með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar sem lauk störfum í vor. Aðeins virkj­ana­kostir sem nægj­an­leg gögn fylgdu að mati stjórn­ar­innar voru teknir til umfjöll­unar. Ferli ramma­á­ætl­unar hefur setið fast í að verða fimm ár.

Þá liggur ekki fyrir stefnu­mörkun um nýt­ingu vind­orku í sveit­ar­fé­lag­inu Skaft­ár­hreppi en stefnt er mótun slíkrar stefnu við end­ur­skoðun aðal­skipu­lags sem á að vera lokið um mitt næsta ár. Umhverf­is­mats­ferli verk­efn­is­ins er komið af stað og Skipu­lags­stofnun aug­lýsti til­lögu fyr­ir­tæk­is­ins að mats­á­ætlun í vor, eitt skrefið í umhverf­is­mats­ferl­inu, og bíður nú við­bragða fram­kvæmda­að­ila við umsögnum og athuga­semdum sem bár­ust. Í kjöl­farið tekur stofn­unin ákvörðun um mats­á­ætlun.

Á kynn­inga­fundi sem for­svars­menn verk­efn­is­ins héldu á Kirkju­bæj­ar­klaustri í vik­unni kom fram að þrátt fyrir stöðu máls­ins innan ramma­á­ætl­unar hefði verið ákveðið að halda áfram með verk­efnið og að von­ast sé til að frum­ats­skýrsla liggi fyrir í byrjun næsta árs og að álit Skipu­lags­stofn­unar verði svo gefið út um mitt það ár. Sögðu þeir að vandað yrði til allra rann­sókna og væru þær þegar hafnar. Nið­ur­staða þeirra muni svo ráða því hvort haldið verði áfram með verk­efnið með mót­væg­is­að­gerðum sem eft­ir­lits­stofn­anir sam­þykki.

[adspot]

Land­vernd minnti í sínum athuga­semdum við drög að mats­á­ætlun á að virkj­anir sem eru 10 MW eða stærri eigi að fara inn í ferli ramma­á­ætl­unar. Virkj­unin í Með­al­landi yrði yfir 130 MW. Stjórn sam­tak­anna telur því „algjör­lega ótíma­bært“ að hefja und­ir­bún­ing að mati á umhverf­is­á­hrifum á grund­velli fram­lagðrar tíma­á­ætl­unar og „hvetur alla við­kom­andi aðila til að halda að sér höndum þar til hug­myndin hefur verið lögð fram, metin og raðað á grund­velli laga nr. 48/2011 um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun“.

[links]Qair svarar þeirri gagn­rýni á þá leið að nú þegar séu nokkur vind­orku­verk­efni í vinnslu mats á umhverf­is­á­hrifum þar sem Skipu­lags­stofnun hefur veitt sam­þykki sitt á til­lögu að mats­á­ætlun þrátt fyrir að hafa ekki enn verið tekin til með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar eða lent í bið­flokki til­lagna hennar. „Þessu verk­efni er hrundið af stað á þessum for­sendum.“

Qair áformar að reisa vind­orku­virkjun á Gríms­stöðum í Með­al­landi í Skaft­ár­hreppi, með heild­ar­afl í kringum 144 MW. Fyr­ir­huguð áform gera ráð fyrir 24-30 vind­myllum og að afl hverrar þeirra verði 6 MW. Gera má ráð fyrir að myll­urnar verði um 150-200 metrar á hæð miðað við spaða í hæstu stöðu. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkju­turn 74,5 metra hár.

Á kynn­ing­ar­fund­inum á Kirkju­bæj­ar­klaustri kom fram að ríkið ætti stærsta hluta, eða um 90 pró­sent, jarð­ar­innar Gríms­staða og að samn­inga­við­ræður við full­trúa þess stæðu enn yfir.

Víðáttumiklir sandar og nóg af vindi

Með­al­land nær vestan frá Kúða­fljóti og austur að Land­broti og Skaftá, suður af Eld­hrauni. Einkenni sveit­ar­innar eru víð­áttu­miklir sandar næst sjó og mikil mela­lönd. Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði er flatt og víð­feðmt. Langt er í næstu fjöll og lítið sem skyggir á sýn til svæð­is­ins frá næstu bæjum og vegum. Þetta gerir svæðið til­valið fyrir vind­orku­ver að sögn fram­kvæmda­að­ila en að sama skapi munu myll­urnar, verði þær reistar, sjást víða að.

Qair Iceland ehf (áður Quadran Iceland Develop­ment ehf.) er dótt­ur­fé­lag franska fyr­ir­tæk­is­ins Qair SA. Fram­kvæmda­stjóri þess er Friðjón Þórð­ar­son. Vind­orku­verið á jörð­inni Gríms­stöðum í Með­al­landi var einn af þeim 34 virkj­ana­kostum í vind­orku sem bár­ust verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar. Af þeim voru níu á vegum Qair en sam­an­lagt afl þeirra hug­mynda er um 800 MW. Hins vegar mat stjórnin það svo að nægj­an­leg gögn hefðu aðeins fylgt fimm kost­anna. Vind­orku­virkjun í Með­al­landi var ekki þeirra á meðal.

Qair Iceland er nú þegar með tvö önnur verk­efni á sviði vind­orku í gangi á Íslandi. Annað er vind­orku­garður á Sól­heimum á Lax­ár­dals­heiði sem verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar leggur til að fari í bið­flokk. Hitt er vind­orku­garður á Hnota­steini á Mel­rakka­sléttu sem stjórnin tók ekki til efn­is­legrar með­ferðar. Hins vegar er í gangi vinna að mati á umhverf­is­á­hrifum fyrir bæði verk­efnin.

Land Gríms­staða í Með­al­landi nær yfir 1.622 hekt­ara svæði í Skaft­ár­hreppi. Frá vega­mótum við þjóð­veg 1 eru um 44 kíló­metrar til vest­urs að Vík í Mýrdal. Nokkrir bæir eru í Með­al­landi. Stysta fjar­lægð frá landa­mörkum Gríms­staða í næsta bæ í vestur er um 2 kíló­metrar. Norðan við land Gríms­staða eru tveir bæir og eru um 350 metrar í bæinn sem er nær landi Gríms­staða.

Varpsvæði álfta og mikilvæg farleið fugla

Land­svæðið sem hin fyr­ir­hug­aða virkjun myndi rísa á er skil­greint sem mik­il­vægt fugla­svæði (e. Import­ant Birds Area) (IBA) og er talið alþjóð­lega mik­il­vægt varp­svæði álftar og vetr­ar­dval­ar­staður gulandar. Samkvæmt flokkun Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands fara auk þess margir vatna- og sjó­fuglar um svæðið bæði vor og haust. Fugla­lífið er einmitt meðal þess sem gagn­rýni á vind­orku­virkj­un­ina gengur einna helst út á.

Haukur Ein­ars­son, sér­fræð­ingur hjá verk­fræði­stof­unni Mannviti sem gerði til­lögu að mats­á­ætlun fyrir Qair Iceland, sagði á kynn­ing­ar­fund­inum á Klaustri að sér­stök áhersla yrði lögð á fugla­rann­sóknir þar sem fuglar væru „sá umhverf­is­þáttur sem rann­saka þarf hvað ítar­leg­ast þegar vind­myllur eiga í hlut. Sér í lagi hér, þar sem fram­kvæmda­svæðið er á svæði sem er skil­greint sem mik­il­vægt fugla­svæði.“ Segir hann rann­sókn­irnar ítar­legar, tíma­frekar og í þeim yrði „engu til sparað“.

„Það er gríð­ar­lega mikið af gæs þarna í Með­al­land­inu,“ sagði Friðjón fram­kvæmda­stjóri Qair Iceland á fund­inum. „Það er eig­in­lega ótrú­legt að sjá þetta.“ Hann sagði ýmsan búnað til sem ætlað væri að fæla fugla frá, sem sendi m.a. hljóð­bylgjur þegar fuglar nálg­ast. Þá hefði sums­staðar verið gripið til þess ráðs að mála einn spaða hverrar myllu svartan til að vekja athygli fugla á þeim. Í Marokkó hafi svo ítr­ustu mót­væg­is­að­gerðir jafn­vel falist í því að stöðva vind­myllur á þeim tíma­bilum sem far­flug fugla er hvað mest. „Þetta er eitt­hvað sem við þurfum að skoða út í hörgul enda er alveg ótrú­lega mikið af gæs þarna. Þetta er í mjög nákvæmri skoðun hjá okkur.“

Í til­lögu að mats­á­ætlun kemur fram að ýmsar rann­sóknir séu fyr­ir­hug­aðar af hálfu fram­kvæmda­að­ila á fugla­lífi á svæð­inu, m.a. í formi vett­vangs­rann­sókna. Þá stendur yfir rat­sjár­rann­sókn til að skrá­setja komu- og brott­far­ar­tíma far­fugla og leiðir varp­fugla dags og nætur og munu þær standa fram í nóv­em­ber, þ.e. í sam­fellt átta mán­uði sam­kvæmt ráð­legg­ingum Nátt­úru­fræði­stofn­unar. Stofn­unin bendir í sinni umsögn m.a. á að mögu­leg lega teng­ingar við flutn­ings­kerfi raf­orku myndi fara yfir eld­hraun sem njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Að mati stofn­un­ar­innar ætti heild­ar­fram­kvæmdin, þ.m.t. nauð­syn­leg teng­ing við flutn­ings­kerfið, að vera hluti af heild­ar­mati hinnar fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmdar.

Ekki reist nema að kaupandi sé tryggður

Qair segir í til­lögu sinni að með vind­orku­ver­inu á Gríms­stöðum yrði brugð­ist við auk­inni raf­orku­þörf á Íslandi og um leið bæta aðgengi á svæð­inu að raf­orku. Skiptar skoð­anir eru á því hvort að raf­orku­þörf muni aukast næstu árin þar sem ýmis teikn hafa verið á lofti í þeim efnum. Í athuga­semdum bæði Land­verndar og Eldvatna, er m.a. vakin athygli á því og svarar fram­kvæmda­að­ili með því að leggja áherslu á að „vind­orku­verið á Gríms­stöðum verði aðeins byggt ef búið er að tryggja kaup á raf­orku“. Á fund­inum sagði Friðjón að Qair væri að íhuga „mjög alvar­lega“ upp­setn­ingu verk­smiðju til að fram­leiða vetni á Íslandi „en eins og staðan er núna er eig­in­lega engin orka til í land­inu“.

[adspot]

Ingi­björg Eiríks­dóttir, for­maður Eldvatna – sam­taka um nátt­úru­vernd í Skaft­ár­hreppi, sagð­ist vera ósátt við svar for­svars­manna verk­efn­is­ins við athuga­semd sam­tak­anna við til­lögu að mats­á­ætlun, er varðar nátt­úru­vernd­ar­lögin, en í þeim komi skýrt fram að ákveðin svæði og nátt­úru­fyr­ir­bæri njóti sér­stakrar verndar og að þeim beri ekki að raska nema að brýna nauð­syn beri til. Benti hún sér­stak­lega á vot­lendið í Með­al­land­inu sem væri ein­stakt og stórt búsvæði margra fugla­teg­unda. Friðjón svar­aði því til að á Íslandi væri vissu­lega mjög mikið af mik­il­vægum fugla­svæðum sem þýddi í hans huga að fara bæri í mjög ítar­legar rann­sóknir á við­kom­andi svæði og ef þær sýndu lítil áhrif af fram­kvæmd feng­ist leyfi. Í því rann­sókn­ar­ferli væri verk­efnið núna. Þegar nið­ur­staða rann­sókna lægi fyrir kæmi í ljós hvort að hægt væri að fara í fram­kvæmd­ina og hvort að mót­væg­is­að­gerðir dygðu til. Ef ekki yrði eng­inn vind­myllu­garður reistur í Með­al­landi. Ingi­björg seg­ist í sam­tali við Kjarnann fagna orðum þeirra um að nið­ur­staða rann­sókna á t.d. fugla­lífi verði látin ráða úrslitum.

Ingi­björg bendir þó á að þrátt fyrir það sem hún kallar „fall­ein­kunn“ Skipu­lags­stofn­unar í áliti á annarri virkj­un­ar­fram­kvæmd, Hnútu­virkjun í Hverf­is­fljóti, hafi sveit­ar­stjórn ákveðið greiða götu hennar áfram og aug­lýsa skipu­lags­til­lögur, sem sé afger­andi stefnu­mót­andi ákvörðun. Hún segir að ábyrgð sveit­ar­stjórna í skipu­lags­málum sé rík, og gagn­rýnir harð­lega slíka stjórn­sýslu í fámennu en land­miklu sveit­ar­fé­lagi líkt og hér um ræðir. Þriggja manna meiri­hluti Sjálf­stæð­is­manna í Skaft­ár­hreppi, með 141 atkvæði á bak við sig, beri skipu­lags­á­byrgð á um 7 pró­sentum Íslands; svæði sem sé „stút­fullt“ af fyr­ir­bærum sem njóti sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Slíkt fyr­ir­komu­lag hljóti að vera umhugs­un­ar­vert.

Á þetta benti hún á fund­inum og Friðjón svar­aði því m.a. til að allir gerðu sér grein fyrir því að risa­stórir turnar í Með­al­landi myndu hafa ein­hver áhrif á umhverfið en að reynt yrði að hafa þau sem minnst og í sem mestri sátt við nær­sam­fé­lagið.

Rammaáætlun í algjörum hnút

Í haust verða fimm ár liðin síðan að verk­efn­is­stjórn 3. áfanga ramma­á­ætl­unar skil­aði sínum loka­til­lögum um flokkun virkj­ana­kosta til umhverf­is­ráð­herra. Þær voru teknar óbreyttar upp í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð var fram þá um haustið. Sá áfangi hefur hins vegar enn ekki verið afgreiddur á Alþingi en til­lagan var enn á ný lögð fram, óbreytt, í des­em­ber. Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga áætl­un­ar­innar lauk svo störfum í vor og vegna allrar þeirrar óvissu sem skap­ast hefur um ramma­á­ætlun, m.a. vegna tafa á fyrri áfanga, náði hún ekki að ljúka vinnu sinni að fullu. Þess í stað skil­aði hún af sér drögum að til­lögu um flokkun aðeins þrettán virkj­ana­kosta og svæða. Á fjórða tug hug­mynda að vind­orku­virkj­unum bár­ust verk­efn­is­stjórn­inni. „Verk­efn­is­stjórn telur brýnt að sett verði heild­ar­stefna um virkjun vind­orku hér á landi og tekin ígrunduð ákvörðun um hvort afmarka eigi fá vel skil­greind svæði fyrir vind­myllur eða setja því litlar skorður hvar vind­orku­ver fá að rísa. Nú er ein­stakt tæki­færi að setja slíka stefnu áður en fram­kvæmdir hefj­ast víða um land,“ skrif­aði Guðrún Pét­urs­dóttir, for­maður verk­efn­is­stjórn­ar­innar, í til­lögu­drög­unum sem skilað var 1. apríl.

Nú er í und­ir­bún­ingi breyt­ing á lögum um ramma­á­ætlun hvað snertir máls­með­ferð vind­orku. Til­gangur þeirra er að taka af allan vafa um hvort slíkar virkj­anir eigi að fara til með­ferðar í áætl­un­inni. „Þótt vind­ur­inn sé óþrjót­andi er land undir vind­orku­ver það ekki. Landið er hin tak­mark­aða auð­lind í þessu til­felli,“ skrif­aði Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár