Þeim fækkar sem lögregla hefur afskipti af vegna neysluskammta

Lög­reglan hafði afskipti af 781 ein­stak­lingi í fyrra vegna neyslu­skammta og hefur ekki haft afskipti af færri ein­stak­lingum vegna vörslu ávana- og fíkni­efna til eigin nota á síð­ustu tíu árum.

Síðsutu ellefu ár, frá 2010-2021 hafði lögregla afskipti afskipti af 7.513 einstaklingum vegna vörslu neysluskammta. Flest voru tilfellin árið 2014 en fæst í fyrra.
Síðsutu ell­efu ár, frá 2010-2021 hafði lög­regla afskipti afskipti af 7.513 ein­stak­lingum vegna vörslu neyslu­skammta. Flest voru til­fellin árið 2014 en fæst í fyrra. Mynd: Pexels

Lögregla hafði afskipti af 781 ein­stak­lingi í fyrra vegna vörslu ávana- og fíkni­efna til eigin nota. Það er um 37 pró­sent fækkun frá árinu 2014 þegar lög­regla hafði afskipti af 1.246 ein­stak­lingum vegna neyslu­skammta og hafa aldrei verið fleiri.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Diljár Mist Ein­ars­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um vörslu ávana- og fíkni­efna til eigin nota.

Síðsutu ell­efu ár, frá 2010-2021 hafði lög­regla afskipti afskipti af 7.513 ein­stak­lingum vegna vörslu neyslu­skammta. Árið 2010 hafði lög­regla afskipti af 721 ein­stak­ling vegna vörslu ávana- og fíkni­efna til eigin nota. Þeim fjölg­aði svo milli ára, voru 929 árið 2011, 1.016 árið 2012, 1.119 árið 2013 og 1.246 árið 2014. Síðustu sjö ár hefur lög­reglan haft afskipti af færri vegna vörslu ávana- og fíkni­efna til eigin nota og í fyrra var talan aftur komin niður fyrir 800, þegar lög­regla hafði afskipti af 781 ein­stak­lingi.

Lögregla hafði í 40 prósent tilvika afskipti af sömu einstkalingum oftar en einu sinni

Á tíma­bil­inu hafði lög­regla í um 40 pró­sent til­vika afskipti af sömu ein­stak­lingum oftar en einu sinni. Þannig hafði lög­regla afskipti af 18 ein­stak­lingum oftar en 20 sinnum, 147 ein­stak­lingum 10-20 sinnum og 1.453 ein­stak­lingum 3-9 sinnum. Í flestum til­vikum, eða 4.515, hafðu lög­regla einu sinni afskipti af við­kom­andi ein­stak­lingi vegna vörslu neyslu­skammta.

Á árunum 2010-20121 var algeng­asta magn ávana- og fíkni­efnis sem lög­regla hald­lagði í hvert skipti af ein­stak­lingi um eitt gramm. Í flestum til­vikum var um að ræða gras (mari­júana), hass, kókaín og MDMA.

Algengasta sektin 54 þúsund krónur

Af öllum málum síð­ustu ell­efu ára sem skráð eru í kerfi lög­reglu sem varsla eða með­ferð ávana- og fíkni­efna má sjá að í að með­al­tali 37 pró­sent til­vika lauk afgreiðslu brots­ins með ákæru­með­ferð. Í svari dóms­mála­mála­ráð­herra kemur fram að ein ástæða þess getur verið að ein­stak­lingar hafi einnig verið grun­aður um fleiri brot eða ítrekuð brot.

Á síð­ustu ell­efu árum hefur 36 pró­sent brota, að með­al­tali, lokið með sekt­ar­með­ferð. Algeng­asta sekt­ar­upp­hæðin var 54 þús­und krónur. Í svar­inu er bent á að hluti mála frá því í fyrra er enn til afgreiðslu og því megi gera ráð fyrir að ein­hver hluti þeirra mála eigi eftir að fara í ákæru-eða sekt­ar­með­ferð.

Diljá spurði einnig um fjölda færslna í saka­skrá ein­stak­linga voru gerðar frá 2010-2021 vegna vörslu neyslu­skammta en slíkar upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir hjá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara.

Frumvörp um afglæpavæðingu neyrsluskammta hafa ekki náð fram að ganga

Hug­mynda­fræði skaða­minn­kunnar og afglæpa­væð­ing neyslu­skammta hefur verið til umræðu síð­ustu ár, umræða þar sem fjallað er um að ekki eigi að refsa fólki fyrir vörslu tak­mark­aðs magns fíkni­efna til eigin nota og að efnin eigi ekki að gera upp­tæk hjá full­orðnu fólki.

[links]Rauði kross­inn hefur boðið upp á skaða­minnk­unar­úr­ræði hér landi frá 2009 þegar Frú Ragn­heiður, öruggt neyslu­rými í bíl sem ekur um höf­uð­borg­ar­svæðið, tók til starfa. Í mars á þessu ári tók Ylja, fyrsta fær­an­lega neyslu­rýmið til starfa, og sagði verk­efna­stjóri hjá Rauða kross­inum í sam­tali við Kjarnann að opnun rým­is­ins end­ur­spegli við­horfs­breyt­ingu á skaða­minnkun.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, hefur í tvígang lagt fram frum­vörp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta sem hafa ekki náð fram að ganga. Svandís Svav­ars­dóttir lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Halldóru og með­flutn­ings­fólks hennar.

Frum­varpið varð ekki að lögum en til stóð að end­ur­flytja það með breyt­ingum af Willum Þór Þórssyni, sem tók við sem heil­brigð­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar síð­asta haust. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­mála­skrá yfir­stand­andi þings í mars. Í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans vegna ákvörð­un­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna ða frek­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­ars með því að skil­greina hug­takið neyslu­skammtur. Starfs­hópur var skip­aður í febr­úar um verk­efnið og stendur vinna hans nú yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár