216 félög á almannaheillaskrá Skattsins – Tæplega 80 umsóknir bíða samþykktar

Tæplega 300 félög hafa sótt um að kom­ast á almanna­heilla­skrá Skatts­ins frá því að opnað var fyrir skrán­ingu í nóv­em­ber. Félög á almanna­heilla­skrá eiga rétt á frá­drætti á skatt­skyldum tekjum vegna gjafa og fram­laga, allt að 350 þús­und krónum á ári.

Félög sem á almannaheillaskrá Skattsins hafa rétt á frádrætti frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga, allt að 350 þúsund krónum á ári.
Félög sem á almanna­heilla­skrá Skatts­ins hafa rétt á frá­drætti frá skatt­skyldum tekjum vegna gjafa og fram­laga, allt að 350 þús­und krónum á ári.

Hvað eiga Skák­deild Breiða­bliks, ADHD sam­tökin, Samband íslenskra kristni­boðs­fé­laga, Raf­í­þrótta­deild Kefla­víkur og Samtökin '78 sam­eig­in­legt? Jú, allt eru þetta félög sem eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins og hafa því rétt á frá­drætti frá skatt­skyldum tekjum vegna gjafa og fram­laga, allt að 350 þús­und krónum á ári.

Með lög­um um félög til almanna­heilla sem sam­þykkt voru á Alþingi á síð­asta ári var heim­ilaður frá­drátt­ur frá skatt­skyld­um tekj­um vegna gjafa og fram­laga til lög­að­ila sem upp­fylla til­tek­in skil­yrði og eru í al­manna­heilla­skrá. Frá­drátt­ur­inn get­ur numið sam­tals 350 þús­und krón­um á alm­an­aks­ári. Tæplega 300 félög hafa skilað inn umsókn á almanna­heilla­skrá Skatts­ins. 216 félög hafa verið sam­þykkt frá því að opnað var fyrir skrán­ingu í lok síð­asta árs og að minnsta kosti 77 umsóknir til við­bótar bíða sam­þykktar.

Við frum­skrán­ingu 1. nóv­em­ber í fyrra voru umsóknir 208 lög­að­ila sam­þykktar. Átta umsóknir til við­bótar hafa verið sam­þykktar og að minnsta kosti 77 umsóknir bíða sam­þykktar sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum.

Kjarninn hefur frá því í des­em­ber óskað eftir upp­lýs­ingum um þær umsóknir sem enn eru í sam­þykkt­ar­ferli en aðeins fengið upp­lýs­ingar um fjölda þeirra, tæp­lega 80 tals­ins, en ekki frá hvers konar félögum umsókn­irnar eru. Umsóknir sem borist hafa eftir ára­mót hafa ekki verið afgreiddar en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum munu sam­þykktar umsóknir sem ber­ast frá 1. jan­úar 2022 fá gild­is­dag­setn­ingu sama dag og umsókn berst.

„Merkileg þáttaskil í þróun samtaka sem vinna að almannaheill“

Lög­að­ilum sem upp­fylla til­tekin skil­yrði er heim­ilt að sækja um skrán­ingu á almanna­heilla­skrá Skatts­ins. Almennt er um að ræða óhagn­að­ar­drifin félög sem í meg­in­dráttum reka ekki atvinnu­starf­semi í skiln­ingi skatta­laga, heldur fyrst og fremst starf­semi með þjóð­fé­lags­legan til­gang og sam­fé­lags­leg mark­mið að leið­ar­ljósi. Meðal félaga sem hlotið hafa sam­þykki á almanna­heilla­skrá eru trú­fé­lög, söfn­uðir, íþrótta­fé­lög, björg­un­ar­sveitir og ýmis hjálp­ar­sam­tök og styrkt­ar­fé­lög. .

Almanna­heill, regn­hlíf­ar­sam­tök frjálsra félaga­sam­taka og sér­eigna­stofn­ana í almanna­þágu, sögðu í til­kynn­ingu í nóv­em­ber þegar lögin voru sam­þykkt að um væri að ræða „merki­leg þátta­skil í þróun sam­taka sem vinna að almanna­heill á Íslandi“. Vonast sam­tökin að lögin muni hafa áhrif til góðs á starf­semi almanna­heilla­sam­taka.

Meðal þeirra skil­yrða sem lög­að­ilar þurfa að upp­fylla til þess að gjafir eða fram­lög til þeirra skapi frá­drátt­ar­rétt hjá gef­anda er að um sé að ræða mann­úðar- og líkn­ar­starf­semi, æsku­lýðs- og menn­ing­ar­mála­starf­semi, starf­semi björg­un­ar­sveita, vís­inda­lega rann­sókn­ar­starf­semi, starf­semi sjálf­stæðra háskóla­sjóða og ann­arra mennta­sjóða, neyt­enda- og for­varna­starf­semi, starf­semi þjóð­kirkj­unnar, þjóð­kirkju­safn­aða og ann­arra skráðra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga. Mót­tak­andi gjafar eða fram­lags þarf að vera skráður í almanna­heilla­skrá þegar gjöf er afhent eða fram­lag veitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

almannaheillaskrá

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár