Tólf fjölmiðlamenn með yfir milljón á mánuði á RÚV

Bogi Ágústs­son frétta­maður á RÚV var tekju­hæsti fjöl­miðla­mað­ur­inn á RÚV á síð­asta ári en þar á eftir kemur Broddi Brodda­son vara­f­rétta­stjóri.

Bogi Ágústs­son frétta­maður á RÚV var tekju­hæsti fjöl­miðla­mað­ur­inn á RÚV á síð­asta ári með rúmar 1.9 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði, að því er fram kemur í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Þar á eftir kemur Broddi Brodda­son vara­f­rétta­stjóri RÚV með rúmar 1,4 millj­ónir króna á mán­uði í tekjur.

Tekju­blaðið, þar sem tekjur 4.000 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­lýs­inga á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK), kom út í dag. Í blað­inu er settur sá fyr­ir­vari að um sé að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2020 og þurfi þær ekki að end­ur­spegla föst laun við­kom­andi.

„Í launum sumra kann að vera fal­inn bónus vegna árs­ins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­magnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ingum, bíla­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði. Hafa verður í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði hjá líf­eyr­is­sjóði,“ segir í blað­inu.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var með tæpar 5,5 millj­ónir króna á mán­uði í laun árið 2020 og eru tekjur hans þær lang­hæstu á árinu meðal fjöl­miðla­fólks á Íslandi, eins og und­an­farin ár. Þess má geta að hluti launa Davíðs eru eft­ir­laun frá því hann var ráð­herra og þing­maður. Eft­ir­laun Davíðs eru 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra en hann fær einnig eft­ir­laun vegna starfa sinna sem seðla­banka­stjóri eftir að hann hætti á þingi.

Á eftir Davíð kemur Björn Ingi Hrafns­son á Viljanum með tæpar 3,9 millj­ónir í tekjur á mán­uði. Haraldur Johann­esen, hinn rit­stjóri Morgun­blaðs­ins og fram­kvæmda­stjóri Ár­vak­urs, er í þriðja sæti yfir tekju­hæstu fjöl­miðla­menn­ina með rúmar 3,2 millj­ónir á mán­uði.

Alls eru tutt­ugu og fjórir starfs­menn RÚV á lista yfir fjöl­miðla­menn í Tekju­blað­inu í ár. Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri RÚV var með 1.392 þús­und krónur á mán­uði í tekjur í fyrra og Egill Helgason dag­skrár­gerð­ar­maður með 1.263 þús­und krónur. Sigmar Guð­munds­son, fyrr­ver­andi dag­skrár­gerð­ar­maður, var með 1.248 þús­und krónur, Baldvin Bergsson dag­skrár­stjóri Rásar 2 með 1.143 þús­und krónur í tekjur á mán­uði, Gísli Marteinn Bald­urs­son, dag­skrár­gerð­ar­maður með 1.142 þús­und krónur, Þröstur Helgason með 1.139 þús­und krónur og Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, frétta­maður og for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, með rúma milljón á mán­uði í tekjur á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár