Íslenskir sérhagsmunaaðilar með „erlenda orkurisa í farteskinu“

Þótt ekk­ert vind­orku­ver sé risið hafa áform um fjöl­mörg slík þegar valdið sundr­ungu og deilum innan sam­fé­laga út um landið, segir Andrés Skúlason, verk­efn­is­stjóri hjá Land­vernd. Hann segir vind­orku­fyr­ir­tæki beita miklum þrýst­ingi og jafn­vel blekk­ingum.

Horft niður í Hvalfjörð frá Brekkukambi í Hvalfjarðarsveit. Á fjallinu stendur til að byggja vindorkuver.
Horft niður í Hval­fjörð frá Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit. Á fjall­inu stendur til að byggja vind­orku­ver.

„Það má hverjum sem fylgst hafa með vera ljóst að hafin er mikil her­ferð vind­orku­fyr­ir­tækja á nátt­úru og víð­erni Íslands,“ segir Andrés Skúlason, verk­efn­is­stjóri hjá Land­vernd og fyrr­ver­andi odd­viti í Djúpa­vogs­hreppi og for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Aust­ur­lands. Andrés hefur aflað sér viða­mik­illar þekk­ingar á vind­orku­verum, m.a. frá Noregi, og fylgst vel með fram­komnum áformum hér á landi.

„Brekku­kambur er einmitt dæmi um stað­ar­val sem mun hafa gríð­ar­leg ásýnd­ar­á­hrif auk ann­arra meng­un­ar­þátta,“ skrifar Andrés í ítar­legri umsögn sinni um áformað 50 MW vind­orku­ver með 8-12 vind­myllum á Brekku­kambi, hæsta fjall­inu á Hval­fjarð­ar­strönd. „Svo mik­ill er þrýst­ing­ur­inn frá vind­orku­geir­anum orð­inn að hvorki full­trúar sveit­ar­fé­laga og eða stjórn­völd virð­ast geta staðið með eðli­legum hætti að málum heldur láta undan þrýst­ingi sér­hags­muna á kostnað íslenskrar nátt­úru og almenn­ings í þessu landi.“

Tugir íbúa og sum­ar­húsa­eig­enda gera alvar­legar athuga­semdir við bygg­ingu vind­orku­vers­ins í landi jarð­ar­innar Brekku í Hval­fjarð­ar­sveit. Þá hafa stofn­anir ýmsar athuga­semdir um fyr­ir­ætl­an­irnar, líkt og Kjarninn hefur rakið síð­ustu daga. Umhverf­is­mats­ferli fram­kvæmd­ar­innar er hafið.

[adspot]

„Ísland er í ein­stakri stöðu er varðar orku­öflun og það er eng­inn að brenna út á tíma hér á landi í þeim efnum,“ segir Andrés um þann æði­bunu­gang sem ein­kenna virð­ist áform í upp­bygg­ingu vind­orku­vera hér á landi. Að mati Andrésar gildir nú aldrei sem áður að vanda sér­stak­lega til verka „og það gera menn ekki á sprett­hlaupi sem nú þó stefnir í“.

34 virkj­un­ar­kostir í vind­orku fóru til umfjöll­unar 4. áfanga ramma­á­ætl­unar á árunum 2020-2021. Verin eru áformuð um allt land, jafnt í nágrenni byggðar sem á fáfarn­ari slóðum á hálendi eða í nágrenni þess. Áhuginn á því að virkja vind­inn hafði því verið ber­sýni­legur í nokkur ár áður en rík­is­stjórnin ákvað að setja á lagg­irnar starfs­hóp til að skapa ramma um slíka orku­nýt­ingu. Hópurinn á að skila af sér til­lögum í febr­úar á næsta ári.

[links]„Það er kunn­ugra en frá þurfi að segja að nú um stundir hag­nýtir orku­geir­inn sér upp­lýs­inga­óreið­una um orku­málin og sækir fram sem aldrei fyrr í nafni orku­skipta,“ segir Andrés. Fámennur hópur sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa ásamt full­trúum vind­orku­fyr­ir­tækja með stórar verk­fræði­stofur að baki sér hafi þegar valdið „sundr­ung og deilum“ innan sam­fé­laga út um landið. Íbúum smærri sam­fé­laga sé gjarnan stillt upp að vegg og „valtað yfir þá með ósann­gjörnum og ólýð­ræð­is­legum þrýst­ingi“. Andrés segir það rann­sókn­ar­efni að „mis­bjóða íbúum um land allt með þessum hætti“.

Í huga Andrésar sætir það furðu hversu skipu­lags­valdið virð­ist veiga­lítið og lítt áber­andi meðal margra sveit­ar­fé­laga þegar orku­geir­inn mæti í hlað, þá virð­ist öllum prinsippum vikið til hliðar. Sífellt auknum þrýst­ingi hafi verið beitt og hafi hann marg­fald­ast þegar sýnt var loks að setja ætti lög og reglur um vind­orku­geir­ann. „Þá stekkur orku­geir­inn fram á sviðið og setur mál í skipu­lags­ferli og rekur á eftir og telja þannig að þeir séu að styrkja stöðu sína.“ Segir hann þetta svipað og þegar erlend fisk­eld­is­fyr­ir­tæki byrj­uðu að hamstra leyfi til fisk­eldis áður en lög og reglur voru settar um þá starf­semi.

Andrés segir alla umræðu og áætl­anir í kringum vind­orku­ver hér á landi ekki hafa verið í neinum sam­hljómi við þær stað­reyndir sem í ljós eru komnar erlendis um nei­kvæð áhrif vind­orku­vera. „Þessi upp­lýs­inga­óreiða eða öllu heldur skortur á réttum upp­lýs­ingum hefur leitt til þess að orku­geir­inn hefur hag­nýtt sér stöð­una hér­lendis og ríkj­andi stefnu­leysi og þess vegna hafa þeir ein­fald­lega gert eigin áætl­anir með ráðnum verk­fræði­stofum og full­kom­lega van­mátt­ugum sveit­ar­fé­lögum sem trúa því að því er virð­ist að vind­orku­ver séu góð lausn í orku­málum sem þau eru alls ekki.“

Það er fyr­ir­tækið Zephyr Iceland sem áformar að reisa verið á Brekku­kambi. Fjallið er í 647 metra hæð og vind­myll­urnar yrðu um 250 metrar á hæð. Þær munu því sjást mjög víða að.

Gagnrýnir harðlega vinnubrögð móðurfélagsins

Zephyr Iceland er í eigu norska móð­ur­fé­lags­ins Zephyr AS. Andrés segir að það hafi „farið offari“ í sam­skiptum við sam­fé­lög erlendis og brotið á þeim með „alvar­legum afleið­ingum“ fyrir íbúa á við­kom­andi svæðum. Í Noregi hafi til­raunir þeirra með risa­vind­orku­ver valdið marg­vís­legum og alvar­legum meng­un­ar­á­hrifum og sundr­ungu meðal íbúa. „Þau vinnu­brögð sem þar hafa verið við­höfð eru ekki til þess fallin að stuðla að sátt í nokkru sam­fé­lagi. Er þetta það sem Ísland þarf á að halda? Svarið er nei.“

Andrés leggur í umsögn sinni sér­staka áherslu á að íslenskir sér­hags­muna­að­ilar með erlenda orkurisa í fartesk­inu verði ekki látnir kom­ast upp með að leita við­miða um stað­setn­ingar og ásýnd­ar­á­hrif erlendis frá. „Við getum ekki borið okkur saman við aðrar þjóðir og heima­til­búin við­mið í öðrum löndum í ljósi sér­stæðu íslenskrar nátt­úru og lands­lags­heilda,“ skrifar hann. Brekku­kambur í Hval­fjarð­ar­sveit sé gott dæmi um „fyr­ir­séða hrika­lega ásýnd­ar­mengun“.

Losunarbókhald nái yfir allt framleiðsluferlið – líka framleiðslu spaða

Í ljósi „meints áhuga við­kom­andi orku­fyr­ir­tækja á svo­kall­aðri grænni orku“ og með sjálf­bærri virð­is­keðju á öllum stigum máls að best verður skilið þá sé mjög mik­il­vægt að Skipu­lags­tofnun kalli almennt eftir nákvæmu los­un­ar­bók­haldi frá fram­kvæmda­að­ila og það allt frá fyrstu stigum fram­leiðslu mann­virkis og spöðum ásamt með­fylgj­andi fram­leiðslu á margs­konar íhlutum vind­orku­vers­ins.

Andrés bendir á nýjar rann­sóknir sem sýni að gríð­ar­leg örplasts­mengun sé frá spöðum vind­myll­anna. Um sé að ræða „stór­fellda mengun sem vind­orku­fyr­ir­tækin hafa reynt að halda frá allri umræðu með því að kaupa sér­fræð­inga til að skila bein­línis röngum upp­lýs­ingum“. Um bæði risa­stórt nátt­úru­vernd­ar­mál sé að ræða sem og stórt heil­brigð­is­vanda­mál. Eitt þeirra efna sem t.d. er notað í spaða í dag er Bisphenol A sem talið er geta valdið þroska­frá­vikum hjá börnum og hafi, ef það kom­ist inn í lík­ama fólks jafn­vel áhrif á blóð­þrýst­ing þess og þar af leið­andi ýmsa sjúk­dóma.

Mikil veðrun í íslensku veðurfari

„Ef magn Bisphenol A er eitt­hvað nálægt þeirri stærð­argráðu sem kemur fram í skýrsl­unni að sé í vind­myllu­spöðum er ljóst að vind­orku­fram­leið­endur eru að halda gríð­ar­lega mik­il­vægum og alvar­legum upp­lýs­ingum leyndum fyrir eft­ir­lits­að­ilum,“ skrifar Andrés í umsögn sinni. Skipu­lags­stofnun verði ein­fald­lega að fá út úr þessum þáttum skorið. „Ýmislegt bendir til þess að Ísland henti einmitt mjög illa vegna vind­orku­örplasts­meng­unar vegna úrkomu í formi bæði rign­ingar og élja­gangs, ísingar og fleiri veðra­brigða sem auka slit á spöðum. Brekku­kambur í Hval­fjarð­ar­sveit er sér­stak­lega illa í sveit settur vegna þess­ara áhrifa.“

[adspot]

Talið er að vind­orku­spaðar þurfi yfir­haln­ingu á um það bil 5 ára fresti vegna slits, skrifar Andrés. Heild­ar­líf­tími spað­anna er um 10-15 ár og þá þarf að skipta þeim út og farga – oft­ast urða – með til­heyr­andi nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum. „Öllum þessum nei­kvæðu áhrifum og upp­lýs­ingum hafa þau vind­orku­fyr­ir­tæki sem haldið hafa kynn­ing­ar­fundi hér á landi hrein­lega sleppt að upp­lýsa íbúa um.“ Hann segir ekki ganga að fyr­ir­tæki í meng­andi iðn­aði kom­ist upp með að villa svo mjög fyrir almenn­ingi og stjórn­sýsl­unni einnig.

„Ísland á að sýna meiri metnað en svo að gera meiri kröfur en svo að láta draga sig niður á lægsta plan er varðar umhverf­is­við­mið með því að horfa í gegnum fingur sér í trausti þess að vind­orku­fyr­ir­tækin hafi eft­ir­lit með sjálfum sér og leggi allt um kring mat á eigið ágæti. Vind­orku­geir­inn er ekk­ert öðru­vísi en annar orku­geiri – arð­sem­is­út­reikn­ingar og sér­hags­muna­gæsla vigta þar meira en umhverfi og nátt­úra.“

Andrés segir að „undir engum kring­um­stæðum“ megi gefa afslátt af kröfum er varðar meng­un­ar­þætti. Því verði Skipu­lags­stofnun að gera ítr­ustu kröfur í því „áhlaupi sem hin erlendu vind­orku­fyr­ir­tæki“ séu að gera á auð­lindir Íslend­inga. „Ef áform um vind­orku­ver við Brekku­kamb í Hval­fjarð­ar­sveit verða að veru­leika er ein­sýnt að verið er að fórna hags­munum sam­fé­lags­ins alls fyrir sér­hags­muni.“

Og ef Skipu­lags­stofnun og stjórn­völdum tekst ekki að koma böndum á þessa teg­und orku­fram­leiðslu „mun Ísland standa með þver­klofna þjóð ef gefið verður eftir“.

Ávísun á ófullnægjandi vinnubrögð

Í umsögn Land­verndar á mats­á­ætlun Zephyr Iceland vegna áfor­manna í Hval­fjarð­ar­sveit segir að ljóst sé að margir fjár­sterkir aðilar séu með áform um vind­orku­ver og það skapi bæði þrýst­ing og hættu á að aðilar sem ekki hafa sama fjár­hags­lega bol­magn njóti jafn­ræðis við að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Hlutverk Skipu­lags­stofn­unar og ann­arra yfir­valda sé að tryggja rétt­láta með­ferð og koma í veg fyrir að þrýst­ingi sé beitt frá einka­að­ilum eins og orku­geir­anum.

„Í mörgum til­fellum er um erlend stór­fyr­ir­tæki að ræða og reynslan sýnir að það er mikil hætta á að eðli­legur hluti arðs­ins skili sér hvorki til nær sam­fé­lags­ins né til þjóð­ar­innar. Þeir sem verða fyrir mestu ónæði og tjóni njóta ekki góðs af ávinn­ingi,“ skrifar Ágústa Þ. Jóns­dóttir, vara­for­maður Land­verndar.

Starfs­hópi um vind­orku sem nýlega var skip­aður sé „því miður“ ætlað að vinna flókið við­fangs­efni á óraun­hæfum hraða. „Land­vernd ótt­ast mjög að þetta sé ávísun á ófull­nægj­andi vinnu­brögð með alvar­legum afleið­ingum á kostnað nátt­úru lands­ins og til­heyr­andi klofn­ingi meðal sam­fé­laga vítt og breytt um landið af áður óþekktri stærð­argráðu.“

Stjórn Land­verndar telur skyn­sam­legt að leggja öll áform um vind­orku­ver á ís þar til nið­ur­staða starfs­hóps­ins liggur fyrir og afstaða hefur verið tekin til hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár