Afglæpavæðing neysluskammta er enn á dagskrá hjá ríkisstjórninni

Ekki er staf­krók að finna um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Hins vegar er áætlað að heil­brigð­is­ráð­herra end­ur­flytji frum­varp fyrri heil­brigð­is­ráð­herra um málið, með breyt­ingum, í febr­ú­ar­mán­uði.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Ráðgert er að hann leggi fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta í febrúar.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Ráðgert er að hann leggi fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í febr­úar. Mynd: Bára Huld Beck

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra mun í febr­úar leggja fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, sem felur í sér afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Þetta kemur fram í þing­mála­skrá nýrrar rík­is­stjórnar, sem birt var á vef Alþingis í gær.

Þar segir að frum­varpið feli í sér breyt­ingu á ákvæði núgild­andi laga um vörslu og með­ferð, „á þann hátt að heim­ila vörslu ávana- og fíkni­efna sem telj­ast til eigin nota“. Frum­varpið verður end­ur­flutt með breyt­ingum, en Svandís Svav­ars­dóttir fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra mælti fyrir frum­varpi um þetta efni í fyrra, sem ekki varð að lögum.

Stjórnarliðar ósamstíga um málið í vor

Er síð­asta þing var að klár­ast í júní var búið að taka eina umræðu um málið á þingi og það komið til með­ferðar í vel­ferð­ar­nefnd þings­ins. Þaðan komst það ekki fyrir þing­lok.

Fram í fréttum á þeim tíma að það hefði verið vegna þess að þing­menn úr liði stjórn­ar­flokk­anna hefðu ekki náð saman um málið. Halldóra Mogensen þing­maður Pírata og sagði í sam­tali við Vísi á þeim tíma að það væri „súrt,“ þar sem Pírötum, sem höfðu áður sett málið fram á þingi, hefði verið lofað að stjórn­ar­frum­varp sem leiddi að sama mark­miði yrði klárað á vor­þingi.

Í nýjum stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, sem kynntur var á sunnu­dag, er ekki staf­krók að finna um þetta mál og vakti það upp áhyggjur af afdrifum þessa máls, hjá þeim sem telja þjóð­þrifa­mál að afglæpa­væða neyslu­skammta fíkni­efna.[links]

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, beindi þeirri spurn­ingu á Twitter til ung­liða­hreyf­inga allra stjórn­ar­flokk­anna þriggja hvort þeim „þætti þetta í lagi“ og fékk þau svör til baka frá tveimur af þremur hreyf­ingum að þetta væri „ekki í lagi“.

Ung vinstri græn sögð­ust ætla að nota sinn vett­vang og þrýsta á sitt fólk í þessum mála­flokki, Samband ungra sjálf­stæð­is­manna er „fylgj­andi afglæpa­væð­ingu“ og þykir „leið­in­legt að þetta mál­efni er ekki í stjórn­ar­sátt­mál­anum“ og Samband ungra fram­sókn­ar­manna seg­ist hafa rætt málið mikið og sé með það í mál­efna­nefnd. Líklega verði ályktun þeirra um málið send á þing­flokk­inn er hún verði til­búin.

Sex af hverjum tíu föngum áttu við vímu­efna­vanda að stríða

Umræða um afglæpa­væð­ingu fíkni­efna­neyslu er ekki ný, heldur hefur hún staðið yfir hér­lendis árum sam­an. Árið 2014 gerði Kjarn­inn röð frétta um fang­els­is­mál. Við gerð þeirra fékk hann aðgang að miklu magni af töl­fræði hjá Fang­els­is­­mála­­stofn­un. Á meðal þess sem fram kom var að 30 pró­­sent þeirra sem sátu inni (42 af 139) í íslenskum fang­elsum í nóv­­em­ber 2014 sátu inni fyrir fíkn­i­efna­brot. Það voru nán­­ast jafn margir og sátu inni fyrir kyn­­ferð­is­brot (25) og ofbeld­is­brot (22) til sam­ans. Þegar horft var til allra fanga í afplán­un, líka þeirra sem voru að afplána utan fang­elsa, voru 55 að afplána dóm vegna fíkn­i­efna­brota.

[adspot]

Þann 22. júní 2015 svar­aði Ólöf Nor­dal, þáver­andi inn­­­an­­­rík­­­is­ráð­herra, fyr­ir­­­spurn á Alþingi um afplánun fanga í fang­elsi. Í svari hennar kom fram að tæp­­­lega 60 pró­­­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum eigi við vímu­efna­­­vanda að etja. Þar sagði einnig að rúm­­­lega 70 pró­­­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum ættu sér sögu um slíkan vanda. Svarið byggði á óbirtri rann­­­sókn sér­­­fræð­inga.

Þegar umfjöll­un Kjarn­ans um fang­els­is­mál var end­ur­tekin 2018 kom í ljós að flestir þeirra sem þá afplán­uðu dóma eða höfðu hlotið óskil­orðs­bund­inn dóm gerðu það fyrir fíkni­efna­brot, eða 28 pró­sent fanga. Alls afplán­uðu 16 pró­­sent fanga dóma vegna auð­g­un­­ar­brota og sama hlut­­fall vegna umferð­­ar­laga­brota. Ell­efu pró­­sent fanga afplán­uðu dóma vegna mann­dráps eða til­­raunar til mann­dráps, 13 pró­­sent vegna ofbeld­is­brota og 14 pró­­sent vegna kyn­­ferð­is­brota.

Í skýrslu starfs­hóps sem dóms­mála­ráð­herra fól að skila til­lögum um leiðir til að stytta boð­un­ar­lista til afplán­unar refs­ing­ar, sem birti nið­ur­stöður sínar í fyrra, sagði meðal ann­ars að „hlut­fall fanga fyrir fíkni­efna­brot hefur vaxið mjög í fang­elsum lands­ins á síð­ustu árum. Árið 2019 var hlut­fallið komið í 40 pró­sent allra fanga og vel á annað hund­rað afplán­aði dóm fyrir brot af því tagi. Í lok síð­ustu aldar sátu ein­ungis innan við tíu pró­sent fanga í fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár