Afhentu sveitarstjórn 1.709 undirskriftir gegn vindorkuveri

Hval­fjarð­ar­sveit gerir fjöl­margar athuga­semdir við mats­á­ætlun Zephyr Iceland á áform­uðu vind­orku­veri á hæsta fjalli Hval­fjarð­ar­strand­ar­innar. Hún sam­þykkti í vik­unni ein­róma umsögn við mats­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins.

Zephyr Iceland vill reisa 8-12 vindmyllur, sem yrðu líklega 250 metra háar eða hærri, á Brekkukambi í Hvalfjarðarsveit.
Zephyr Iceland vill reisa 8-12 vind­myllur, sem yrðu lík­lega 250 metra háar eða hærri, á Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit. Mynd: Pexels

Oddviti og sveit­ar­stjóri Hval­fjarð­ar­sveitar fengu afhent í gær mót­mæla­skjal gegn vind­orku­veri á Brekku­kambi, und­ir­ritað af 1.709 íbúum, sum­ar­húsa­eig­endum og öðrum velunn­urum sveitar og nátt­úru. Arn­finnur Jónasson, einn þeirra sem staðið hefur að und­ir­skrifta­söfn­un­inni síð­ustu vikur, afhenti und­ir­skrift­irnar og bentu odd­viti og sveit­ar­stjóri við það tæki­færi á að umsögn nefndar umhverfis-, skipu­lags-, nátt­úru­verndar- og land­bún­aðar hefði verið ein­róma sam­þykkt á fundi sveit­ar­stjórnar nú í vik­unni.

Í umsögn­inni, sem er mjög ítar­leg, eru fjöl­margar athuga­semdir gerðar við mats­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr Iceland ehf. um vind­orku­ver sem áformað er í landi Brekku, uppi á hæsta fjalli Hval­fjarð­ar­strand­ar­innar. Verið myndi telja 8-12 risa­stórar vind­myllur sem mögu­lega yrðu 250 metrar eða hærri, skammt frá bæjum og sum­ar­húsa­byggðum en vegna þess í hversu mik­illi hæð stefnt er á að byggja orku­verið og hversu háar myll­urnar yrðu myndi það sjást mjög víða að; úr nær­liggj­andi dölum, frá Þing­völlum og Langjökli, svo nokkur dæmi séu tekin.

[adspot]

Sveit­ar­stjórnin vill mun nákvæm­ari gögn af ýmsum toga um fyr­ir­ætl­an­irnar, telur fjöl­margt vanta upp á, t.d. hvað varðar rann­sóknir á fugla­lífi og veð­ur­fari og mögu­lega ásýnd orku­vers­ins frá mörgum sjón­ar­hornum.

Tugir athuga­semda bár­ust Skipu­lags­stofnun við mats­á­ætl­un­ina í sumar frá fólki sem býr á svæð­inu, ýmist á bújörðum, ferða­þjón­ustu­bæjum eða í frí­stunda­húsum hluta úr ári. Þær eru allar á einn veg: Slá ætti áformin út af borð­inu.

[links]Zephyr Iceland hefur ekki verið í neinum beinum sam­skiptum við sveit­ar­stjórn vegna máls­ins og sagði sveit­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann nýverið að áformin stöng­uð­ust á við gild­andi aðal­skipu­lag, að nýtt aðal­skipu­lag, sem er í vinnslu, gerði ekki ráð fyrir orku­veri á þessum stað og benti enn­fremur á að rík­is­stjórnin yrði að setja ramma um virkjun vinds­ins áður en að ákvarð­anir yrðu teknar um fram­haldið. Sú vinna er í gangi, starfs­hópur hefur verið skip­aður, og á hann að skila til­lögum til stjórn­valda í febr­úar á næsta ári.

Í mats­á­ætlun greinir fram­kvæmda­að­ili frá því hvernig hann ætli sér að haga mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmdar. Í umsögn sveit­ar­fé­laga við mats­á­ætlun skulu koma fram athuga­semdir um hvernig fram­kvæmda­að­ili hyggst vinna að umhverf­is­mat­inu, svo sem um skil­grein­ingu val­kosta, gagna­öflun og úrvinnslu gagna. Einnig, ef á skortir, hvaða atriðum sveit­ar­fé­lagið telur að gera þurfi frek­ari skil eða hafa þurfi sér­stak­lega í huga við umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar.

Í umsögn sveit­ar­fé­lags­ins er farið ræki­lega ofan í mörg atriði og ljóst að ætl­ast er til mun ítar­legri grein­inga og gagna í næsta skrefi umhverf­is­mats en mats­á­ætlun Zephyr gerir ráð fyrir.

Hval­fjarð­ar­sveit áréttar í fyrsta lagi stefnu sveit­ar­fé­lags­ins í aðal­skipu­lagi, þar sem ekki er gert ráð fyrir vind­orku­ver­inu og bendir svo á að í nýju aðal­skipu­lagi sem gilda á til árs­ins 2032 segi m.a.: Utan þétt­býlis verður almennt haldið í dreif­býl­is­yf­ir­bragð byggðar, s.s. eins og að bygg­ingar verði ekki áber­andi í landi vegna stærðar eða hæðar. Enn­fremur komi fram að virkj­anir skulu að öllu jöfnu vera á skil­greindu iðn­að­ar­svæði. Í við­auka eru auk þess sýnd frið­lýst svæði þar sem vind­myllur skulu ekki vera stað­settar og svæði sem þarf að skoða sér­stak­lega, þ.e.a.s. mik­il­væg fugla­svæði og óbyggð víð­erni. „Ekki er gert ráð fyrir iðn­að­ar­svæði á Brekku­kambi,“ segir sveit­ar­fé­lagið. „Svæðið er auk þess í nágrenni við skipu­lagða frí­stunda­byggð, land­bún­að­ar­svæði, hverf­is­vernd­ar­svæði og svæði á B-hluta nátt­úru­minja­skrár. Það er því ljóst að hug­mynd­irnar sem kynntar eru í mats­á­ætl­un­inni myndu kalla á breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Hval­fjarð­ar­sveitar.“

Gögn af Mosfellsheiði ekki nóg

Sveit­ar­stjórnin gerir svo marg­hátt­aðar athuga­semdir við hvernig Zephyr hygg­ist standa að umhverf­is­mat­inu. Í mats­á­ætlun kemur fram að frum­at­hug­anir á veð­ur­fari á Mos­fells­heiði gefi „góðar vís­bend­ingar“ um aðstæður á hinu fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði á Brekku­kambi og því haldið fram, líkt og sveit­ar­stjórnin bendir á umsögn sinni, að góðar líkur séu á því að svip­aðar vind­að­stæður séu á hálend­inu innan Brekku. „Hval­fjarð­ar­sveit telur afar mik­il­vægt að safna raun­gögnum á umræddu fram­kvæmda­svæði, ekki sé full­nægj­andi að styðj­ast við gögn ann­ars staðar frá. Bent er á veð­ur­stöð í landi Þyrils, en þar getur orðið gríð­ar­lega hvasst og vind­hraði þar oft með því mesta á land­inu. Ekki kemur fram í gögnum hvort slíkar aðstæður séu ákjós­an­legar þegar velja skal stað fyrir vind­myllur.“

Einnig kemur fram í mats­á­ætlun að nú þegar liggi veg­slóðar að fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði. Óskar Hvalj­arð­ar­sveit eftir upp­lýs­ingum um hvort sam­þykkis land­eig­enda hefur verið aflað. Varðandi vernd­ar­svæði, vist­kerfi, vot­lendi og vist­gerðir sem hafa mjög hátt vernd­ar­gildi, er ekki ásætt­an­legt að mati Hval­fjarð­ar­sveitar að vísa til þess að nú þegar liggi veg­slóðar um vot­lendið. „Fram­kvæmd­irnar sem fyr­ir­hug­aðar eru í mats­á­ætl­un­inni, eru af þeirri stærð­argráðu að huga þarf vel að verndun við­kvæmra og mik­il­vægra vist­gerða, vist­kerfa og ekki síður dýra­lífs, eins og fugla, en Hval­fjörður er afar mik­il­vægt búsvæði fyrir fugla.“

Þá er minnt á að Ísland sé aðili að Bern­ar­samn­ingnum um verndun villtra plantna og dýra og líf­s­væða í Evrópu. Til við­bótar nefnir sveit­ar­stjórnin í umsögn sinni að í stefnu­mót­unar- og leið­bein­ing­ar­riti Land­verndar um virkjun vind­orku á Íslandi sé lagst gegn því að vind­orku­ver verði reist innan svæða á nátt­úru­minja­skrá.

[adspot]

Sveit­ar­stjórnin gagn­rýnir enn­fremur að Zephyr ætli sér ekki að gera rat­sjár­mæl­ingar á fugla­lífi þar sem svæðið sem reisa á vind­orku­verið á sé ekki flokkað sem mik­il­vægt fugla­svæði. Engu að síður er fjallað um þá stað­reynd í mats­á­ætl­un­inni að Hval­fjörð­ur­inn sjálfur sé vissu­lega mik­il­vægt fugla­svæði.

„Þetta stang­ast á, fuglar eru fær­an­legir og því er nauð­syn­legt m.a. vegna nálægðar við mik­il­vægt fugla­svæði að þessar rat­sjár­mæl­ingar fari fram,“ segir í umsögn sveit­ar­fé­lags­ins.

Sjónrænu áhrif vers­ins eru svo sér­stak­lega tekin fyrir í umsögn­inni. Bent er á að fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði á Brekku­kambi standi í 647 metra hæð og að vind­myll­urnar geti orðið allt að 274 metrar. Því telur sveit­ar­fé­lagið „afar brýnt“ að þessum þáttum séu gerð góð skil við umhverf­is­matið. Mik­il­vægt sé að lögð séu til grund­vallar góð gögn sem auð­veldi fólki að átta sig á umfangi fram­kvæmd­ar­innar út frá þessum sjón­rænu þáttum, en ljóst er að sjón­rænna áhrifa mun gæta langt út fyrir fram­kvæmda­svæðið.

Varðandi sam­ráð og sam­tal við almenn­ing, stað­kunn­uga og hags­muna­að­ila vegna áætl­aðra mynda­töku­staða, leggur sveit­ar­fé­lagið ríka áherslu á slíkt sam­ráð. „Fljótt á litið virð­ist þurfa að fjölga mynda­töku­stöðum vegna sýni­leika­grein­ingar, þar sem sýni­leiki vind­myll­anna er mjög mik­ill vegna hæðar þeirra og hversu hátt fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði liggur.“

Í mats­á­ætlun komi fram að taka eigi myndir til að varpa ljósi á sýni­leik­ann frá sum­ar­húsa­byggð í næsta nágrenni en sveit­ar­stjórnin vill ganga mun lengra og bendir á önnur skipu­lögð frí­stunda­svæði í sveit­ar­fé­lag­inu þar sem áhrifa vind­myllu­garðs­ins gætir, svo sem í Svínadal og jafn­vel víðar. „Áhrif á þessi svæði þarf einnig að meta.“ Að sama skapi þurfi að meta áhrif skuggaflökts á stærra svæði en fram komi í mats­á­ætl­un­inni.

Í kafla um hljóð­vist er talað um að fram­kvæmda­svæðið sé óbyggt. „Það er vissu­lega rétt,“ bendir sveita­fé­lagið á í umsögn sinni, „en áhrif­anna mun gæta í byggð, enda föst búseta og frí­stunda­byggðir í mik­illi nálægð við fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði, eða í um 2 km fjar­lægð. Hval­fjarð­ar­sveit óskar eftir nán­ari upp­lýs­ingum um hljóð­vist á þessu stigi máls og rökum fyrir því að ein­ungis skuli rann­saka hljóð­vist á 1-2 vikna tíma­bili.“

Þá telur sveit­ar­fé­lagið rétt að fast­eigna­eig­endur í nágrenni við fram­kvæmda­svæðið verði skil­greindir sem hags­muna­að­ilar, þótt þeir séu ekki með lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu. Eigi þetta við um sum­ar­húsa­eig­endur og mögu­lega aðra fast­eigna­eig­endur, rekstr­ar­að­ila og fyr­ir­tæki þar sem áhrifa vind­orku­vers­ins myndi gæta.

Skipu­lags­stofnun mun, er allar umsagnir liggja fyrir, gefa álit sitt á mats­á­ætlun Zephyr Iceland um vind­orku­ver á toppi Brekku­kambs, að fengnum við­brögðum fyr­ir­tæk­is­ins við athuga­semdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalfjarðarsveit

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár