Vilja færa 13 milljarða í kjarabætur til almennings með sértækum skattahækkunum

Sam­fylk­ingin kynnti í dag breyt­inga­til­lögur við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar. Flokk­ur­inn leggur til að um 17 millj­arðar króna verði sóttir með sér­tækum skatta­hækk­unum til þess að fjár­magna almennar kjara­bóta­að­gerðir fyrir launa­fólk.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar á blaðamannafundinum í dag.
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á blaða­manna­fund­inum í dag. Mynd: Aðsend

Sam­fylk­ingin kynnti í dag breyt­inga­til­lögur flokks­ins við fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Þær eru bæði á tekju- og útgjalda­hlið­inni og fela í sér útgjalda­auk­andi aðgerðir upp á 13 millj­arða, sem jafn­aðar eru út og gott betur með til­lögum um að sækja allt 17 millj­arða króna með breyt­ingum á skatt­kerf­inu.

Flokk­ur­inn blés til blaða­manna­fundar í dag þar sem Kristrún Frosta­dóttir for­maður flokks­ins og þing­menn­irnir Jóhann Páll Jóhanns­son og Oddný G. Harð­ar­dóttir kynntu það sem flokk­ur­inn leggur til og kallar „kjara­pakka“.

Til­lög­urnar sem kynntar voru á fund­inum eru þær breyt­inga­til­lögur sem Kristrún setti fram í nefnd­ar­á­liti sínu um fjár­laga­frum­varpið í fjár­laga­nefnd, sem birt var á vef Alþingis í dag.

Krónutölugjöld verði lægri, vaxta- og barnabætur styrktar

Á útgjalda­hlið­inni leggur Sam­fylk­ingin við að 13 millj­arðar króna fari í kjara­bætur til handa almenn­ingi, en flokk­ur­inn leggur til að almenn krónu­tölu­gjöld hækki ein­ungis um 2,5 pró­sent í stað 7,7 pró­senta eins og lagt er til af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Kostn­aður við þessa aðgerð er áætl­aður 4 millj­arðir króna. Þá vill flokk­ur­inn hækka hús­næð­is­bætur til leigj­enda um 10 pró­sent og koma á fót tíma­bund­inni leigu­bremsu að danskri og skoskri fyr­ir­mynd.

[adspot]

Til við­bótar vill Sam­fylk­ingin svo hækka vaxta­bætur til milli­tekju­fólks sem býr í eigin hús­næði, með þeim hætti að eigna­skerð­ing­ar­mörk hækki um 50 pró­sent eins og íbúða­verð hefur gert frá árinu 2020. Fram kom í máli Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur að þessi aðgerð kost­aði um 700 millj­ónir króna á árs­grund­velli og kæmi helst til að skila sér til þeirra sem búa einir, eða ein­stæðra for­eldra sem búa í eigin hús­næði.

Einnig vill Sam­fylk­ingin hækka barna­bætur um sem nemur þremur millj­örðum króna, bæði með því að hækka bæði upp­hæð með hverju barni og við­mið­un­ar­mörk barna­bóta. Þá vill Sam­fylk­ingin að stofn­fram­lög til íbúða­upp­bygg­ingar verði tvö­földuð árið 2023, en ekki dregin saman eins og gert er ráð fyrir í áætl­unum stjórn­valda sem nú liggja fyrir þing­inu.

Fjármagnstekjuskattur, hvalrekaskattur á útgerð og bankaskattur hækkaður

Á tekju­öfl­un­ar­hlið­inni leggur Sam­fylk­ingin til að fjár­magnstekju­skattur verði hækk­aður úr 22 pró­sentu­stigum upp í 25 pró­sent. Þessi breyt­ing segir Sam­fylk­ingin að falli nær ein­göngu á tekju­hæstu 10 pró­sent lands­manna og skili um 5 millj­örðum króna í rík­is­sjóð.

Einnig vill flokk­ur­inn loka „ehf.-gat­inu“, og tak­marka mögu­leika fólks til að telja launa­tekjur fram sem fjár­magnstekjur. Í nefnd­ar­á­liti Kristrúnar er þetta nánar útskýrt, og vísað til þess að árið 2019 hafi sér­fræð­inga­hópur um end­ur­skoðun tekju­skatts og bóta­kerfa bent á í skýrslu sinni að víð­tækur mis­brestur væri á því að reglur um reiknað end­ur­gjald væru virtar og ætla mætti að veru­legur hluti atvinnu­tekna væri rang­lega tal­inn fram sem fjár­magnstekjur.

„Hagdeild Alþýðu­sam­bands Íslands bendir á það í nýlegri skýrslu, Skattar og ójöfn­uður: rétt­lát­ara og skil­virkara skatt­kerfi, að með aðgerðum sem tak­marka mögu­leika til tekju­til­flutn­ings megi auka tekjur hins opin­bera um 3–8 millj­arða kr. á ári og að sú skatt­byrði myndi ein­vörð­ungu leggj­ast á tekju­hæstu 10% skatt­greið­enda,“ segir í nefnd­ar­á­liti Kristrúnar, þar sem gert er ráð fyrir að tekju­auki rík­is­sjóðs af þessu myndi nema 4 millj­örðum króna.

Sam­fylk­ingin vill einnig leggja svo­kall­aðan „hval­reka­skatt“ á „metarð­semi stærri útgerða vegna verð­hækk­ana sjáv­ar­af­urða“ sem flokk­ur­inn horfir til að geti orðið 4 millj­arðar króna á næsta ári. Auk þess leggur flokk­ur­inn til að banka­skattur verði hækk­aður að nýju, eða sem nemur fjórum millj­örðum króna.

Í nefnd­ar­á­liti Kristrúnar segir lækkun banka­skatts árið 2019 hafi rýrt tekjur rík­is­sjóðs um 6 millj­arða á sínum tíma, og að ljóst sé að end­ur­heimta þurfi umræddar tekjur að miklu leyti, þar sem þess­ari kostn­að­ar­lækkun bank­anna hafi síð­ast­lið­ins árs að þess­ari „ekki verið skilað áfram til neyt­enda eins og talað var fyrir“.

„Ekkert hefur verið gert af hálfu stjórn­valda til að styrkja sam­keppni á banka­mark­aði á und­an­förnum miss­erum, sem er for­senda þessa að slíkar skatta­lækk­anir skili sér til neyt­enda. [...] Á tímum þar sem kjara­rýrnun heim­ila og almenn­ings er veru­leg er ekki for­svar­an­legt að skilja eftir stóra tekju­pósta þar sem fákeppn­is­renta er til staðar sökum skorts á sam­keppni,“ segir í nefnd­ar­á­liti for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár