Biden reynist auðveldara að hækka fyrirtækjaskatta á heimsvísu en heima fyrir

Á sama tíma og G20 ríkin hafa kom­ist að sam­komu­lagi sem markar þátta­skil hvað varðar skatt­lagn­ingu á alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki miðar svip­uðum áformum Banda­ríkja­for­seta lítið sem ekk­ert áfram.

Joe Biden Bandaríkjaforseti á ráðstefnu G20 ríkjanna sem fram fer í Róm um helgina.
Joe Biden Banda­ríkja­for­seti á ráð­stefnu G20 ríkj­anna sem fram fer í Róm um helg­ina. Mynd: EPA

Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, og aðrir leið­togar G20-ríkj­anna hafa kom­ist að sam­komu­lagi um 15 pró­sent lág­marks­skatt á alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki. Sam­komu­lagið var til umfjöll­unar á ráð­stefnu ríkj­anna sem hófst í Róm í dag. Markmið skatt­lagn­ing­ar­innar er að koma í veg fyrir að stór­fyr­ir­tæki á borð við Apple og Bristol Myers Squibb nýti sér skatta­skjól eða „skattaparadísir“ þar sem fyr­ir­tækja­skattar eru lágir og fyr­ir­tækin þurfa lítið annað að gera en að skrá höf­uð­stöðvar sínar í við­kom­andi ríki.

Sam­komu­lagið hefur verið í vinnslu í mörg ár undir hand­leiðslu OECD en um er að ræða stefnu­breyt­ingu og stórt skref í átt að umbótum á alþjóða skatt­kerf­inu og er meðal ann­ars liður í að koma böndum á starf­semi fyr­ir­tækja sem fer að mestu leyti fram á net­inu. Sjö af rík­ustu löndum heims; Banda­ríkin, Bretland, Þýska­land, Frakk­land, Ítalía, Kanada og Japan, und­ir­rit­uðu sam­komu­lagið í sumar en með sam­þykkt­inni á ráð­stefnu G20 ríkj­anna í dag bæt­ast um 130 ríki í hóp­inn. OECD gerir ráð fyrir að sam­komu­lagið leiði til 150 millj­arða doll­ara í alþjóð­legar skatt­tekjur árlega frá fyr­ir­tækjum sem ann­ars geta flúið í skatta­skjól.

„Við höfum kom­ist að sögu­legu sam­komu­lagi um heið­ar­legra og rétt­lát­ara skatt­kerfi,“ sagði Mario Draghi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, eftir und­ir­ritun sam­komu­lags­ins í dag. Svo virð­ist sem víð­tæk sátt leið­tanna 19, auk for­ystu Evr­ópu­sam­bands­ins, sé um sam­komu­lagið.

[links]Blaða­menn New York Times setja ákvörð­un­ina í sam­hengi við þróun skatta­mála í Banda­ríkj­unum undir leið­sögn Biden. Rík­is­stjórn hans lagði til dæmis fram til­lögu um að byrja að skatt­leggja fjár­magnstekjur sem næmu yfir einni milljón banda­ríkja­dala til jafns við launa­tekjur í efsta þrepi, sem myndi þýða að allt að 39,6 eða 43,4 pró­senta skatt á tekjur sem í dag bera 20 pró­sent skatt. Hvaða fyr­ir­tækja­skatta varðar lagði Biden til við þingið að tekju­skattur fyr­ir­tækja hækk­aði upp í 28 pró­sent, en fyr­ir­tækja­skatt­ur­inn í Banda­ríkj­unum er í dag flatur 21 pró­sent skattur af hagn­aði. Hækkunin myndi þannig draga þannig til baka að hluta skatta­lækkun frá for­seta­tíð Donalds Trump, sem lækk­aði hlut­fallið úr 35 pró­sentum í 21.

Engin áform um hækkun fyrirækjaskatts í endurskoðaðri fjárhagsáætlun

Lítið fór fyrir skatta­málum í end­ur­skoð­aðri fjár­hags­á­ætlun, til­raun til að sam­eina demókrata, sem Biden kynnti rétt fyrir brott­för­ina til Rómar. Áætlunin hljóðar upp á 1,75 billjónir banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 225 billjónum króna, og mun upp­hæðin að mestu renna til félags­mála. Ekkert er að finna um hækkun á fyr­ir­tækja­skatti í áætl­un­inni en þess í stað er kynntur til sög­unnar nýr tvenns konar 15 pró­senta lág­marks­skattur. Leggst hann ann­ars vegar á tekjur sem banda­rísk fyr­ir­tæki afla erlendis og hins vegar á hagnað sem stór fyr­ir­tæki skila til hlut­hafa. Í áætl­un­inni er einnig kveðið á um refsi­að­gerðir á fyr­ir­tæki sem starfa í Banda­ríkj­unum en eru með höf­uð­stöðvar í ríkjum sem eru ekki hluti af sam­komu­lag­inu um sam­ræmdan alþjóð­legan fyr­ir­tækja­skatt.

Stjórn Biden telur að með þessum breyt­ingum, auk nokk­urra ann­arra, á skatt­kerf­inu leiði til 350 millj­arða banda­ríkja­dala í skatt­tekjur næstu tíu árin. End­ur­skoðuð fjár­hags­á­ætlun á enn eftir að fara í gegnum þingið og óljóst er hvort Biden hafi meiri­hluta.

G20-ráð­stefn­unni lýkur á morgun og er merki­leg að mörgu leyti að þessu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem leið­tog­arnir hitt­ast eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Þetta er sömu­leiðis í fyrsta sinn sem ráð­stefna ríkj­anna er haldin í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP26) en leið­togar ríkj­anna munu fara rak­leiðis til Glasgow frá Róm á morgun þegar ráð­stefnu G20-ríkj­anna lýkur og COP26 hefst form­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár