Dómsmálaráðherra: Tryggt að ekki verði rof á þjónustu við hælisleitendur

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir að til­kynnt verði í þess­ari viku eða næstu hvernig fyr­ir­komu­lag á lög­bund­inni tals­manna­þjón­ustu við hæl­is­leit­endur verði háttað. Ráðu­neytið ákvað að end­ur­nýja ekki samn­ing við Rauða kross­inn um þjón­ust­una.

Jón Gunnarsson og Helga Vala Helgadóttir
Jón Gunn­ars­son og Helga Vala Helga­dóttir Mynd: Samsett mynd

„Rík­is­stjórn sem talar stöðugt um skil­virkni og mun minna um mildi og mannúð ætlar nú að setja mála­flokk­inn í algjört upp­nám, enda fáir lög­menn sem hafa við­líka þekk­ingu og þeir lög­fræð­ingar sem alfarið hafa helgað sig mála­flokknum síð­ustu ár.“

[links]Þetta sagði Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þar sem hún gerði mál­efni fólks á flótta að umræðu­efni. Vakti hún athygli á því að dóms­mála­ráðu­neytið hefði ákveðið að end­ur­nýja ekki þjón­ustu­samn­ing við Rauða kross Íslands sem sinnt hefur tals­manna­þjón­ustu fyrir þá sem til Íslands leita að vernd. Samn­ing­ur­inn rennur út í lok apríl og hafa for­svars­menn Rauða kross­ins lýst yfir áhyggjum sínum, m.a. í við­tali við Kjarnann, um að rof verði á þjón­ustu við þann við­kvæma hóp sem umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sé.

„Fyrir liggur að máls­með­ferð­ar­tími hefur styst eftir að Rauði kross­inn tók við verk­efn­inu, en það hefur einmitt verið aðal­mark­mið stjórn­valda í mála­flokknum,“ sagði Helga Vala. „Hjá Rauða kross­inum hefur mynd­ast mikil þekk­ing og góð yfir­sýn sem hefur gagn­ast íslenskum stjórn­völdum.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði það rétt að ákveðið hefði verið að end­ur­nýja ekki samn­ing­inn við Rauða kross­inn. Samn­ing­ur­inn taki til bæði félags­þjón­ustu og tals­manna­þjón­ustu og „þær breyt­ingar urðu um ára­mót að félags­þjón­ustan fær­ist yfir í annað ráðu­neyti“.

[adspot]

Við tíma­mót þar sem hlut­verk ráðu­neytis tekur miklum breyt­ingum væri ástæða til að end­ur­skoða það hvernig staðið verður að mála­flokknum. „Það er auð­vitað rang­lega sagt hér að eitt­hvert upp­nám sé í þessum mála­flokki. Við munum vænt­an­lega til­kynna það í þess­ari viku, eða í næstu viku í síð­asta lagi, hvernig staðið verður að þessum málum í fram­tíð­inni. Við munum tryggja að sú lög­bundna þjón­usta sem ráðu­neytið á að veita verði til staðar og það verði ekk­ert rof á henni gagn­vart þeim sem hingað koma.“ Hann sagði í við­tali nýverið að ekki væri víst að þjón­ustan yrði boðin út heldur gæti farið svo að verk­efn­unum yrði deilt til sjálf­stæðra lög­manna eða lög­manns­stofa.

Jón sagði það rétt að málm­eð­ferð­ar­tím­inn hefði styst en að það væri fyrst og fremst út af breyttum vinnu­reglum ráðu­neyt­is­ins við vinnslu umsókna um rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi. „Þess vegna meðal ann­ars hefur máls­með­ferð­ar­tími styst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rauðikrossinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár