Dótturfélag Samherja borgaði 345 milljónir króna í Færeyjum vegna vangoldinna skatta

Færeyska rík­is­sjón­varpið greindi frá því í kvöld að búið væri að kæra skatt­skil Tind­holms, dótt­ur­fé­lags Samherja, til lög­reglu þar í landi. Félagið skráði sjó­menn rang­lega í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips til að fá end­ur­greiðslu á skatt­greiðslum.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Tind­holmur, fær­eyskt dótt­ur­fé­lag Samherja, hefur greitt 345 millj­ónir króna vegna van­gold­inna skatta í rík­is­sjóð Færeyja. Skatt­skil félags­ins hafa sömu­leiðis verið kærð til lög­reglu í Færeyjum. Frá þessu er grein í frétta­tíma fær­eyska rík­is­sjón­varps­ins í kvöld.

[links]Í frétta­tím­anum stað­festi Jógvan Páll Lassen, lög­maður sem kom að mál­inu, að greiðslan, alls 17 millj­ónir danskra króna, hafi verið greidd.

Málið kom upp í mars síð­ast­liðnum þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Samherja í Færeyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wikileaks.

Þar kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Samherja, sem gerður var út í Namibíu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu Tind­holmur, sem Samherji stofn­aði þar í landi árið 2011. Gögn sýndu að hann hafi auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Samherja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Samherja í Namibíu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Samherji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

[adspot]Í heim­ild­ar­mynd­inni kom fram að þetta fyr­ir­komu­lag væri, að mati fær­eyska skatta­sér­fræð­ings­ins Eyðfinns Jacobsen, aug­ljóst brot á fær­eyskum lögum jafn­vel þótt það væri namibíska ríkið sem sitji uppi með tapið.

Björn á Heygum, fyrr­ver­andi þing­maður í Færeyjum sem var stjórn­ar­for­maður Tind­holms þar til félag­inu var slitið árið 2020 og sem hefur setið í stjórnum fjölda félaga í eigu Samherja síð­ustu þrjá ára­tugi, sagði í þætt­inum að hann hefði verið blekktur. Hann hefði ekki haft neina vit­neskju um þetta fyr­ir­komu­lag við greiðslu launa.

Samherji hafnaði fréttum um skattrannsókn

Í kjöl­far þess að greint var frá mál­inu í íslenskum fjöl­miðlum, meðal ann­ars ​RÚV, birti Samherji yfir­lýs­ingu á vef sínum þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist hafa fengið stað­fest­ingu á því að engin skatt­rann­sókn væri hafin á hendur Samherja í Færeyjum.

Þar sagði að fréttir RÚV um slíkt væru rangar og að þær byggðu á rang­túlkun og útúr­snún­ingi á við­tali við yfir­mann fær­eyska skatts­ins. Samherji fór fram á að fréttir RÚV yrði leið­réttar.

Nú hefur feng­ist stað­fest að skatta­mál Tind­holms hafi verið kærð til lög­reglu og verða rann­sökuð þar. Auk þess liggur fyrir, sam­kvæmt frétt fær­eyska sjón­varps­ins, að Samherji hafi end­ur­greitt skatta sem fyr­ir­tækið hafði komið sér undan því að greiða með áður nefndum hætti. Þ.e. með því að skrá sjó­menn sem far­menn til að fá fulla end­ur­greiðslu á sköttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár