Tekjutap ríkisins vegna niðurgreiðslu enn fleiri rafbíla gæti orðið 3,8 milljarðar

Að því gefnu að raf­bíla­sala haldi áfram að aukast á næsta ári má áætla að afnám fjölda­marka hvað nið­ur­greiðslur raf­bíla varðar feli í sér 3,8 millj­arða króna tekju­tap fyrir rík­is­sjóð.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ef gert er ráð fyrir því að hlut­deild raf­bíla í inn­flutn­ingi fólks­bif­reiða haldi áfram að aukast á næsta ári má áætla að tekju­tap rík­is­ins vegna breyt­inga sem lagðar hafa verið til af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að nið­ur­greiða kaup á nýjum raf­bílum með skatta­af­sláttum út árið 2023, nemi 3,8 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem lagt var fram á þingi fyrr í vik­unni. Ef frum­varpið verður sam­þykkt óbreytt hvað þetta atriði varðar verður ekki lengur horft til þess að nið­ur­greiða raf­bíla upp að 20 þús­und bíla kvóta, heldur verða nið­ur­greiðslur rík­is­ins á raf­bílum í boði út næsta ár óháð fjölda öku­tækja sem selj­ast. Áætlað er að 20 þús­und bíla kvót­anum verði náð í kringum mitt næsta ár.

Viðbótarívilnanir sem lagðar eru til á þessu ári 9,3-9,5 milljarðar

Það er ekk­ert sér­lega langt síðan ákveðið var að hækka raf­bíla­kvót­ann sem nið­ur­greiddur yrði úr 15 þús­und upp í 20 þús­und, en frum­varp þess efnis var sam­þykkt á vor­dögum. Áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs við að auka kvót­ann var í gögnum frá stjórn­völdum tal­inn liggja á bil­inu 5,5-5,7 millj­örðum króna.

Frá því í upp­hafi þessa árs hafa stjórn­völd því sett fram eða látið verða af áætl­unum um nýjar nið­ur­greiðslur raf­bíla í formi afslátta af virð­is­auka­skatti sem alls fela í sér 9,3-9,5 millj­arða króna tekju­tap fyrir rík­is­sjóð í formi afsláttar af virð­is­auka­skatti.

Skattaí­viln­anir vegna kaupa á hrein­orku­bílum hafa verið til staðar allt frá árinu 2012. Í mars­mán­uði kom fram í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum að frá þeim tíma væri búið að veita alls 12,4 millj­arða króna í skatta­af­slætti vegna kaupa á hrein­orku­bílum, raf­magns- eða vetn­is­bif­reiðum. Þar af námu íviln­an­irnar 5,2 millj­örðum árið 2021.

Til við­bótar höfðu nið­ur­greiðslur vegna tengilt­vinn­bíla numið um 13 millj­örðum á þeim tíma­punki, en afsláttur af VSK þeirra vegna hefur nú runnið sitt skeið.

Unnið að mótun stefnu til framtíðar

Í frum­varpi fjár­mála­ráð­herra eru afnám fjölda­markanna rök­studd með þeim hætti að for­gangs­raða þurfi áherslum og fjár­magni í þær aðgerðir sem skili mestum sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og færa Ísland mark­visst í átt að settum mark­miðum í lofts­lags­málum.

Vísað er til stöðu­skýrslu aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum, sem kom fram í júlí, en þar sagði að tryggja þyrfti að jákvæð þróun í raf­væð­ingu bif­reiða­flot­ans héldi áfram.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að stjórn­völd séu með til skoð­unar hvernig stuðn­ingi þeirra verði háttað á næstu miss­erum vegna orku­skipta í sam­göngum á landi og að sú skoðun bein­ist meðal ann­ars að því „hvernig stuðn­ingi skuli fram haldið vegna kaupa ein­stak­linga á hrein­orku­bif­reiðum, hvernig hvetja skuli bíla­leigur í orku­skipt­unum og hvernig stuðn­ingi við vist­væna þunga­flutn­inga skuli háttað“. Nið­ur­staða þess­arar vinnu á í síð­asta lagi að liggja fyrir í lok árs 2023. Samkvæmt frum­varp­inu þykir rétt að tryggja fyr­ir­sjá­an­leika hvað nið­ur­greiðslur varðar þangað til það hefur verið kynnt.

Þjóðhagslega óhagkvæm loftslagsaðgerð til lengri tíma

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands komst að þeirri nið­ur­stöðu í skýrslu sem birt var í sumar og fjallar um aðgerðir stjórn­valda í lofts­lags­málum, að stuðn­ingur við kaup á raf­magns­bílum væri þjóð­hags­lega óhag­kvæmur.

For­sendur grein­ingar Hag­fræði­stofn­unar hafa reyndar verið gagn­rýndar, en í skýrslu stofn­un­ar­innar var gengið út frá því að áfram yrði haldið að nið­ur­greiða kaup á raf­bílum með sam­bæri­legum hætti og nú er gert allt fram til árs­ins 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár