Þurfa 15-20 talsmenn fyrir hælisleitendur

Útlend­inga­stofnun telur þörf 15-20 lög­fræð­ingum til að sinna tals­manna­þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hér á landi. Þjón­ustan var áður hjá Rauða kross­inum en stjórn­völd end­ur­nýj­uðu ekki samn­ing­inn.

Hjá Útlendingastofnun eru nú í vinnslu rúmlega 500 umsóknir um vernd frá umsækjendum sem eiga rétt á þjónustu talsmanns.
Hjá Útlend­inga­stofnun eru nú í vinnslu rúm­lega 500 umsóknir um vernd frá umsækj­endum sem eiga rétt á þjón­ustu tals­manns. Mynd: Mannlíf/Ivan Burkni

Sautján lög­fræð­ingar höfðu fyrir helgi sótt um að vera skráðir sem tals­menn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Sextán þeirra hafa sýnt fram á full­nægj­andi hæfni. Útlend­inga­stofnun gerir ráð fyrir að þörf sé á 15-20 tals­mönnum en frá og með næstu mán­aða­mótum rennur út samn­ingur dóms­mála­ráðu­neytis og Útlend­inga­stofn­unar við Rauða kross Íslands sem sinnt hefur tals­manna­þjón­ust­unni, auk fjöl­margra ann­arra verk­efna við hæl­is­leit­endur og flótta­menn, frá árinu 2014.

[adspot]

Rauði kross­inn hafði óskað eftir því að samn­ing­ur­inn yrði end­ur­nýj­aður til eins árs, líkt og heim­ild var fyrir, en dóms­mála­ráðu­neytið ákvað að fara aðra leið. Þjón­ustan var hins vegar ekki boðin út, líkt og rætt hafði verið um í sam­skiptum Rauða kross­ins og ráðu­neyt­is­ins, heldur verður þjón­ustan á hendi ein­stakra lög­fræð­inga.

[links]

Í byrjun mars aug­lýsti Útlend­inga­stofnun eftir lög­fræð­ingum til að sinna þessu hlut­verki. Þurfa þeir að upp­fylla ákveðin skil­yrði mennt­unar sem og hafa reynslu og þekk­ingu á mála­flokknum. Greitt verður sam­kvæmt fyrir fram ákveð­inni verð­skrá.

Sam­kvæmt útlend­inga­lögum ber Útlend­inga­stofnun að tryggja umsækj­endum um alþjóð­lega vernd tals­mann við með­ferð máls hjá stjórn­völd­um. Tals­maður er sá sem talar máli umsækj­anda um alþjóð­lega vernd hér á landi og gætir hags­muna hans við með­ferð máls gagn­vart íslenskum stjórn­völdum á meðan mál hans er til með­ferðar hjá Útlend­inga­stofnun og eftir atvikum kæru­nefnd útlend­inga­mála. Tals­maður sinnir rétt­ar­að­stoð og tals­manna­þjón­ustu vegna umsóknar um alþjóð­lega vernd á lægra og æðra stjórn­sýslu­stigi í sam­ræmi við vilja umsækj­anda. Hlut­verk tals­manns hefst við skipun hans og lýkur við end­an­lega ákvörðun á stjórn­sýslu­stigi.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvernig til­færslu á opnum málum sem lög­fræð­ingar Rauða kross­ins sinna nú verði háttað frá byrjun maí segir að úthlutun nýrra mála til lög­fræði­teymis Rauða kross­ins hafi þegar verið hætt. Það sé gert til að tryggja að þeir hafi tæki­færi til að klára sín mál.

Í þeim málum sem ekki næst að ljúka áður en samn­ing­ur­inn rennur út hafa tals­menn frest út mán­uð­inn til að sinna gagna­öflun og skila grein­ar­gerðum. Umsækj­endum í þeim málum verður síðan skip­aður nýr tals­maður fyrir birt­ingu ákvörð­unar og verður það þá hlut­verk nýs tals­manns að leið­beina umsækj­anda um rétt­indi sín í fram­hald­inu.

Mál á kæru­stigi, þ.e. þau sem send eru kæru­nefnd útlend­inga­mála til ákvörð­unar, verða færð milli tals­manna með sam­bæri­legum hætti.

Rúmlega 500 hælisleitendur

Hjá Útlend­inga­stofnun eru nú í vinnslu rúm­lega 500 umsóknir um vernd frá umsækj­endum sem eiga rétt á þjón­ustu tals­manns, inni í þeirri tölu eru umsækj­endur sem þegar hefur verið úthlutað tals­manni.

Fimmtán lög­fræð­ingum Rauða kross­ins, sem sinntu tals­manna­þjón­ustu hæl­is­leit­enda, var sagt upp störfum er ljóst var að samn­ing­ur­inn við ríkið yrði ekki end­ur­nýj­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár