Fyrsta neyslurýmið á Íslandi endurspegli viðhorfsbreytingu á skaðaminnkun

Ylja, fyrsta neyslu­rýmið á Íslandi, tók til starfa í vik­unni. Verk­efna­stýra hjá Rauða kross­inum segir við­horf til hug­mynda­fræði sem byggir á skaða­minnkun hafa breyst til hins betra og von­ast til að Ylja komi til með að fækka lyfja­tengdum and­látum.

Ylja er fyrsta færanlega neyslurýmið á Íslandi þar sem fólki, 18 ára og eldra, býðst að sprauta sig með vímuefnum í æð í öruggu umhverfi.
Ylja er fyrsta fær­an­lega neyslu­rýmið á Íslandi þar sem fólki, 18 ára og eldra, býðst að sprauta sig með vímu­efnum í æð í öruggu umhverfi.

„Það er stór­kost­leg til­finn­ing. Falleg, góð og hlý til­finn­ing,“ segir Hafrún Elísa Sig­urð­ar­dóttir, verk­efna­stýra Frú Ragn­heiðar hjá Rauða kross­inum, um örugga neyslu­rýmið Ylju sem tók til starfa á fimmtu­dag.

Ylja er fyrsta fær­an­lega neyslu­rýmið á Íslandi þar sem fólki, 18 ára og eldra, býðst að sprauta sig með vímu­efnum í æð í öruggu umhverfi. Úrræðið byggir á hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar, rétt eins og Frú Ragn­heiður sem sett var á lagg­irnar árið 2009. Ylja er frá­brugðin Frú Ragn­heiði að því leyti að um öruggt neyslu­rými er að ræða á meðan Frú Ragn­heiður, sem ekur um á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Suð­ur­nesjum og á Akureyri, sinnir fyrst og fremst heil­brigðis- og nála­skipta­þjón­ustu.

„Þetta er búið að taka smá tíma, að koma öllu af stað,“ segir Hafrún. Samn­ingur vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og Rauða kross­ins um rekstur neyslu­rým­is­ins var sam­þykktur í vel­ferð­ar­ráði á mið­viku­dag og hófst starf­semin dag­inn eftir. Embætti land­læknis gefur út starfs­leyfi vegna rekst­urs­ins og er það í fyrsta sinn sem slíkt leyfi er veitt. Áætlaður rekstr­ar­kostn­aður neyslu­rým­is­ins er um 50 millj­ónir króna á ári en hann greið­ist af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.

Ylja er fær­an­legt neyslu­rými á hjólum og hefur aðstöðu í eldri bif­reið Frú Ragn­heiðar. „Fyrir ári síðan náðum við að safna fyrir nýrri bif­reið fyrir Frú Ragn­heiði þannig við ákváðum að prófa þetta. Verk­efnið er til eins árs og við erum að reyna að kort­leggja þörf­ina fyrir neyslu­rými. Vonandi seinna meir, ef þörfin verður til staðar, verður neyslu­rýmið fært í var­an­legt hús­næði.“

Opið þegar önnur þjónusta er lokuð

Ylja verður opin á milli klukkan 10 og 16 og geta not­endur einnig haft sam­band sím­leiðis á dag­vinnu­tíma í síma 774-2957. „Á þessum tíma eru gisti­skýlin á Lind­ar­götu og Granda lokuð, sem og Konukot. Þá erum við að reyna að koma í veg fyrir að fólk sé úti að nota vímu­efni í æð. Tveir verða á vakt­inni hverju sinni og við verðum stað­sett mið­svæðis en stað­setn­ingin getur verið breyti­leg.“ Leyfið vegna rekst­urs­ins er gefið úr til eins árs en Hafrún segir að lang­tíma­mark­miðið sé að koma Ylju í var­an­legt hús­næði.

Nafnið, Ylja, kemur frá mann­eskju sem hefur nýtt sér þjón­ustu Frú Ragn­heiðar. „Í Frú Ragn­heiði leggjum við mikið upp úr að vera í góðum sam­skiptum við not­endur þjón­ust­unnar og fólki gafst kostur á að skrifa niður hug­myndir á nöfnum fyrir neyslu­rýmið og þetta var eitt af því sem kom upp þar,“ segir Hafrún.

Að hennar mati er það því mjög við­eig­andi að nafnið komi frá not­anda. „Við leggjum upp úr því að þjón­ustan er fyrir þau og þau þurfa að geta sagt okkur frá hvað hentar og hvað hentar ekki og við reynum alltaf reglu­lega að heyra frá þeim hvað þeim finnst virka og leggjum mikið upp úr því.“

Markmiðið að koma í veg fyrir dauðsföll og óafturkræfðan skaða

Hafrún segir Rauða kross­inn og starfs­fólk Frú Ragn­heiðar lengi hafa talað fyrir mik­il­vægi neyslu­rýmis. „Þetta er mjög gott skref sem við erum búin að bíða eftir. Það er munur á verk­efn­unum að því leyti að frú Ragn­heiður heldur áfram í sinni mynd þar sem við komum á stað­inn til fólks sem óskar eftir því en Ylja verður stað­sett mið­svæðis þar sem fólk getur komið til okkar og notað vímu­efni í æð á hlýjum, þurrum og öruggum stað undir leið­sögn starfs­manna. Þar verður alltaf heil­brigð­is­mennt­aður starfs­maður á staðnum sem getur gripið inn í ef þörf er á.

Markmið Ylju, ásamt því að kort­leggja þörf­ina fyrir neyslu­rými, er að tryggja öryggi not­enda þess. „Með þessu úrræði erum við að reyna að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar séu úti að nota vímu­efni í æð í ótryggum aðstæðum og þannig getum við reynt að koma í veg fyrir dauðs­föll og óaft­ur­kræfan skaða,“ segir Hafrún.

Lyfja­tengdum and­látum hefur farið fjölg­andi á Íslandi síð­ast­liðin ár. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr dán­ar­meina­skrá land­læknis voru þau 24 á fyrri helm­ingi síð­asta árs og hafa aldrei verið fleiri. Lyfja­tengd and­lát eru einnig hvergi fleiri á Norð­ur­lönd­unum en hér á landi. Hafrún seg­ist vona að Ylja komi til með að lækka þessa tölu.

„Fólk ætti að opna hjörtun sín og sína meiri skilning“

Hug­mynda­fræði byggð á skaða­minnkun miðar að því að fyr­ir­byggja þann skaða og þá áhættu sem hljót­ast af notkun vímu­efna fremur en að fyr­ir­byggja notk­un­ina sjálfa. Hafrún segir við­mót gagn­vart skaða­minnk­andi úrræði hafi breyst mjög frá því það var fyrst inn­leitt hér á landi fyrir um ára­tug.

„Viðmótið er heldur betur búið að breyt­ast og mér finnst ég alltaf vera að heyra góða hluti um skaða­minnkun og sjá breyt­ingu í sam­fé­lag­inu, fólk er til­búið fyrir skaða­minnk­unar hug­mynda­fræði og til­búið að við­ur­kenna að fólk notar vímu­efni, hvort sem það vilji það eða geti ekki hætt. Ég sé mjög miklar og góðar breyt­ingar í því,“ segir Hafrún.

Neikvætt umtal um þau úrræði sem Rauði kross­inn starf­rækir sem byggja á skaða­minnkun bygg­ist fyrst og fremst á for­dómum að hennar mati. „Fordómar eru fáfræði og hræðsla, það er eðli­legt að vera hræddur við eitt­hvað sem maður þekkir ekki. En fólk ætti að opna hjörtun sín og sína meiri skiln­ing.“

Vonar að afglæpavæðing neysluskammta verði að veruleika

Frumvarp um breyt­ingar á lögum um ávana- og fíkni­efni, sem felur í sér afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta, var lagt fram á Alþingi fyrir jól og er þetta í fjórða sinn sem frum­varp af þessu tagi er til með­ferðar í þing­inu. Hafrún fagnar frum­varp­inu en kallar eftir nán­ari sam­skiptum við þau sem nota fíkni­efni við útfærslu þess.

„Við styðjum afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta og höfum verið að tala mikið fyrir því og vonum inni­lega að þetta frum­varp fari í gegn. Það sem okkur finnst skorta er að rætt sé við þau sem nota vímu­efni og fá þeirra skoðun á því hvernig neyslu­skammtur eigi að vera, fólk sem notar vímu­efni eru mestu sér­fræð­ing­arnir og mér finnst vera mik­ill skortur á því að rætt sé við þau,“ segir Hafrún, sem telur það til hags­bóta að inn­leiða hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar við útfærslu frum­varps­ins um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. „Ég held að það yrði mjög góður ávinn­ingur af því.“

Á þriðja tug umsagna hafa borist um frum­varpið, meðal ann­ars frá Embætti land­læknis sem styður þá nálgun „að refsa ekki ein­stak­lingum sem glíma við heil­brigð­is­vanda eins og ávana eða fíkn“. Sér­fræð­ingar á vegum emb­ætt­is­ins eru reiðu­búnir að vera til ráð­gjafar um þau áform sem fram koma í frum­varp­inu. Rauði kross­inn hefur boðið slíkt hið sama. „Og erum heldur betur til í það, við erum í mjög góðu sam­bandi við not­endur og það er klár­lega eitt­hvað sem hægt væri að gera,“ segir Hafrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rauðikrossinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár