Yfir 20 þúsund einstaklingar nýttu sér skattafrádrátt vegna almannaheillaskrár

403 félög eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins í ár, 186 fleiri en í fyrra. Yfir 20 þús­und ein­stak­lingar nýttu sér skatta­frá­drátt vegna greiðslna til félaga á almanna­heilla­skrá á síð­asta ári og nema þær á bil­inu 130 til 192 millj­ónum króna.

Lög sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi í nóvember í fyrra. Síðan þá hafa 403 félög verið samþykkt.
Lög sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi í nóv­em­ber í fyrra. Síðan þá hafa 403 félög verið sam­þykkt. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega 20 þús­und manns nýttu sér skatta­frá­drátt vegna greiðslna til félaga á almanna­heilla­skrá á síð­asta ári. Samtals er um að ræða 416 millj­ónir frá tekju­skatts- og útsvars­stofni og getur end­ur­greiðslan numið á bil­inu 130 til 192 millj­ónum króna, allt eftir því í hvaða skatt­þrepi frá­drátt­ur­inn lendir.

Lög um félög til almanna­heilla sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi 1. nóv­em­ber á síð­asta ári. End­ur­greiðslan nær því aðeins yfir síð­ustu tvo mán­uði síð­asta árs.

[adspot]Lög­að­ilum sem upp­fylla til­tekin skil­yrði er heim­ilt að sækja um skrán­ingu á almanna­heilla­skrá Skatts­ins. Almennt er um að ræða óhagn­að­ar­drifin félög sem í meg­in­dráttum reka ekki atvinnu­starf­semi í skiln­ingi skatta­laga, heldur fyrst og fremst starf­semi með þjóð­fé­lags­legan til­gang og sam­fé­lags­leg mark­mið að leið­ar­ljósi. Meðal félaga sem hlotið hafa sam­þykki á almanna­heilla­skrá eru trú­fé­lög, söfn­uð­ir, íþrótta­fé­lög, björg­un­ar­sveitir og ýmis hjálp­ar­sam­tök og styrkt­ar­fé­lög.

[links]217 félög voru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins í fyrra. Þremur umsóknum var hafnað. 403 félög eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins í ár en þar er einnig að finna félög sem sam­þykkt voru í lok síð­asta árs sem gilda út árið 2022, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum. 16 umsóknir bíða sam­þykktar sem stendur.

101 umsókn hafnað á þessu ári

Það sem af er þessu ári hefur 101 umsókn verið hafnað, þar af eru 45 umsóknir sem bár­ust í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra. Í svari Skatts­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ein­hverjum þess­ara félaga hafi verið hafnað þar sem svar við fyr­ir­spurn rík­is­skatt­stjóra barst ekki. Ef svar hefur borist eftir höfnun hafa félögin sótt um aftur og þá verið sam­þykkt.

Heild­ar­end­ur­greiðsla á síð­asta ári vegna félaga á almanna­heilla­skrá Skatts­ins er ekki ljós þar sem álagn­ing lög­að­ila vegna rekstr­ar­árs­ins 2021 liggur ekki fyrir fyrr en í lok þessa mán­aðar. Ef litið er til álagn­ingar ein­stak­linga vegna árs­ins 2021 nýttu 20.473 ein­stak­lingar sé frá­drátt­inn og drógu, eins og fyrr segir, 416 millj­ónir frá tekju­skatts- og útsvars­stofni sínum. End­ur­greiðslan getur numið á bil­inu 130 til 192 millj­ónum króna, eftir því í hvaða skatt­þrepi frá­drátt­ur­inn lendir.

Áætlað tekjutap ríkissjóðs vegna almannaheillaskrár um 800 milljónir króna á ári

Skatt­ur­inn hefur ekki áætlað hversu há upp­hæðin verður í ár en í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans er vísað í frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

Þar segir að áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs af hækkun heim­ildar lög­að­ila til að draga frá tekjum af atvinnu­rekstri ein­staka gjafir og fram­lög til til­tek­inna aðila sé um 800 millj­ónir króna á ári og áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs af nýrri heim­ild fyrir ein­stak­linga til að draga frá skatt­skyldum tekjum sínum sam­bæri­legar gjafir og fram­lög, miðað við hámarks­fjár­hæð 350 þús­und krónum, sé 500 millj­ónir króna á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

almannaheillaskrá

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár