Vilja virkja vindinn á Mosfellsheiði

Ef áætl­anir Zephyr Iceland ganga eftir munu 30 vind­myllur, um 200 MW að heild­ar­afli, rísa á Mos­fells­heiði. Fjöl­margar hug­myndir að vind­orku­verum bár­ust verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar en Zephyr telur óljóst að vind­orka eigi þar heima.

Yfirlitsmynd yfir fyrirhugað framkvæmdasvæði. Guli kassinn og blái þríhyrningurinn afmarka svæði 1. og 2. áfanga.
Yfir­lits­mynd yfir fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði. Guli kass­inn og blái þrí­hyrn­ing­ur­inn afmarka svæði 1. og 2. áfanga. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Zephyr Iceland fyr­ir­hugar að reisa vind­myllu­garð á Mos­fells­heiði innan sveit­ar­fé­lag­anna Grímsnes- og Grafn­ings­hrepps og Ölfuss. Landið er þjóð­lenda í eigu rík­is­ins. Um 30 vind­myllur, 150-20 metrar á hæð, yrðu reistar og heild­ar­afl garðs­ins, sem gerður yrði í áföngum, gæti orðið um 200 MW.

Í til­lögu að mats­á­ætlun vegna verk­efn­is­ins, sem lögð var nýverið fram til kynn­ingar, segir að með vind­orku­garði á Mos­fells­heiði sé „m.a. verið að bregð­ast við auk­inni raf­orku­þörf á Íslandi“. Hin fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd er af þeirri stærð­argráðu að hún þarf lögum sam­kvæmt að fara í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum og er til­lagan sem nú er í kynn­ingu hluti af því ferli. Fram­kvæmda­að­ili telur hins vegar óljóst hvort að verk­efnið þurfi að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar þar sem skiptar skoð­anir séu um hvort að vind­orka falli undir lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun. Engu að síður hafi Zephyr skilað hug­mynd að fram­kvæmd­inni til Orku­stofn­unar og að óbreyttu fer hún til umfjöll­unar hjá verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar. Fjöl­margar hug­myndir að vind­orku­verum um allt land hafa borist verk­efn­is­stjórn­inni.

Í til­lögu Zephyr að mats­á­ætlun segir að Mos­fells­heiði sé „talin vera til­val­inn staður fyrir vind­orku­garð“. Á svæð­inu séu hag­stæð vind­skil­yrði, til­tölu­lega ein­falt sé að tengj­ast raf­orku­flutn­ings­kerf­inu, aðgengi að svæð­inu sé með besta móti og tekið fram að svæðið ein­kenn­ist nú þegar af orku­mann­virkjum í formi hita­veitu­lagnar og háspennu­lína. Þá séu nokkrar stærstu jarð­varma­virkj­anir lands­ins í næsta nágrenni.

Hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði er í 300 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Vindafar hefur verið metið út frá sögu­legum gögnum frá næstu veð­ur­stöðvum Veð­ur­stof­unnar en til að stað­festa áætl­aðan vind verða gerðar stað­bundnar mæl­ingar og hafa leyfi feng­ist fyrir upp­setn­ingu mastra með mæli­tækjum á svæð­inu.

Land­notkun á svæð­inu er skil­greind sem „óbyggt svæði“ og því er ljóst að ef setja á þar upp vind­myllu­garð þyrfti að breyta á skipu­lags­á­ætl­un­unum beggja sveit­ar­fé­laga í þá veru að afmarka fyr­ir­hugað virkj­un­ar­svæði sem „iðn­að­ar­svæði“.

Vind­myll­urnar myndu hafa bein áhrif á svæðin sem fara undir myll­urnar sjálfar, á vegi, jarð­strengi, athafna­svæði verk­taka og safn­stöð raf­orku innan svæðis. Leggja þyrfti mal­ar­veg að hverri myllu og jarð­streng eða loft­línu um tíu kíló­metra leið.

Í full­byggðum garði yrðu um 30 vind­myllur, hver 150-200 metrar á hæð. Nokkur fjöll sjást frá fram­kvæmda­svæð­inu og telur fram­kvæmda­að­ili að þau kæmu til með að tak­marka sýn inn á svæðið frá byggð. Er þar helst að nefna Hengil í suð­austri og Esju í norð­vestri. Einnig myndi Grímmans­fell í Mos­fellsbæ skyggja á vind­myll­urnar. Engu að síður myndi hluti af vind­myll­unum sjást úr fjar­lægð, bæði frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og frá þjóð­garð­inum á Þing­völlum.

Meðal þess sem fram­kvæmda­að­ili hyggst gera er að fá fugla­fræð­ing til að ann­ast athug­anir á fugla­lífi á svæð­inu. Í til­lögu að mats­á­ætlun stendur að svæðið sé í dag ekki flokkað sem mik­il­vægt fugla­svæði af Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands og því sé ekki gert ráð fyrir rat­sjár­mæl­ingum til að kort­leggja fugla­lífið. Komi hins vegar í ljós að um svæðið fari margir far­fuglar með hátt vernd­ar­gildi kunni þetta að verða end­ur­skoðað.

Með kynn­ingu á til­lögu að mats­á­ætlun er verið að kalla eftir ábend­ingum um hvað fjalla skuli um í mati á umhverf­is­á­hrifum verk­efn­is­ins. Tillagan var til almennrar kynn­ingar í tvær vikur og rann frestur til athuga­semda út um miðjan októ­ber. Þegar brugð­ist hefur verið við athuga­semdum sem bár­ust verður end­an­leg til­laga að mats­á­ætlun send Skipu­lags­stofnun til ákvörð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár