Mánaðartekjur Halldórs Benjamíns hærri en árslaun þeirra lægst launuðu

Fram­kvæmda­stjóri SA var með tæpar 4,3 millj­ónir í tekjur á mán­uði í fyrra en hann var tekju­hæsti ein­stak­ling­ur­inn í flokknum „Hags­muna­sam­tök og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins“ í Tekju­blað­inu sem kom út í dag.

Halldór Benjamín
Halldór Benjamín Mynd: Bára Huld Beck

Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) var með tæpar 4,3 millj­ónir í tekjur á mán­uði á síð­asta ári, að því er fram kemur í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) var með tæpar fjórar millj­ónir í tekjur á mán­uði og Sigurður Hann­es­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins með 3,3 millj­ónir.

Tekju­blaðið, þar sem tekjur 4.000 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­lýs­inga á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK), kom út í dag. Í blað­inu er settur sá fyr­ir­vari að um sé að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2020 og þurfi þær ekki að end­ur­spegla föst laun við­kom­andi.

„Í launum sumra kann að vera fal­inn bónus vegna árs­ins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­magnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ingum, bíla­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði. Hafa verður í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði hjá líf­eyr­is­sjóði,“ segir í blað­inu.

[links]Í lífs­kjara­samn­ing­unum mátti finna svo­kall­aða lág­marks­tekju­trygg­ingu, sem tryggði lág­marks mán­að­ar­laun fyrir fulla vinnu að með­töldum álögum, bón­usum og auka­greiðslum. Samkvæmt samn­ing­unum var lág­marks­tekju­trygg­ingin fyrir árið 2020 335 þús­und krónur á mán­uði.

Þetta þýðir að Halldór Benjamín var með tæp­lega þrett­án­föld lág­marks­laun lífs­kjara­samn­ing­anna fyrir árið 2020 á mán­uði í tekjur það árið.

Í Tekju­blað­inu er til­tek­inn flokkur sem nefn­ist „Hags­muna­sam­tök og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins“ en þar eru þau tíu tekju­hæstu með yfir tvær millj­ónir á mán­uði. 82 ein­stak­lingar voru með yfir milljón á mán­uði í tekjur árið 2020 í þessum flokki. Á eftir Halldóri Benjamín, Heiðrúnu Lind og Sigurði komu Pétur Þor­steinn Ósk­ars­son fram­kvæmda­stjóri Íslands­stofu með 2,6 millj­ónir á mán­uði í tekjur og Stefán Ólafsson fyrr­ver­andi pró­fessor og sér­fræð­ingur hjá Eflingu með rúmar 2,5 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár