Öllum lögfræðingum sagt upp – Rauði krossinn telur „erfitt og jafnvel ómögulegt“ að tryggja órofna þjónustu

Margra ára þekk­ing og reynsla gæti glat­ast eftir að dóms­mála­ráðu­neytið ákvað, með stuttum fyr­ir­vara, að fram­lengja ekki samn­ing við Rauða kross­inn um lög­bundna þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd.

Stjórnvöld ákváðu fyrir áratug að fólk sem hér leitaði verndar ætti rétt á ókeypis lögfræðiþjónustu. Sinni Rauði krossinn ekki því hlutverki mun annar aðili gera það.
Stjórn­völd ákváðu fyrir ára­tug að fólk sem hér leit­aði verndar ætti rétt á ókeypis lög­fræði­þjón­ustu. Sinni Rauði kross­inn ekki því hlut­verki mun annar aðili gera það. Mynd: Ivan/Mannlíf

Í kjöl­far ákvörð­unar dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins að fram­lengja ekki samn­ing við Rauða kross­inn um rétt­ar­að­stoð og tals­manna­þjón­ustu fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hefur öllum lög­fræð­ingum félags­ins verið sagt upp störfum. Að jafn­aði starfa fimmtán lög­fræð­ingar hjá Rauða kross­inum á grund­velli samn­ings­ins.

Samn­ing­ur­inn gildir til febr­ú­ar­loka en hægt hefði verið að fram­lengja hann í eitt ár til við­bótar. Ráðu­neytið ákvað hins vegar að fram­lengja hann aðeins í tvo mán­uði sem þýðir að óbreyttu að allir lög­fræð­ingar Rauða kross­ins hætta störfum í lok apríl. Auk þeirra starfa t.d. 45 sjálf­boða­liðar að jafn­aði við þetta til­tekna verk­efni innan Rauða kross­ins en slíkt fyr­ir­komu­lag er aðeins mögu­legt hjá frjálsum félaga­sam­tökum.

[adspot]

Rauði kross­inn er óhagn­að­ar­drifið félag og ber ekki hagnað af verk­efn­inu og hefur félagið bent á að „hag­kvæmni verk­efn­is­ins fyrir stjórn­völd [sé] því ótví­ræð“.

Nú eru tæp­lega 600 ein­stak­lingar í kerf­inu sem not­færa sér þjón­ustu Rauða kross­ins að veru­legu leyti, þar af um 400 umsækj­endur sem enn eiga umsókn um alþjóð­lega vernd til með­ferðar hjá Útlend­inga­stofnun eða kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Í frétt Vísis í gær, þar sem fyrst var greint frá upp­sögnum lög­fræð­ing­anna, var haft eftir Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra að ekki væri víst að þjón­ustan við hæl­is­leit­endur yrði boðin út að nýju.

Eiga rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð

Áratugur er síðan stjórn­völd ákváðu að hæl­is­leit­endur ættu rétt á end­ur­gjalds­lausri lög­fræði­að­stoð og hefur Rauði kross­inn sinnt henni frá árinu 2014 í kjöl­far forút­boðs á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Við þá samn­inga var rætt að þegar Rauði kross­inn myndi hætta verk­efn­inu yrði með góðum fyr­ir­vara hægt að byggja upp kerfi þar sem aðrir aðilar sem kæmu að tals­manna­þjón­ustu gætu stigið inn í. „Sú vinna hefur ekki verið hafin, að minnsta kosti ekki með aðkomu Rauða kross­ins sem býr yfir miklu magni gagn­legra upp­lýs­inga, hefur gagna­banka og verk­ferla sem munu ónýt­ast ef ekki eru gerðar ráð­staf­anir af hálfu ráðu­neyt­is­ins um hvernig skuli byggja upp nýtt kerfi fari svo að Rauði kross­inn muni ekki sinna verk­efn­inu næstu árin,“ sagði í umsögn RKÍ við breytta skipan ráðu­neyta í jan­úar.

Áhyggjur félags­ins snú­ast fyrst og fremst að því að vegna þess skamma tíma sem ætl­aður er til­færslu verk­efn­is­ins til ann­ars aðila verði rof í þjón­ustu við þennan við­kvæma hóp fólks.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur gefið þá skýr­ingu að með til­færslu hluta þjón­ustu við hæl­is­leit­endur til ann­ars ráðu­neytis er ný rík­is­stjórn var mynduð í nóv­em­ber, séu for­sendur samn­ings­ins brostnar og ákvað að fram­lengja ekki samn­ingnum út febr­úar 2023 líkt og heim­ilt var að gera.

Meg­in­mark­mið samn­ings­ins er að tryggja hlut­lausa og óháða rétt­ar­gæslu fyrir alla umsækj­endur þannig að jafn­ræðis er gætt og að allir umsækj­endur fái vand­aða máls­með­ferð. Áður en undir hann var skrifað sáu sjálf­stætt starf­andi lög­menn með mis­mikla þekk­ingu á mál­efnum flótta­fólks um þjón­ust­una sem Útlend­inga­stofnun greiddi fyrir – oft án sam­hengis við eðli og umfang máls. Raunin verð sú að gæði þjón­ust­unnar voru afar mis­mun­andi.

„Forsenda Rauða kross­ins fyrir sam­starf­inu var að sam­hliða starfi Rauða kross­ins yrði unnið að því að betrumbæta máls­með­ferð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, hún stytt á sama tíma og gæði hennar yrðu bætt. Hvort tveggja hefur tek­ist á því tíma­bili sem hér um ræðir líkt og tölur um máls­með­ferð­ar­tíma og við­ur­kenn­ing­ar­hlut­fall umsækj­enda sýna.“

Fókusinn á stjórnarmyndunarviðræður

Í umsögn sinni við breytta skipan ráðu­neyta rakti Rauði kross­inn sam­skipti sín við stjórn­völd í lok síð­asta árs. Í núgild­andi samn­ingi er heim­ild til fram­leng­ingar til eins árs „ef samn­ings­að­ilar hefðu samið um slíkt fyrir lok nóv­em­ber 2021“.

Rauði kross­inn hafði sam­band við dóms­mála­ráðu­neytið þann 3. nóv­em­ber sl. til þess að kanna áform ráðu­neyt­is­ins. „Í því sam­tali greindi Rauði kross­inn frá áhætt­unni sem fylgir óvissu um fram­leng­ingu sem gæti haft þær afleið­ingar að starfs­fólk hyrfi til ann­arra starfa.“

Í svari ráðu­neyt­is­ins sama dag kom m.a. fram að þar sem hvorki væri starf­andi rík­is­stjórn né ráð­herra til þess að bera málið undir væri ekki hægt að svara því hvort samn­ing­ur­inn yrði fram­lengdur. Ráðu­neytið myndi þó í öllu falli láta Rauða kross­inn vita fyrir 1. des­em­ber sl. hvort af fram­leng­ingu yrði svo Rauði kross­inn gæti gert ráð­staf­anir varð­andi starfs­lok starfs­manna sem starfa á grund­velli samn­ings­ins. „Það var ekki gert og í raun barst ekki svar fyrr en Rauði kross­inn innti ráðu­neytið eftir svari með tölvu­pósti þann 2. des­em­ber sl. og þá barst óform­legt munn­legt svar að samn­ing­ur­inn kynni að vera í upp­námi vegna upp­skipt­ingar mála­flokks­ins á milli tveggja ráðu­neyta.“

[adspot]

Skrifleg og form­leg stað­fest­ing þess efnis barst Rauða kross­inum með tölvu­pósti 8. des­em­ber þar sem ráðu­neytið taldi fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar valda for­sendu­bresti samn­ings­ins og þar af leið­andi væri ekki hægt að fram­lengja hann. „Rauði kross­inn telur reyndar óvíst hvort rétt sé að líta svo á að skipt­ing mála­flokks­ins á milli ráðu­neyta geti talist fela í sér breyt­ingar á for­sendum samn­ings­ins enda for­dæmi fyrir því að fleiri en eitt ráðu­neyti komi að sama samn­ingi og ætti íslenska rík­inu að vera fært að upp­fylla skyldur sínar sam­kvæmt samn­ingnum eftir sem áður.“

Vildu tryggja órofna þjónustu

Með hlið­sjón af mik­il­vægi mála­flokks­ins og fjölda opinna mála lagði Rauði kross­inn til­lögu fram í tölvu­pósti 10. des­em­ber þess efnis að núgild­andi samn­ingur við félagið yrði fram­lengdur til loka febr­úar 2023 eins og heim­ilt er að gera. Markmið til­lög­unnar var að tryggja „órofna þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og vand­aða og skil­virka máls­með­ferð“.

Tillagan mið­aði að því að stjórn­völd fengju nægan tíma til að klára fyr­ir­hugað útboðs­ferli, þ.e. að und­ir­búa og fram­kvæma útboð og vinna samn­inga á grund­velli þess ásamt því að und­ir­búa til­færslu opinna mála og verk­efna frá Rauða kross­inum ef ekki yrði samið á ný við félagið.

Til­færsla opinna mála gæti þá haf­ist í haust til að tryggja að Rauði kross­inn gæti gengið frá verk­efn­inu í lok febr­úar 2023, nema að nýr samn­ingur yrði gerður við félagið um áfram­hald­andi þjón­ustu af öðru eða báðum ráðu­neytum. Dóms­mála­ráðu­neytið hafn­aði til­lögu Rauða kross­ins og lagði þess í stað til tveggja mán­aða fram­leng­ingu, þ.e. til loka apríl í ár.

[adspot]

„Rauði kross­inn harmar þá nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins að leggja ein­ungis til tveggja mán­aða fram­leng­ingu á núgild­andi samn­ingi,“ segir í umsögn félags­ins. „Það tólf mán­aða tíma­bil sem Rauði kross­inn lagði til byggir á því mati að sá tími sé nauð­syn­legur til að tryggja fag­lega og vand­aða yfir­færslu verk­efn­is­ins og koma í veg fyrir að sú umfangs­mikla þekk­ing og verð­mæta reynsla glat­ist sem byggð hefur verið upp á und­an­förnum árum. Þó svo að Rauði kross­inn hafi sam­þykkt þá fram­leng­ingu sem ráðu­neytið lagði til telur félagið að erfitt og jafn­vel ómögu­legt verði að tryggja órofna fram­kvæmd þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd með því fyr­ir­komu­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár