Segir núverandi ástand bitna mest á jaðarhópum en ekki banka­mönnum á „kóka­ín-djamm­inu“

Fyrir liggur að frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta verður ekki á dag­skrá þings­ins á þessu miss­eri. Þing­maður Pírata gagn­rýnir þá ákvörðun harð­lega.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Heil­brigð­is­ráð­herra er búinn að fella niður frum­varp sitt um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Ég kann ekki að setja í orð von­brigði mín en langar mest að fara að gráta.“

Þannig hljómar tíst Halldóru Mogensen þing­flokks­for­manns Pírata á Twitter í morgun.

Samkvæmt svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur frum­varpið verið fellt niður af þing­mála­skrá yfir­stand­andi þings. Ástæðan sé sú að ráð­herra ákvað að vinna að frek­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­ars með skil­grein­ingu á hug­tak­inu neyslu­skammtur. Fram kemur hjá ráðu­neyt­inu að settur hafi verið á fót starfs­hópur um verk­efnið sem ráð­herra skip­aði þann 22. febr­úar síð­ast­lið­inn og sé hann tek­inn til starfa.

Skilgreiningin á dagskammti eða neysluskammti sett í reglugerð

„Starfs­hópnum er falið að skil­greina dag­skammt eða neyslu­skammt í tengslum við fram­an­greinda vinnu og er áætlað að setja þá skil­grein­ingu í reglu­gerð sem lögð verður fram með end­ur­bættu frum­varpi. Auk þess verður skil­grein­ingin miðuð við íslenskan raun­veru­leika en í alþjóð­legu sam­ráði, en þegar liggur fyrir í ráðu­neyt­inu vil­yrði frá Global Commisson on Drug Policy um sam­ráð og aðgengi að sér­fræð­ingum sem leitt hafa svip­aða vinnu í öðrum löndum. Þá hefur Rann­sókna­stofa í afbrota­fræði lýst yfir áhuga á að koma að gagna­söfnun meðal fólks sem notar ávana- og fíkni­efni á Íslandi þar sem mark­miðið yrði að not­enda­reynsla og þekk­ing þeirra nýtt­ist til grund­vallar vinnu við skil­grein­ingu á neyslu­skömmtum,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Starfs­hóp­inn skipa þau Helga Sif Frið­jóns­dóttir, sem er for­maður, Bjarni Sig­urðs­son, Björg Þor­kels­dóttir, Guð­mundur Þórir Stein­þórs­son, Kristinn Páll Sig­ur­björns­son, Hulda Elsa Björg­vins­dóttir, Kristín Dav­íðs­dóttir, Karl Steinar Valsson, Sylvía Björg Run­ólfs­dóttir og Rafn M. Jónsson. María Sæm Bjark­ar­dóttir, lög­fræð­ingur í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, er starfs­maður hóps­ins.

Málið drepið í nefnd

Halldóra segir í sam­tali við Kjarnann að þing­menn hafi engar útskýr­ingar fengið í morgun á því af hverju frum­varpið er ekki á þing­mála­skrá.

Hún rifjar upp að Svandís Svav­ars­dóttir fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra hafi sett fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta á síð­asta þingi en við með­ferð máls­ins hafi komið í ljós að ekki var stuðn­ingur við málið innan rík­is­stjórn­ar­innar. „Og þá var málið bara drepið í nefnd.“ Til stóð að Willum Þór Þórsson núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra myndi mæla fyrir frum­varp­inu á ný í febr­úar síð­ast­liðnum en ekki varð af því.

Vont að draga málið á langinn

Halldóra er sjálf fyrsti flutn­ings­maður sam­bæri­legs frum­varps en hún mælti fyrir því í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins. Málið er nú hjá vel­ferð­ar­nefnd og hefur nefndin talað við fyrstu gest­ina en til stendur að tala við fleiri í þess­ari viku. Halldóra segir að henni sé þó sama hver nái að koma mál­inu í gegn – „bara að það kom­ist í gegn“.

Hún segir sem sagt að mikil þörf sé á að frum­varp sem þetta nái fram að ganga. Fólk með fíkni­vanda sé enn að fara á saka­skrá fyrir að bera í sínum fórum neyslu­skammta. Það fari hrein­lega eftir því á hvaða lög­reglu­þjóni það lendir hverju sinni hvort og hvernig því verði refsað.

„Þessi rétt­inda­ó­vissa er svo vond staða og fólk veigrar sér við að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu og sál­fræði­þjón­ustu út af til­kynn­ing­ar­skyldu þar, eins og fram kom í máli gesta sem komu fyrir vel­ferð­ar­nefnd. Þetta er hræði­leg staða sem við erum að setja vímu­efna­neyt­endur í og þetta er skað­leg stefna sem við þurfum að hætta. Það er svo vont þegar verið er að draga þetta á lang­inn.“

Hún segir að svona bitni alltaf á jað­ar­hópum. „Það er ekki verið að taka banka­menn­ina í jakka­föt­unum á kókaín-djamm­inu og leita á þeim og setja á saka­skrá. Þetta eru alltaf jað­ar­hópar – við­kvæm­asta fólkið í sam­fé­lag­inu þar sem refs­ingum er beitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár