Metnaðarfull áætlun Bidens í loftslagsmálum í uppnámi

Demókratar takast nú á um hvort aðgerða­leysi í lofts­lags­málum muni að end­ingu kosta meira heldur en að taka stór skref í mála­flokknum nú þegar.

Joe Biden ætlaði sér stóra hluti í umhverfis- og velferðarmálum. Nú kann babb að vera komið í bátinn.
Joe Biden ætl­aði sér stóra hluti í umhverfis- og vel­ferð­ar­málum. Nú kann babb að vera komið í bát­inn. Mynd: EPA

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti setti í upp­hafi emb­ætt­is­tíðar sinnar fram metn­að­ar­fulla aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Það sama hefur hann gert í mennta- og heil­brigð­is­málum og fleiri mála­flokkum og til stóð að frum­vörp þar um færu brátt í þing­lega með­ferð.

En þetta kostar sitt. Þingmenn Demókra­ta­flokks­ins spyrja nú hvort að ríki sem þegar er rekið með miklum halla í kjöl­far heims­far­ald­urs hafi efni á því að fjár­magna áætl­anir for­set­ans í umhverfis- og vel­ferð­ar­málum en ekki síður hvort það hafi efni á að gera það ekki.

[adspot]

Áform Bidens í lofts­lags- og vel­ferð­ar­málum eru sann­ar­lega metn­að­ar­full. Hann hefur lagt til að á næstu tíu árum verði 3,5 billjónum doll­ara varið til verk­efna til þess að draga veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, til að lækka kostnað við barna­gæslu, auka aðgengi að háskólum og lækka verð lyf­seð­ils­skyldra lyfja til efna­m­inna fólks auk fleiri atriða. Til að setja þessa upp­hæð í sam­hengi má benda á að búist er við að lands­fram­leiðsla Banda­ríkj­anna í ár nemi um 23 billjónum dala.

New York Times fjallar nú um þessi mál­efni í röð frétta­skýr­inga. Þar kemur m.a. fram að til að fjár­magna lofts­lags- og vel­ferð­ar­pakk­ann, verði skattar á auð­ugt fólk hækk­aðir sem og fyr­ir­tækja­skattar. Þá ætlar hann að bretta upp ermar og taka hart á skattaund­anskotum.

Lykilmálið líklegast úti

Repúblikanar eru þessum áformum mót­fallnir en efa­semdir eru einnig meðal þing­manna demókrata og því er nú reynt að skræla utan af aðgerða­pökk­unum svo koma megi frum­vörpum um þá í gegnum bæði full­trúa­deild Banda­ríkja­þings og öld­unga­deild­ina.

Með þessum mála­miðl­unum er talið að eitt lyk­il­at­riði í lofts­lags­að­gerðum Bidens verði undan að láta. Þar er um að ræða áætl­anir um orku­skiptin – að skipta hratt út kolum og gasi fyrir vind-, sólar- og kjarn­orku.

Og ástæðan fyrir þessum efa­semdum sem upp eru komnar má fyrst og fremst rekja til eins manns: Joe Manchin þriðja, öld­unga­deild­ar­þing­manns demókrata í Vestur-Virginíu.

Flóða­hætta er hvergi meiri í Banda­ríkj­unum en í Vestur-Virginíu sam­kvæmt skýrslu sem gefin var út í síð­ustu viku. Í heimabæ Manchins er t.d. þyrp­ing um 200 húsa á eyri sem áin Buffalo Creek umlykur á þrjá vegu. Þar getur hratt mynd­ast flóða­hætta og síð­ustu miss­eri hafa flóðin orðið tíð­ari. Skýr­ingin er sú að vegna lofts­lags­breyt­inga hitnar and­rúms­loftið meira og í því mynd­ast meiri raki. Þess vegna rignir oftar og meira, ár og lækir flæða yfir bakka sína og jarð­veg­ur­inn verður gegn­sósa. Tekur ekki lengur við. Innviðir eyði­leggj­ast og hol­ræsa­kerfi hafa engan veg­inn undan. Það flæðir inn í kjall­ara húsa og land­brot eykst.

Íbúar í hinni fjöll­óttu Vestur-Virginíu eiga erf­ið­ara með en íbúar ann­arra ríkja þar sem flóða­hætta er vanda­mál að flytja sig um set. Flýja hætt­una þegar hún verður orðin við­var­andi. Ár og lækir fylgja fjöll­unum. Og það getur verið skammt þeirra á milli.

Manchin hefur engu að síður til­kynnt rík­is­stjórn­inni að hann muni ekki styðja hröðu orku­skiptin sem Biden vill ráð­ast í.

En hvers vegna?

Vegna þess að Vestur-Virginía er það ríki Banda­ríkj­anna þar sem mest er fram­leitt af kolum og jarð­gasi. Manchin seg­ist ótt­ast að fyr­ir­ætl­anir Bidens í orku­skiptum muni hafa gríð­ar­lega nei­kvæð efna­hags­leg áhrif í rík­inu.

New York Times greinir frá því að Manchin eigi reyndar per­sónu­lega mikið undir í þessum efnum. Hann stofn­aði fyr­ir­tæki sem stundar við­skipti með kol. Í fyrra fékk hann hálfa milljón dala, um 65 millj­ónir króna, í arð frá fyr­ir­tæk­inu.

Nokkrir þing­menn demókrata í báðum deildum þings­ins, m.a. vegna and­stöðu Manchins og þeirrar lyk­il­stöðu sem hann er í þegar kemur að því að greiða frum­vörp­unum leið, eru því farnir að hall­ast að annarri leið. Í stað hraðra orku­skipta verði settur skattur á losun koltví­sýr­ings. Samkvæmt til­lögum þeirra myndu meng­andi iðn­fyr­ir­tæki greiða kolefn­is­gjald. Slík leið hefur verið farin ann­ars staðar og hag­fræð­ingar hafa bent á að hún geti skilað árangri í að draga úr losun.

En Biden vildi taka stærri skref og hlaupa hraðar í átt að grænni fram­tíð í ljósi allra þeirra svörtu spáa vís­inda­manna um hvað fram­tíðin ber í skauti sér verði ekki ráð­ist í rót­tækar aðgerðir strax.

Hverju hafa Bandaríkin efni á?

Þing­menn­irnir sem eru farnir að draga í land og halla sér að kolefn­is­gjaldi, hafa bent á að útgjöld rík­is­ins séu miklu meiri en tekj­urnar og hinar metn­að­ar­fullu aðgerðir Bidens geti haft efna­hags­legar afleið­ingar fyrir kom­andi kyn­slóðir í formi verð­bólgu, skatta­hækk­ana og lít­ils hag­vaxtar.

En aðrir demókratar hafa bent á hið gagn­stæða: Að ríkið – þjóðin – hafi ekki efni á að bíða með rót­tækar aðgerðir í lofts­lags­málum, auð­velda konum að vera úti á vinnu­mark­aðnum og fjár­festa í menntun – ekki síst barna og ung­menna sem eiga efna­minni for­eldra, í takti við áætl­anir Bidens. Að þeirra mati þarf einmitt að fjár­festa í þessum „innviðum“ til að koma í veg fyrir sárs­auka­fullan fórn­ar­kostnað í fram­tíð­inni sem myndi svo aftur hafa nei­kvæð áhrif á hag­vöxt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár