Embætti landlæknis styður afglæpavæðingu neysluskammta en kallar eftir heildrænni stefnu

Embætti land­læknis styður frum­varp Halldóru Mogensen, þing­manns Pírata, sem felur í sér afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta en segir í umsögn sinni um breyt­ing­arnar að það sé var­huga­vert að stíga þetta skref án þess að móta heild­ar­stefnu í mála­flokknum.

Frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta var fyrst lagt fram á þingi haustið 2019 af Halldóru Mogensen auk átta annarra þingmanna úr þing­­flokk­um P­írata, Sam­­fylk­ing­­ar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.
Frumvarp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta var fyrst lagt fram á þingi haustið 2019 af Halldóru Mogensen auk átta ann­arra þing­manna úr þing­­flokk­um P­írata, Sam­­fylk­ing­­ar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins. Mynd: Skjáskot/RÚV

Embætti land­læknis seg­ist styðja þá nálgun að að refsa ekki ein­stak­lingum sem glíma við heil­brigð­is­vanda eins og ávana eða fíkn og auka heil­brigð­is­þjón­ustu. Íumsögn sinni um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, sem felur í sér afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta, er stuðn­ing­ur­inn rök­studdur, en á sama tíma bendir emb­ættið á að var­huga­vert sé að stíga skrefið án þess að móta heild­ar­stefnu í mála­flokknum. Sér­fræð­ingar á vegum emb­ætt­is­ins eru reiðu­búnir að vera til ráð­gjafar um þau áform sem fram koma í frum­varp­inu.

Frum­varpið felur í sér breyt­ingu á ákvæði núgild­andi laga um vörslu og með­ferð, „á þann hátt að heim­ila vörslu ávana- og fíkni­efna sem telj­ast til eigin nota“. Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, er flutn­ings­maður frum­varps­ins og var það end­ur­flutt, með breyt­ing­um, í des­em­ber. Svan­dís Svav­ars­dóttir fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra mælti fyrir frum­varpi um þetta efni síð­ast­liðið, sem ekki varð að lög­um. Áður höfðu tvö frum­vörp Halldóru um efnið ekki náð fram að ganga.

Frum­varpið er nú hjá vel­ferð­ar­nefnd og frestur til að skila inn umsögnum um frum­varpið rann út 18. febr­úar. Alls bár­ust 29 umsagnir.

Allar breytingar kalli á heildræna nálgun

Í umsögn sinni ítrekar Embætti land­læknis fyrri afstöðu um að nálg­ast mál­efni þeirra sem eiga í vanda vegna notk­unar eða mis­notk­unar vímu­efna fyrst og fremst sem heil­brigð­is­vanda.

Embættið und­ir­strikar einnig að allar breyt­ingar á mála­flokknum kalli á heild­ræna nálgun og víð­tækt sam­ráð, þar á meðal við félags­mála­yf­ir­völd.

Embættið segir það til bóta að í frum­varp­inu er tekið til­lit til þeirra áhrifa sem breyt­ing­arnar geta haft svo hægt sé að áætla afleið­ingar þeirra. Er það meðal ann­ars gert með að leggja til stofnun starfs­hóps til að fylgj­ast með hugs­an­legum áhrifum og ávinn­ingi breyt­ing­anna.

Afglæpavæðing ekki kraftaverk

Á sama tíma gerir emb­ættið athuga­semdir við að hvergi í frum­varp­inu komi skýrt fram til­laga eða áætlun um auknar for­varnir. Í umsögn­inni er vísað í afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í Portúgal þar sem gerð var lang­tíma­á­ætlun og metn­að­ar­fullar fjár­fest­ingar í heil­brigð­is­þjón­ustu ásamt umfangs­mik­illi heild­rænni stefnu. Vísar emb­ættið í orð Joao Goulao, sem fór fyrir til­lög­unni í Portúgal, sem sagði afglæpa­væð­ingu ekki krafta­verk. „Ef þú gerir aðeins það, þá versnar ástandið“.

[links]Embættið bendir einnig á stuttan und­ir­bún­ings­tíma þar sem lögin eiga að taka gildi 1. júní næst­kom­andi.

Þá leggur emb­ættið til að breyt­ing­arnar verði ekki inn­leiddar nema sem hluti af opin­berri stefnu um mála­flokk­inn, annað hvort í upp­færðri Stefnu í áfengis- og vímu­vörnum, sem rann út árið 2020, eða í nýrri stefnu.

Embættið leggur því til að skip­aður verði hópur sér­fræð­inga sem fer á heild­rænan hátt yfir mála­flokk­inn og skili af sér til­lögum um aðgerðir eða heild­rænni stefnu þar sem fram kemur ítar­leg aðgerða­á­ætlun sem tekur til allra þátta vímu­efna­vand­ans, allt frá for­vörnum, með­ferðar og sam­fé­lags­legrar aðlög­unar. „Þetta verði gert án tafar,“ segir í umsögn emb­ætt­is­ins og eru sér­fræð­ingar þess reiðu­búnir að vera til ráð­gjafar um áformin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár