Tíu tekjuhæstu forstjórarnir með samtals 176,9 milljónir í tekjur á mánuði

Tekju­hæsti for­stjór­inn, Árni Oddur Þórð­ar­son for­stjóri Marels, var með tæpar 36 millj­ónir króna í tekjur á mán­uði í fyrra. Tuttugu for­stjórar voru með yfir 6 millj­ónir á mán­uði í tekjur.

Árni Oddur Þórðarson, Árni Harðarson og Tómas Már Sigurðsson voru tekjuhæstu forstjórarnir á síðasta ári.
Árni Oddur Þórð­ar­son, Árni Harð­ar­son og Tómas Már Sig­urðs­son voru tekju­hæstu for­stjór­arnir á síð­asta ári. Mynd: Samsett mynd

Árni Oddur Þórð­ar­son for­stjóri Marels var tekju­hæsti for­stjór­inn á Íslandi árið 2020 með tæpar 36 millj­ónir á mán­uði, sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Árni Harð­ar­son for­stjóri Salt Invest­ments vermir annað sætið með rúmar 26 millj­ónir króna á mán­uði í tekjur og Tómas Már Sig­urðs­son for­stjóri HS Orku var með 19,9 millj­ónir í þriðja sæti.

Tekju­blaðið, þar sem tekjur 4.000 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­lýs­inga á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK), kom út í dag. Í blað­inu er settur sá fyr­ir­vari að um sé að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2020 og þurfi þær ekki að end­ur­spegla föst laun við­kom­andi.

„Í launum sumra kann að vera fal­inn bónus vegna árs­ins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­magnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ingum, bíla­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði. Hafa verður í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði hjá líf­eyr­is­sjóði,“ segir í blað­inu.

[links]Tíu tekju­hæstu for­stjór­arnir voru með sam­tals 176,9 millj­ónir í tekjur á mán­uði árið 2020 og voru átta af þeim með yfir 12 millj­ónir. Tuttugu for­stjórar voru með yfir sex millj­ónir.

Á eftir þeim Árna Oddi, Árna og Tómasi Má koma Rupert John Horrocks fram­kvæmda­stjóri Kaup­þings með 19,5 millj­ónir í tekjur á mán­uði og Grímur Karl Sæmunds­son for­stjóri Bláa lóns­ins með 17,8 millj­ónir á mán­uði í tekjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár