„Enn og aftur skal einn viðkvæmasti hópur landsins bíða eftir réttarbót“

Þing­maður Pírata spurði inn­við­a­ráð­herra á Alþingi í dag hvort ekki væri bara best að við­ur­kenna að núver­andi rík­is­stjórn myndi aldrei afglæpa­væða neyslu­skammta? Ráðherra sagði það óþarfi.

Þórhildur Sunnar Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir segir ríkisstjórnina hafa enn eina ferðina „frestað því að afgreiða gríðarlega mikilvægt mannréttindamál, afglæpavæðingu vörslu neysluskammta vímuefna.“
Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir segir rík­is­stjórn­ina hafa enn eina ferð­ina „frestað því að afgreiða gríð­ar­lega mik­il­vægt mann­rétt­inda­mál, afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta vímu­efna.“ Mynd: Bára Huld Beck

„Er ekki bara best, er ekki bara heið­ar­leg­ast, að hætta þessum fyr­ir­slætti og við­ur­kenna ein­fald­lega að þessi rík­is­stjórn mun aldrei afglæpa­væða neyslu­skammta?“ spurði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Spurn­ing­unni beindi hún að inn­við­a­ráð­herra, Sigurði Inga Jóhanns­syni.

Þór­hildur Sunna vís­aði í orð ráð­herra í við­tali við Vísi um helg­ina þar sem hann sagði að bent hafi verið á að það þurfi að vera sterk­ari for­varnir og fleiri úrræði áður en afglæpa­væð­ing neyslu­skammta verði inn­leidd.

Þór­hildur segir rík­is­stjórn­ina hafa enn eina ferð­ina „frestað því að afgreiða gríð­ar­lega mik­il­vægt mann­rétt­inda­mál, afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta vímu­efna.“

Orð ráðherra komu spánskt fyrir sjónir

Frumvarp heil­brigð­is­ráð­herra um aflæpa­væð­ingu neyslu­skammta var fellt niður af þing­mála­skrá yfir­stand­andi þings í síð­ustu viku. Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans er ástæðan sögð sú að ráð­herra ákvað að vinna að frek­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­ars með skil­grein­ingu á hug­tak­inu neyslu­skammt­ur. Fram kemur hjá ráðu­neyt­inu að settur hafi verið á fót starfs­hópur um verk­efnið sem ráð­herra skip­aði þann 22. febr­úar síð­ast­lið­inn og sé hann tek­inn til starfa.

Þór­hildur Sunna segir þau orð Sigurðar Inga að engin úrræði væru til­búin hafa komið henni spánskt fyrir sjónir þar sem heil­brigð­is­ráð­herra sagði ástæðu þess að frum­varpið hefði verið tekið af þing­mála­skrá allt aðra.

[links]„Núna heyrum við afsak­anir í allar áttir um hvers vegna enn og aftur eigi að við­halda refsi­stefnu sem allir virð­ast þó sam­mála um að sé skað­leg og hafi mis­tek­ist. Enn og aftur skal einn við­kvæm­asti hópur lands­ins bíða eftir rétt­ar­bót,“ sagði Þór­hildur Sunna áður en hún spurði inn­við­a­ráð­herra hvort væri ekki „bara heið­ar­leg­ast að hætta þessum fyr­ir­slætti og við­ur­kenna ein­fald­lega að þessi rík­is­stjórn mun aldrei afglæpa­væða neyslu­skammta?“

„Nei, það er, held ég, óþarfi að vera með slíkar yfir­lýs­ingar,“ svar­aði Sigurður Ingi. Hann benti á að hann væri ekki sér­fræð­ingur á þessu sviði en að hann kvaðst styðja Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hund­rað pró­sent.

„Hvað stendur í vegi fyrir að við hættum að refsa veiku fólki?“

Þór­hildur Sunna spurði Sigurð Inga einnig hvar „öll þessi með­ferð­ar­úr­ræði sem hæst­virtur inn­við­a­ráð­herra talar um“ væru og af hverju væri ekki búið að ganga í það? Hún sagði úrræðin sem nú standa til boða vera að refsa ungu fólki. „Úrræðin sem við höfum núna er að koma þeim á saka­skrá. Úrræðin sem við höfum núna við­ur­kennir hæst­virtur ráð­herra sjálfur að virka ekki, við­ur­kennir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn að virka ekki. Hvað stendur í vegi fyrir að við hættum að refsa veiku fólki?“ spurði hún.

Sigurður Ingi sagð­ist vera sam­mála því að ekki hafi gengið sér­stak­lega vel með þá stefnu sem er í þessum málum. Sagði hann Pírata hafa talað um að ekki væri vandað nóg til verla. „Kannski er það það sem við erum að gera núna, að vanda til verka. Ég hef heyrt þing­flokk Pírata öll þessi ár kalla hér á vönduð vinnu­brögð og að tryggja form og ferla þannig að kannski eigum við bara að gera það.“

Afglæpa­væð­ing neyslu­skammta var einnig til umræðu undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Þar sagði Þór­hildur Sunna það óeðli­legt af Sigurði Inga að saka Pírata um óvönduð vinnu­brögð við gerð frum­varps um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta þar sem mikil umæða og vinna hafi farið í málið frá 2015 þegar það var fyrst sett á dag­skrá Alþingis af Pírötum.

„Þau eru ófá málin sem hafa fengið að fara í gegn án þess að vera með nokkrum hætti und­ir­búin. Við erum upp­tekin við það í nefndum þings­ins, á hverjum degi liggur við, að laga illa búin mál aftur og aftur. En þetta mál er búið að vera til umræðu síðan 2015, það liggja að baki mjög ítar­legar grein­ingar og vinna og það er ekki sann­gjarnt gagn­vart þing­inu að segja að það hafi ekki und­ir­búið málið. Þetta er ein­faldur fyr­ir­sláttur“ sagði Þór­hildur Sunna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár