Hafa hug á að flytja inn „vandræðasaman“ spilliefnaúrgang til endurvinnslu

Áhugi er á því að end­ur­vinna ker­brot sem falla til við starf­semi álver­anna hér á landi í nýrri verk­smiðju á Grund­ar­tanga. Brotin, sem eru meng­andi spilli­efni, hafa í fleiri ár verið urðuð við Íslands­strendur.

Brotið innan úr kerjum í álver.
Brotið innan úr kerjum í álver.

Félagið Gerosion Ltd. áformar að byggja verk­smiðju til endur- og áfram­vinnslu ker­brota á Grund­ar­tanga í Hval­fjarð­ar­sveit þannig að þau nýt­ist í sem­ents­iðn­aði. Í henni yrðu end­urunnin ker­brot frá inn­lendu álver­unum þremur en hugs­an­lega yrðu einnig flutt inn ker­brot til að full­nýta afkasta­getu verk­smiðj­unnar, reyn­ist það hag­kvæmt. Í dag er minna en helm­ingur allra ker­brota í heim­inum end­urunn­inn og ekk­ert af þeim brotum sem falla til við fram­leiðslu álvera á Íslandi.

„Olnbogabarn“ álframleiðslunnar

„Það er ljóst að bygg­ing umræddrar verk­smiðju fellur ekki að stefnu og fram­tíð­ar­sýn Hval­fjarð­ar­sveitar,“ segir í umsögn sveit­ar­stjórnar við fyr­ir­spurn félags­ins um mats­skyldu til Skipu­lags­stofn­unar. „Það er þó ljóst, að förgun ker­brota er vand­ræða­mál, og má kannski segja að þau séu ákveðið oln­boga­barn þegar kemur að álf­ram­leiðslu í heim­inum. Mögulega er engin aðferð góð við end­ur­vinnslu, urðun eða förgun og því nauð­syn­legt að finna skástu mögu­legu lausn.“

[adspot]

Fram­leiðslu­geta verk­smiðj­unnar er áætlun 30-35 þús­und tonn á ári og kæmi ein afurð úr ferl­inu, svo­kallað HiCal-efni sem notað er í sem­ents­iðn­aði m.a. í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Hjá álver­unum Alcoa Fjarða­áli, Norð­ur­áli og Rio Tinto í Straums­vík falla til um 18-20 þús­und tonn af ker­brotum á ári. Hingað til hafa þau verið urðuð, ann­ars vegar í svoköll­uðum flæði­gryfjum á Grund­ar­tanga og í Straums­vík og hins vegar flutt út til Noregs þar sem þau eru urðuð í gam­alli námu.

Miðað við áform­aða afkasta­getu verk­smiðj­unnar þyrfti að flytja inn umtals­vert magn ker­brota frá öðrum heims­hornum og sömu­leiðis þyrfti að flytja loka­af­urð­ina, HiCal, til sömu mark­aða.

Á heims­vísu falla til í álverum um 1,5 milljón tonna af ker­brotum árlega. Kerbrot eru flokkuð sem spilli­efni sem gerir með­höndlun þeirra erf­iða.

En hvaðan koma þessi ker­brot?

Álver fram­leiða ál með því að raf­greina súrál í raf­grein­ing­ar­kerum. Kerin hafa hins vegar aðeins ákveð­inn líf­tíma, um 4-7 ár. Að þeim tíma loknum eru þau end­ur­fóðruð, ker­brot falla því til þegar fóðr­ingar eru brotnar innan úr þeim. Að með­al­tali falla til 22 kíló af ker­brotum fyrir hvert fram­leitt tonn af áli.

„Sífellt erf­ið­ara er að finna ker­brotum far­veg,“ segir í fyr­ir­spurn Gerosion Ltd. til Skipu­lags­stofn­unar, „og er nú svo komið að Fjarðaál flytur sín ker­brot úr landi til Langöen í Noregi, til urð­unar í gam­alli kalk­námu. Hin tvö álverin urða sín ker­brot og annan úrgang ennþá í flæði­gryfjur í sjó við Íslands­strendur.“

End­ur­vinnslu­ferlið umbreytir ker­brotum, sem eru spilli­efni og falla undir reglur um flutn­ing á hættu­legum efnum, yfir í vöru sem sé ekki spilli­efni og falli því ekki undir flutn­ing slíkra vara, segir í fyr­ir­spurn­inni. „Með þessu verk­efni er verið að taka ábyrgð á úrgangs­málum á Íslandi og stuðlað að verð­mæta­sköpun úr vand­ræða­sömum spilli­efna­úr­gangi. Með end­ur­vinnslu ker­brota minnka urðuð spilli­efni á Íslandi um rúm­lega 70 pró­sent og stórt skref er tekið í átt að hringrás­ar­hag­kerf­inu.“

Eftir frum­skoðun komi iðn­að­ar­svæðið á Grund­ar­tanga helst til greina fyrir verk­smiðj­una.

Tvö álver á undanþágu - bæði á Íslandi

Alu­minium Stewardship Ini­ti­ative (ASI) vottar álf­ram­leiðslu í heim­inum. Til að geta fengið þá vottun má ekki urða iðn­að­ar­úr­gang í flæði­gryfjum. Aðeins tvö álver í heim­inum eru með und­an­þágur frá reglum stað­als­ins: Norðurál og Rio Tinto.

Skað­leg­ustu efnin í ker­brot­unum eru síaníð og flúor-efna­sam­bönd. Komist vatn í ker­brot geta þessi efni losnað út í umhverfið. Einnig geta ker­brot gefið frá sér hættu­legar og sprengifimar gas­teg­undir ef þau blotna. „Af þess­ari ástæðu þarf að vakta umhverfið vel í kringum urðuð ker­brot til þess að tryggja að skað­leg efni kom­ist ekki út í umhverfið,“ er bent á í fyr­ir­spurn Gerosion.

Ker­brotin eru mis­stór er þau koma til end­ur­vinnslu. Þar eru þau smækkuð með glussa­drifnum brjótum sem veldur tals­verðri ryk­myndun. Rykið fer í gegnum rykskiljur og síur. Því er svo safnað saman og nýtt í HiCal-afurð­ina.

Þegar búið er að smækka brotin eru þau flutt í ofn þar sem þau eru með­höndluð við 600-800 gráðu hita. Við þetta mynd­ast koltví­sýr­ingur og köfn­un­ar­efni.

Ker­brotin úr álver­unum yrðu flutt með vöru­bílum að verk­smiðj­unni og afurðin úr landi með skipum frá Grund­ar­tanga­höfn.

„Ef af fram­kvæmd­inni verður mun Norðurál hætta að setja ker­brot í flæði­gryfjur á Grund­ar­tanga­svæð­inu,“ bendir Gerosion enn­fremur á. Flú­or­magn ker­brota sem í dag eru urðuð í flæði­gryfjum er áætlað um 900 tonn á ári. Verk­smiðjan í fullum afköstum myndi losa um 260 kg af flú­ori á ári. Miðað við hámarks­af­köst yrði útlosun brenni­stein­s­t­ví­oxíðs um 2.600 kíló á ári.

„Það er mat fram­kvæmda­að­ila að umhverf­is­á­hrif vegna end­ur­vinnslu á ker­brotum á Grund­ar­tanga geti ekki talist umtals­verð í skiln­ingi laga um umhverf­is­mat fram­kvæmda,“ segir í fyr­ir­spurn félags­ins um mats­skyldu til Skipu­lags­stofn­unar. „Þessi fyr­ir­hug­aða end­ur­vinnsla á ker­brotum mun hafa í för með sér óveru­lega aukn­ingu á losun á bæði flú­ori og brenni­steini á iðn­að­ar­svæð­inu á Grund­ar­tanga. Á móti kemur að með þessu verk­efni er verið að taka ábyrgð á úrgangs­málum á Íslandi.“

Stefna að heimila ekki nýjar verksmiðjur

Í umsögn sinni bendir sveit­ar­stjórn Hval­fjarð­ar­sveitar á að sam­kvæmt núgild­andi aðal­skipu­lagi sé stefnan sú að heim­ila ekki nýjar verk­smiðjur eða iðn­að­ar­fyr­ir­tæki sem hafi í för með sér losun á brenni­stein­s­t­ví­oxíði eða flúor á svæð­inu. Þótt magn flú­ors og brenni­stein­s­t­ví­oxíðs, sem verk­smiðjan myndi losa sam­kvæmt upp­lýs­ingum Ker­end­ur­vinnsl­unnar, séu ekki hlut­falls­lega háar miðað við losun Norð­ur­áls til dæmis „þá er þetta við­bót og því sam­ræm­ist þessi starf­semi ekki aðal­skipu­lagi Hval­fjarð­ar­sveitar“.

Í nýju aðal­skipu­lagi, sem enn er óstað­fest, kemur auk þess fram í almennum skil­málum fyrir iðn­að­ar­svæði að áfram skuli draga úr losun frá meng­andi starf­semi og að ekki verði heimil ný starf­semi sem losi flúor og brenni­stein­s­t­ví­oxíð.

[adspot]

Um ára­bil hafa verið starf­ræktar svo­kall­aðar flæði­gryfjur á Grund­ar­tanga, reknar á grund­velli starfs­leyfa ann­ars vegar Norð­ur­áls og hins vegar Elkem. „Hingað til hefur sú ráð­stöfun hlotið náð hjá eft­ir­lits­að­ilum og Hval­fjarð­ar­sveit verið talin trú um að nálægð við sjó, og það að sjór flæði um ker­brotin, geri það að verkum að hættu­leg efni, eins og sýa­níð, bind­ist þannig að ekki hljót­ist skaði af fyrir líf­ríki sjávar,“ segir í umsögn sveit­ar­stjórn­ar­innar. „Þótt það sé nú lík­lega ekki talin góð ráð­stöfun til langs tíma litið að urðun og land­fyll­ingar sé lausnin, telur Hval­fjarð­ar­sveit rétt að vinna að nán­ari sam­an­burði þess­ara aðferða í tengslum við mat­skyldu­fyr­ir­spurn­ina“.

Þegar sé í gangi vinna við umhverf­is­mat nýrra flæði­gryfja á Grund­ar­tanga og líta þurfi á þessi mál, vega þau og meta út frá kostum og göllum, í sam­hengi. Meta þurfi allar aðferðir sem mögu­legar eru við með­höndlun ker­brota og end­ur­vinnslu á þeim, hvernig þær hafi reynst og hvað kæmi best út fyrir Ísland. „Það virð­ist jú ekki vera mikil fram­tíð­ar­sýn í því að urða ker­brot, sér í lagi ef sú aðferð er háð sér­stakri und­an­þágu­beiðni.“

Í nýlegu áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­á­ætlun nýrra flæði­gryfja á Grund­ar­tanga kemur fram að það geti ekki talist æski­leg fram­tíð­ar­sýn Elkem og Norð­ur­áls að ráð­ast ítrekað í gerð slíkra gryfja í nýjum land­fyll­ingum til að losa sig við úrgang frá starf­sem­inni. Stofn­unin telur því brýnt að end­ur­vinnsla ker­brota verði skoðuð.

En eitt af því sem Hval­fjarð­ar­sveit vill fá skýr svör við er hvaðan ker­brotin sem vinna á í ker­end­ur­vinnsl­unni myndu koma. „Fram kemur að afurðin í end­ur­vinnslu­ferl­inu kall­ast HiCal og er notað í ofn­rekstri innan sem­ents­iðn­aðar á mörk­uðum fjarri Íslandi, eða í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Jafn­framt kemur fram að ker­brot frá íslenskum álverum útvega rétt ríf­lega helm­ing þess hrá­efnis sem fyr­ir­huguð verk­smiðja annar. Þá verður restin, til að ná fullum afköstum, inn­flutt ker­brot mögu­lega frá Kína, Indlandi, Rúss­landi eða ann­ars staðar.“

Kerbrot eru flokkuð sem spilli­efni sem gerir með­höndlun þeirra og urðun erf­iða og þau falla undir reglur um flutn­ing á hættu­legum efnum. Hval­fjarð­ar­sveit óskar eftir nán­ari upp­lýs­ingum um afurð­ina, sölu­mögu­leika hennar, hugs­an­lega kaup­endur og verð­mæta­sköpun. Einnig óskar sveit­ar­fé­lagið eftir sam­an­tekt á heild­ar­um­hverf­is­á­hrifum að teknu til­liti til flutn­inga og mark­aða, bæði ker­brot­anna og afurð­ar­innar, svo fram­leiðslan upp­fylli mark­mið um hringrás­ar­hag­kerfið og Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna um að minnka úrgang, auka end­ur­vinnslu, draga úr sóun og stuðla að verð­mæta­sköpun eins og fram kemur í fyr­ir­spurn­inni.

„Það er ljóst að bygg­ing umræddrar verk­smiðju fellur ekki að stefnu og fram­tíð­ar­sýn Hval­fjarð­ar­sveitar og því telur sveit­ar­fé­lagið ekki tíma­bært að svara spurn­ingum um hvaða leyfum fram­kvæmdin er háð. Sé óskað eftir því hvort Hval­fjarð­ar­sveit telji að fram­kvæmdin fari í umhverf­is­mat, þá er það nið­ur­staða sveit­ar­fé­lags­ins að svo sé, í ljósi þess umfangs iðn­aðar sem nú þegar er á Grund­ar­tanga og vegna þeirra atriða sem hér að framan eru talin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalfjarðarsveit

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár