Katrín sannfærð um að héraðssaksóknari sé að sinna rannsókn á Samherja af fullri alvöru

Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist hafa mikla trú á emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og að það hafi skýrar yfir­lýs­ingar stjórn­valda um að það fái þá fjár­muni sem þurfi til að ljúka rann­sókn á Samherja.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um fjárheimildir til eftirlits með spillingu í þinginu í dag.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um fjár­heim­ildir til eft­ir­lits með spill­ingu í þing­inu í dag. Mynd: Samsett

„Mér finnst ekki gott ef gefið er í skyn hér að ekki sé verið að sinna þess­ari rann­sókn af fullri alvöru, að það er alls ekki mín sann­fær­ing. Mín sann­fær­ing er sú að hér­aðs­sak­sókn­ari sé svo sann­ar­lega að sinna þess­ari rann­sókn af fullri alvöru og hann hefur skýrar yfir­lýs­ingar stjórn­valda um að hann fái þá fjár­muni sem hann þarf til að ljúka henni.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um stöðu þegar hún svar­aði óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, á Alþingi í dag um fjár­heim­ildir til eft­ir­lits gegn spill­ingu, þar sem hann spurði meðal ann­ars út í Sam­herj­a­málið svo­kall­aða.

Þar vísar Katrín í að í byrjun árs í fyrra hafi þær stofn­anir sem tengj­ast eft­ir­liti og vörnum gegn pen­inga­þvætti, skatt­rann­sóknum og skatt­eft­ir­liti fengið 200 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði. Þetta var gert í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um að grípa til alls sjö aðgerða til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi, en aðgerð­ar­á­ætl­unin var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber, nokkrum dögum eftir að opin­berun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera á meintum mútu­greiðslum, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í Namibíu og víðar var birt.

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni sagði að hugað yrði sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara „í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu.“

Spurði um svelti eftirlitsstofnana

Björn Leví sagði í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar að þegar Sam­herj­a­málið svo­kall­aða hófst í nóv­em­ber 2019 hafi 100 mál beðið rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, þar af um 60 skatta­mál. „Vegna þessa bað hér­aðs­sak­sókn­ari um aukið fjár­magn fyrir sex stöðu­gildum til að ná að sinna verk­efnum emb­ætt­is­ins í nóv­em­ber 2019. Þeirri beiðni var hafnað í fjár­laga­vinnu fyrir árið 2020. Starfs­fólki á rann­sókn­ar­sviði hér­aðs­sak­sókn­ara fjölg­aði þó um sex stöðu­gildi um mitt ár 2020. Það er í sjálfu sér áhuga­vert að það sé hægt þegar engin fjár­heim­ild er fyrir því, en sam­kvæmt heim­ildum er um að ræða 30 millj­ónir úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem var ein­hvern veg­inn hægt að skrapa saman. Þrátt fyrir þetta er staða verk­efna þó enn svipuð og áður, verri ef tekið er til­lit til auk­inna verk­efna vegna nýlegra laga.“

[adspot]Björn Leví sagði að í víð­ara sam­hengi mætti svo sjá erindi umboðs­manns Alþingis mörg ár aftur í tím­ann um auknar fjár­heim­ildir til að sinna frum­kvæð­is­rann­sóknum og meiri­hluta þings­ins sem hefði hafnað þeim beiðnum. „Það er líka skortur á fjár­magni hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, Fiski­stofu, Rík­is­end­ur­skoðun og Per­sónu­vernd til að sinna frum­kvæð­is­rann­sóknum og örugg­lega hjá fleiri stofn­unum. Þetta voru bara þær stofn­anir sem var auð­velt að finna heim­ildir fyrir um slíkan skort.“

Björn Leví spurði því hvernig það væri traust­vekj­andi að sjá áþreif­an­legar aðgerðir í Noregi, Færeyjum og Namibíu vegna Sam­herj­a­máls­ins, en á Íslandi væru til staðar hafn­anir á beiðni um auknar fjár­heim­ildir og svelti eft­ir­lits­stofn­ana sem eigi að vinna gegn spill­ingu?

Hefur mikla trú á embættinu

Samherji er til rann­sóknar hér­lendis og í Namibíu vegna meintra mútu­brota, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvættis í tengslum við við­skipti sín í Namibíu. Á Íslandi rann­saka bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri málið og alls sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja hafa fengið stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur.

[links]Á mánu­dag í síð­ustu viku var greint frá því að Tind­holmur, fær­eyskt dótt­ur­fé­lag Samherja, hefði greitt 345 millj­ónir króna vegna van­gold­inna skatta í rík­is­sjóð Færeyja. Skatt­skil félags­ins hafa sömu­leiðis verið kærð til lög­reglu í Færeyjum.
Katrín hafn­aði því að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara væri ekki að fá nægar fjár­heim­ildir. Hennar sann­fær­ing væri sú að emb­ættið væri að sinna rann­sókn­inni að fullri alvöru og hún sagð­ist hafa mikla trú á emb­ætt­inu. „Við höfum fylgst með því í fréttum þar sem tek­ist hefur verið á, m.a. fyrir dóm­stólum, um aðgang að gögnum og við vitum að það er fullur gangur í þess­ari rann­sókn. Nú síð­ast lá það fyrir að hér­aðs­sak­sókn­ari hefði fengið úrskurð um að fá aðgang að þeim gögnum sem óskað var eftir eftir ein­hvers konar sam­töl, reki­stefnu, fyrir dóm­stólum. Mér finnst mik­il­vægt að segja að ég hef fulla trú á því að emb­ættið sé að sinna þessu af atorku, en auð­vitað tekur þetta tíma.“

Hvað varði eft­ir­lits­stofn­an­irnar almennt sagði for­sæt­is­ráð­herra þá eft­ir­lits­stofnun sem heyri undir sig vera í sam­ein­uðum Seðla­banka og Fjár­mála­eft­ir­liti. Sú sam­ein­ing hafi tek­ist vel. Þá benti hún á að umboðs­maður Alþingis heyri beint undir þingið og það sé for­sætis­nefnd Alþingis að takast á við það ef áhöld séu um hvort emb­ættið sé nægj­an­lega fjár­magnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár