Þingmenn VG vilja að hluthafar reikni sér laun fyrir að sjá um fjárfestingar eigin félaga

Fimm þing­menn Vinstri grænna hafa lagt fram laga­frum­varp sem miðar að því að eig­endum félaga sem halda utan um fjár­fest­ing­ar­eignir, t.d. fast­eignir og hluta­bréf, verði gert skylt að greiða sér laun fyrir þá umsýslu.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem allir þingmenn VG sem ekki eru ráðherrar standa að baki.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, sem allir þing­menn VG sem ekki eru ráð­herrar standa að baki. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm þing­menn Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs hafa lagt fram laga­breyt­inga­frum­varp, sem miðar að því að koma í veg fyrir að eig­endur félaga sem stunda fjár­fest­ingar geti kom­ist hjá því að reikna sér end­ur­gjald, laun, fyrir að sýsla með eignir félag­anna, eða þá að þeir ákvarði sér end­ur­gjald sem „er langt undir því sem almennt gæti talist eðli­legt end­ur­gjald fyrir sam­bæri­lega umsjón eigna og fjár­fest­inga í þágu þriðja aðila“.

Þing­menn­irnir telja nauð­syn­legt að kveða skýrar á um skyldu ein­stak­linga til þess að reikna sér end­ur­gjald vegna umsjónar og umsýslu með fjár­fest­ingum í eigin félagi, og er þá helst litið til þeirra sem fara með eign­ar­hald í félögum sem geta talist óvirk í skatta­legu til­liti, að því leyti sem þau greiða hvorki tekju­skatt né trygg­inga­gjald.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi þing­manna VG er vísað til þess að gögn í skýrslu stýri- og sér­fræð­inga­hóps um end­ur­skoðun tekju­skatts og bóta­kerfa hjá ein­stak­lingum og fjöl­skyldum frá 2019 leiði í ljós „tölu­vert ósam­ræmi milli fjölda lög­að­ila í skatt­grunn­skrá og þeirra ein­stak­linga sem gera grein fyrir ein­hvers konar rekstri í skatt­fram­tali sínu“ og að líkur séu á því að umtals­verður fjöldi hafi með höndum starf­semi í svo litlum mæli að hún telj­ist ekki sjálf­stæð sam­kvæmt skil­yrðum fyrir reikn­uðu end­ur­gjaldi.

Einnig velta þing­menn VG því fram í grein­ar­gerð­inni „hvort of stórt hlut­fall rekstr­ar­að­ila í skatt­grunn­skrá sé sam­sett af lög­að­ilum sem hafa lít­inn sem engan rekstr­ar­til­gang“ og vísa til þess að gögn um álagn­ingu tekju­skatts og trygg­inga­gjalds á árunum 2015-2020 sem birt­ast í rann­sókn Sigurðar Jens­sonar gefi til kynna að svo sé. Gögn rann­sóknar Sigurðar sýndu að álagðir skattar á lög­að­ila á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu fóru lækk­andi og að tekju­skattur rekstr­ar­að­ila stóð nán­ast í stað í nafn­verðskrónum á sama tíma og fjöldi rekstr­ar­fram­tala jókst um 20 pró­sent.

„Þá hafa skatt­tekjur á hvern lög­að­ila dreg­ist saman og greiðir 71% rekstr­ar­að­ila engan tekju­skatt, um 55% rekstr­ar­að­ila greiða engin laun og um 42% greiða hvorki tekju­skatt né trygg­inga­gjald. Þessi félög kallar höf­undur „óvirk“ en bendir jafn­framt á að það segi ekki til um fjár­hags­leg umsvif þeirra. Ekki er hægt að nefna reiknað end­ur­gjald og sjálf­stæða starf­semi án þess að víkja sér­stak­lega að þessum þætti,“ segir í grein­ar­gerð þing­manna Vinstri grænna.

Í grein­ar­gerð þing­mann­ana er því svo bætt við að ljóst sé að lög­að­ilar sem stunda ekki hefð­bund­inn atvinnu­rekstur geti „átt miklar eignir og haft umtals­verð fjár­hags­leg umsvif þótt engum skatti sé skilað“ og slík til­vik eigi „til að mynda við þegar ein­stak­lingur sinnir fjár­fest­ingum á vegum lög­að­ila í sinni eigu, þar sem ekki er aug­ljós rekstr­ar­legur til­gangur annar en sá að hafa tekjur af eignum í eigu félags­ins, og má því líta svo á að umsjón manns með þeim lög­að­ila sé í eigin þágu.“

Þing­menn­irnir nefna að þetta geti átt við um umsjón og umsýslu á vegum lög­að­ila vegna eign­ar­halds á fast­eignum, eign­ar­hluta í öðrum félögum og um sölu og kaup hluta­bréfa.

„Rétt er að víkja sér­stak­lega að sölu hluta­bréfa en sölu­hagn­aður vegna þeirra telst frá­drátt­ar­bær sam­kvæmt 9. tölul. a 31. gr. laga um tekju­skatt. Telja má að þau til­vik þar sem sölu­hagn­aður hluta­bréfa er inn­leystur inni í félagi geti leitt til freistni­vanda sem felst í því að eig­endur lög­að­ila nýta óskatt­lagða fjár­muni til kaupa á eignum sem almennt telj­ast per­sónu­bundnar, t.d. fast­eignum eins og ein­býl­is­húsum eða sum­ar­húsum, jörðum og þess háttar, í stað þess að greiða sér út arð,“ segir í grein­ar­gerð þing­manna VG.

Þing­menn­irnir segja að það sé þeirra afstaða að lög­að­ili „taki hvorki ákvarð­anir né hafi umsjón eða umsýslu með þeim atriðum sem nefnd eru í grein­ar­gerð án aðkomu hlut­hafa.“

„Hafi lög­að­ili engan skýran rekstr­ar­til­gang má telja ljóst að sá ein­stak­lingur sem hefur umsjón og umsýslu með þeim lög­að­ila geri svo í eigin þágu. Slíkt útheimtir vinnu af hálfu við­kom­andi og ber honum að reikna sér end­ur­gjald fyrir þá vinnu sem hann innir af hendi í þágu lög­að­il­ans. Til­gangur þess­arar laga­breyt­ingar yrði því að tryggja að maður sem í raun hefur tekjur af umsýslu og utan­um­haldi með lög­að­ila sem heldur utan um eignir, hluta­bréf og önnur félög, og stundar þar með ekki eig­in­legan atvinnu­rekstur, greiði skatta vegna þeirrar vinnu á sam­bæri­legum for­sendum og ef hann væri ráð­inn til hins sama hjá þriðja aðila á grund­velli reglna um reiknað end­ur­gjald,“ segir í grein­ar­gerð þing­mann­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár