Óráðlegt að gera ráð fyrir óbreyttum stuðningi hins opinbera við rafbílakaup

Formaður raf­bíla­sam­bands­ins segir eðli­legt að afsláttur af opin­berum gjöldum verði lækk­aður þegar bíl­arnir verða ódýr­ari og að fundin verði sann­gjörn lausn á gjald­heimtu fyrir akstur. Hann gefur lítið fyrir ábata­mat Hag­fræði­stofn­unar á stuðn­ingi við kaup.

Tómas Kristjánsson er formaður Rafbílasambands Íslands.
Tómas Krist­jáns­son er for­maður Raf­bíla­sam­bands Íslands. Mynd: Samsett/Kjarninn

Verði þróun á afslætti til kaupa á raf­magns­bílum með svip­uðum hætti og Raf­bíla­sam­band Íslands sér fyrir sér gæti ábat­inn af stuðn­ingi við kaup á raf­bílum verið jákvæður en ekki nei­kvæður eins og útreikn­ingar Hag­fræði­stofn­unar hafa leitt í ljós. Þetta segir Tómas Krist­jáns­son for­maður Raf­bíla­sam­bands Íslands í sam­tali við Kjarnann. Hann telur eðli­legt að stuðn­ingur í formi afsláttar af virð­is­auka­skatti verði fram­lengdur en að dregið verði úr honum þegar verð raf­bíla lækkar. Hann segir einnig að kíló­metra­gjald geti verið far­sæl lausn til þess að rukka fyrir akstur óháð því hvaða orku­gjafi er not­aður við akst­ur­inn. [links]

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um hefur Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands metið þjóð­hags­legan ábata af sumum þeirra aðgerða sem finna má í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. Meðal þeirra aðgerða sem met­inn var í skýrslu stofn­un­ar­innar var stuðn­ingur við kaup á raf­bílum. Samkvæmt útreikn­ingum stofn­un­ar­innar er sú aðgerð metin þjóð­hags­lega óhag­kvæm og að nettó ábati aðgerð­ar­innar sé nei­kvæður um sem nemur 38 millj­örðum króna til árs­ins 2030 að núvirði.

„Ríkið er ekki að borga með rafbílunum“

Að mati Tómasar er ekki rétt að leggja að jöfnu kostnað ann­ars vegar og svo tekjur sem ríkið lætur eftir í formi afsláttar af opin­berum gjöldum hins vegar. „Það er verið að tala um allan kostn­að­inn sem ríkið þarf að fara út í sem er nátt­úr­lega algjör þvæla, því ríkið er ekki að borga með raf­bíl­unum, ríkið verður af tekjum. Ríkið borgar ekki.“

Hann segir stuðn­ing við raf­bíla­kaup líka vera frá­brugðna öðrum lofts­lags­að­gerðum því þar séu það ein­stak­lingar sem koma í miklu meiri mæli að borð­inu og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar því með allt öðrum hætti heldur en í mörgum öðrum aðgerðum. „Það eru ein­stak­lingar sem ákveða að eyða pen­ing­unum sínum í að kaupa raf­magns­bíl í stað­inn fyrir elds­neyt­is­bíl. Þetta er ekki eins og með mikið af öðrum hlutum sem voru nefndir í skýrsl­unni eins og end­ur­heimt vot­lendis sem hefur ekk­ert með almenn­ing að gera.“

Ekki hægt að gera ráð fyrir óbreyttum stuðningi

Stóra villan í útreikn­ingum Hag­fræði­stofn­unar að mati Tómasar er sú að stofn­unin gerir ráð fyrir því að stuðn­ing­ur­inn verði óbreyttur á því tíma­bili sem horft er til í skýrsl­unni, til árs­ins 2030. [adspot]

Samkvæmt virð­is­auka­skattslögum er virð­is­auka­skattur felldur niður af raf­bílum upp að 1.320 þús­und krónum. Fleiri tak­mark­anir eru þó á nið­ur­fell­ingu virð­is­auka­skatts­ins en til að mynda er kvóti á fjölda þeirra bíla sem má selja með þess­ari nið­ur­fell­ingu, alls 20 þús­und. Heimild til nið­ur­fell­ingar rennur auk þess út í lok árs 2023. Lögin hafa á síð­ustu árum verið upp­færð þannig að tíma­mörk heim­ild­ar­innar hafa verið fram­lengd og við síð­ustu upp­færslu í júní var kvót­inn stækk­aður úr 15 þús­und í 20 þús­und bíla.

Raf­bíla­sam­bandið skil­aði inn umsögn við síð­asta frum­varp um breyt­ingar á lögum um virð­is­auka­skatt þar sem lagt var til að afslátt­ur­inn yrði festur í sessi næstu fjögur árin en svo lagður niður í skrefum til árs­ins 2030.

Vilja framlengingu en segja eðlilegt að afslátturinn lækki

„Miðað við hvernig inn­flutn­ing­ur­inn hefur verið þá verður 20 þús­und bíla múr­inn rof­inn um mitt næsta ár. Ég sé það alveg fyrir mér að rík­is­stjórnin muni fram­lengja þetta eitt­hvað,“ segir Tómas um afslátt­inn af opin­berum gjöldum sem hann vonar að fái fram­leng­ingu.

„Fólk er til­búið til að borga aðeins meira fyrir raf­bíla því sumir telja sig vera að kaupa grænt og aðrir sjá fyrir sér að rekstr­ar­kostn­að­ur­inn sé svo mikið lægri. Fólk er til­búið að kaupa sér dýr­ari bíl því það veit að það borgar sig ann­ars staðar. En ef virð­is­auka­skatt­ur­inn verður rukk­aður upp í topp eftir eitt ár, þá er bíll­inn allt í einu orð­inn 1,5 milljón krónum dýr­ari. Það mun hafa áhrif á nógu marga til þess að það muni stór­lega hægja á eft­ir­spurn fólks í raf­bíla.“

Hann bendir einnig á að eðli­legt sé að afslátt­ur­inn verði lækk­aður þegar verð raf­magns­bíla lækkar. „Eftir fimm til sex ár verður raf­hlaðan orðin svo miklu ódýr­ari heldur en hún hefur verið að inn­kaups­verð á raf­bíl verður komið undir inn­kaups­verð á elds­neyt­is­bílum. Þá er ekki rök­rétt að vera með nið­ur­fell­ingu á virð­is­auka­skatti. Þá þarf ekki þessa ívilnun til þess að jafna leik­inn.“

Fari úr því að vera óhagkvæmust í að verða hagkvæmust

Fari það svo að afslátt­ur­inn muni þró­ast líkt og Tómas og raf­bíla­sam­bandið sér fyrir sér mun það hafa veru­leg áhrif á ábata lofts­lags­að­gerð­ar­innar sem snýr að stuðn­ingi við kaup á raf­bílum, kostn­að­ur­inn á síð­ustu árum tíma­bils­ins sem horft er til mun lækka til muna en ábat­inn mun verða til­tölu­lega óbreyttur. Þannig gæti aðgerðin, þegar upp er staðið, orðið ábata­söm um sem nemur tugum millj­arða í stað þess að hafa í för með sér nettó nei­kvæðan ábata upp á 38 millj­arða eins og var nið­ur­staða Hag­fræði­stofn­unar.

„Það breytir þessu úr því að vera óhag­kvæm­asta leiðin í lofts­lags­málum yfir í að þetta er hag­kvæm­asta leiðin í lofts­lags­málum. Þetta er grund­vall­ar­munur,“ segir Tómas.

Talar ekki fyrir því að rafbílar keyri frítt

Að mati Tómasar er það einnig sann­gjarnt að raf­bíla­eig­endur borgi sinn hlut fyrir akstur, líkt og bíl­stjórar eldsnseyt­is­bíla geri með þeim gjöldum sem lögð eru á bensín og olíu. Raf­bíla­sam­bandið hefur því kallað eftir heild­ar­end­ur­skoðun á skatt­kerf­inu í kringum öll öku­tæki.

„Okkur finnst til dæmis sann­gjarnt að það sé rukkað kíló­metra­gjald eða ein­hver sam­bæri­leg skatt­lagn­ing sem er tengd akstri öku­tækja, alveg sama hvort það sé elds­neyti eða raf­magn. Sér­stak­lega þegar raf­bílar eru komnir í telj­andi hlut­fall á veg­unum. Þá er ekki rök­rétt að þeir séu allir að keyra frítt enn þá, við erum ekki að tala fyrir því,“ segir Tómas Krist­jáns­son, for­maður Raf­bíla­sam­bands Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár