Vandi vímuefnanotenda verði meðhöndlaður í heilbrigðiskerfinu fremur en dómskerfinu

Rauði kross­inn styður þær breyt­ingar sem lagðar eru fram í frum­varpi til laga um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta og segir laga­setn­ing­una styðja við upp­setn­ingu og þróun skaða­minnk­andi þjón­ustu. Þetta er í fjórða sinn sem slíkt frum­varp er lagt fram.

Frú Ragnheiður er á meðal skaðaminnkandi verkefna sem Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir. Rauði krossinn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu á kaupum og vörslu neysluskammta.
Frú Ragn­heiður er á meðal skaða­minnk­andi verk­efna sem Rauði kross­inn á Íslandi stendur fyrir. Rauði kross­inn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu á kaupum og vörslu neyslu­skammta. Mynd: Rauði krossinn/Facebook

Afglæpa­væð­ing neyslu­skammta er skref í „átt að gagn­reyndri og mann­úð­legri nálgun gagn­vart vímu­efna­notkun og vímu­efna­vanda með skaða­minnk­andi hug­mynda­fræði að leið­ar­ljósi.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Rauða kross­ins um frum­varp um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, það er, um afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta. Þá styður Rauði kross­inn þá stefnu að með­höndla eigi vanda vímu­efna­not­enda í íslensku sam­fé­lagi í heil­brigð­is­kerf­inu fremur en dóms­kerf­inu.

Þetta er í fjórða sinn sem Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, fer fyrir frum­varpi um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Svan­dís Svav­ars­dóttir lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Hall­dóru og með­flutn­ings­fólks henn­ar.

Frum­varpið varð ekki að lögum en til stóð að end­ur­flytja það með breyt­ingum af Willum Þór Þórs­syni, sem tók við sem heil­brigð­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar í lok síð­asta árs. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­mála­skrá þings sem þá stóð yfir í mars. Í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarn­ans vegna ákvörð­un­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna að frek­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­ars með því að skil­greina hug­takið neyslu­skammt­ur. Starfs­hópur var skip­aður í febr­úar um verk­efnið og hefur hann ekki skilað til­lögum.

[links]Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, er flutn­ings­maður frum­varps­ins ásamt öðrum þing­mönnum Pírata. Guð­brandur Ein­ars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son og Sigmar Guð­munds­son, þing­menn Við­reisnar, eru einnig flutn­ings­menn frum­varps­ins auk Loga Ein­ars­sonar og Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manna Sam­fylk­ingar.

Umræða um hug­mynda­fræði skaða­minn­kunnar og afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta hefur auk­ist síð­ustu ár, umræða þar sem fjallað er um að ekki eigi að refsa fólki fyrir vörslu tak­mark­aðs magns fíkni­efna til eigin nota og að efnin eigi ekki að gera upp­tæk hjá full­orðnu fólki.

Rauði kross­inn hefur boðið upp á skaða­minnk­unar­úr­ræði hér landi frá 2009 þegar Frú Ragn­heið­ur, öruggt neyslu­rými í bíl sem ekur um höf­uð­borg­ar­svæð­ið, tók til starfa. Í mars á þessu ári tók Ylja, fyrsta fær­an­lega neyslu­rýmið til starfa, og sagði verk­efna­stjóri hjá Rauða kross­inum í sam­tali við Kjarn­ann að opnun rým­is­ins end­ur­spegli við­horfs­breyt­ingu á skaða­minnk­un.

Veigra sér við að leita bráðaaðtoðar af ótta við að lögregla geri neysluskammta upptæka

Rauði kross­inn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta og styður þær breyt­ingar í lög­gjöf­inni sem þar eru lagðar fram.

Í umsögn Rauða kross­ins segir að verði frum­varpið að lögum mun aðgengi jað­ar­settra ein­stak­linga, sér­stak­lega þeirra sem glíma við erf­iðan vímu­efna­vanda, að heil­brigðis-, félags­legs- og við­bragðs­þjón­ustu aukast til muna.

Rauði kross­inn telur mik­il­vægt að not­endur vímu­efna hafi greiðan aðgang að heil­brigðis- og vel­ferð­ar­þjón­ustu, án for­dóma og jað­ar­setn­ingar. „Dæmi eru um að ein­stak­lingar sem glíma við vímu­efna­vanda veigri sér við að hringja eftir bráða­að­stoð eða leita sér aðstoðar af ótta við að lög­regla geri neyslu­skammta þeirra upp­tæka og/eða vera hand­tekin vegna ann­ars ólög­mæts athæfis. Getur það jafn­vel átt við í bráða­til­fellum eins og við ofskömmtun á vímu­efnum, sem og í til­vikum heim­il­is­of­beldis eða ann­ars­konar ofbeldis,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn telur að bæði not­endur vímu­efna og starfs­fólk heil­brigðis- og vel­ferð­ar­þjón­ust­unnar þurfi að geta rætt opin­skátt um málin án þess að eiga á hættu að nauð­syn­leg vel­ferðar geti jafn­framt talist refsi­vert athæfi, það er að segja mál tengd neyslu vímu­efna og vit­neskja um neyslu­skammta.

„Það að tryggja að ekki verði hægt að fjar­lægja neyslu­skammta af fólki er mik­il­vægt örygg­is­mál fyrir jað­ar­setta ein­stak­linga og auð­veldar einnig starfs­fólki á vett­vangi að þjón­usta og styðja við ein­stak­linga sem glíma við vímu­efna­vanda út frá þeirra þörfum,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Eykur skaða að taka neysluskammta af fólki sem glímir við vímuefnavanda

Rauði kross­inn á Íslandi hefur fengið „ómet­an­lega og ein­staka inn­sýn í stöðu og veru­leika ein­stak­linga sem glíma við erf­iðan vímu­efna­vanda í gegnum skaða­minnk­un­ar­verk­efni félags­ins,“ að því er fram kemur í umsögn­inni. Rauði kross­inn bendir á að skjól­stæð­ingar þess­ara verk­efna eru alla­jafna veru­lega jað­ar­settir vegna vímu­efna­vand­ans og fjöl­margir þeirra glíma við heim­il­is­leysi.

„Reynsla Rauða kross­ins er sú að þegar lög­regla gerir neyslu­skammta upp­tæka eykst örvænt­ing jað­ar­setts ein­stak­lings með vímu­efna­vanda. Þannig má leiða líkur að því að ef neyslu­skammtur ein­stak­lings er gerður upp­tækur ýti það ein­stak­lingnum enn frekar í átt að ólög­legu athæfi til fjár­mögn­unar á efnum. Staða þess ein­stak­lings verður þannig sífellt verri og vandi hans eykst. Að taka neyslu­skammta af fólki sem glímir við erf­iðan og virkan vímu­efna­vanda getur aukið skaða fyrir ein­stak­ling­inn og sam­fé­lagið sömu­leiðis,“ segir í umsögn­inni.

Á síð­asta ári hafði lög­regla afskipti af 781 ein­stak­lingi vegna neyslu­skammta. Það eru tölu­vert færri en árin á undan. Síðustu ell­efu ár, frá 2010-2021, hefur lög­regla haft afskipti af 7.513 ein­stak­lingum vegna vörslu neyslu­skammta. Flest voru til­fellin árið 2014, 1.246 tals­ins.

Í frum­varp­inu sem nú liggur fyrir Alþingi er lagt til að ráð­herra setji reglu­gerð þar sem kveðið er á um hvaða magn fíkni­efna geti talist til eigin nota og lagt er til að miðað verði við 10 daga neyslu­skammt. Rauði kross­inn bendir á að við­miðið gæti verið óheppi­legt þar sem um háan skammt er að ræða og lagt er til að daga­fjöldi neyslu­skammta verði minnk­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár