Einbúavirkjun ekki rædd því margir enn með „óbragð“ eftir Svartárvirkjunardeilu

Bárð­dæl­ingar hafa ekki rætt sín á milli um fyr­ir­hug­aða Ein­búa­virkjun í Skjálf­anda­fljóti því margir þeirra eru enn með „óbragð“ eftir Svart­ár­virkj­un­ar­deil­una. „Það er mjög erfitt og sárt að að standa í þessu,“ segir íbúi í Bárð­ar­dal.

Flúðir á framkvæmdasvæði fyrirhugaðrar Einbúavirkjunar.
Flúðir á fram­kvæmda­svæði fyr­ir­hug­aðrar Ein­búa­virkj­unar. Mynd: SUNN

Ástæðan fyrir því að annar eig­andi félags­ins sem hyggst reisa Ein­búa­virkjun í Skjálf­anda­fljóti hefur ekki upp­lifað að áformin hafi haft sundr­ung­ar­á­hrif á sam­fé­lagið í Bárð­ar­dal er ein­föld: Málið hefur ekk­ert verið rætt í sveit­inni. Deilan um Svart­ár­virkjun, sem stóð í mörg ár, var erfið og margir veigra sér við að stíga fram nú af þeim sökum.

[links]Þetta var meðal þess sem fram kom í máli íbúa í dalnum á kynn­ing­ar­fundi sem skipu­lags- og umhverf­is­nefnd Þing­eyj­ar­sveitar boð­aði til fyrir helgi þar sem kynntar voru til­lögur að breyt­ingu á aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins og til­laga að deiliskipu­lagi vegna fyr­ir­hug­aðrar Ein­búa­virkj­unar. Þeir sem kynntu til­lög­una og sátu fyrir svörum voru full­trúar Ein­búa­virkj­unar ehf. og Verkís, verk­fræði­stof­unnar sem vann skipu­lags­til­lög­urnar fyrir fram­kvæmd­að­il­ann. Á sama tíma og fund­ur­inn fór fram sátu sveit­ar­stjórn­ar­menn á sveit­ar­stjórn­ar­fundi og voru því ekki til svara.

Atli Steinn Svein­björns­son skipu­lags­full­trúi Þing­eyj­ar­sveitar stýrði kynn­ing­ar­fund­inum, sem fram fór í félags­heim­il­inu Kiðagili og var streymt á Facebook, og sagði í lok hans að allar athuga­semdir og spurn­ingar sem komu fram yrðu birtar sveit­ar­stjórn. Þá sagði Arnór Ben­ón­ýs­son odd­viti sveit­ar­stjórnar í kommenti á Facebook-síðu fund­ar­ins að spurn­ing­unum yrði svarað á opin­berum vett­vangi við fyrsta tæki­færi.

[adspot]

Mikið hefur mætt á hinu fámenna sam­fé­lagi í Bárð­ar­dal síð­ustu miss­erin vegna áforma um að reisa virkjun í Svartá, einni af þverám Skjálf­anda­fljóts. Sú virkj­un­ar­hug­mynd fékk afar nei­kvæða umsögn í áliti Skipu­lags­stofn­unar í lok síð­asta árs auk þess sem bent var á ýmsa van­kanta í mats­skýrslu fram­kvæmda­að­il­ans, SSB Orku. Í álit­inu var m.a. farið í gegnum þær 77 athuga­semdir sem bár­ust stofn­un­inni þar sem fram komu m.a. þau sjón­ar­mið að áform um virkjun í Svartá hafi skapað ósætti meðal íbúa sveit­ar­fé­lags­ins.

Í álit­inu voru einnig rifjuð upp orð sveit­ar­stjóra og odd­vita Þing­eyj­ar­sveitar í skýrslu Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Háskól­ans á Akureyri um sam­fé­lags­leg áhrif virkj­ana: „Svart­ár­virkjun mun kljúfa sam­fé­lagið í Bárð­ar­dal, ef það hefur ekki þegar verið gert.“

Til þess­ara orða vitn­uðu íbúar á kynn­ing­ar­fund­inum um áform­aða Ein­búa­virkjun á fimmtu­dag og þótt umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar hafi verið þeim hug­leikin voru það hin sam­fé­lags­legu sem voru þeim hvað efst í huga. „Þessi umræða sem ég hef verið að lesa í fjöl­miðlum um klofn­ing sam­fé­lags­ins hérna, það er bara hel­vítis bull og ekk­ert annað,“ sagði Friðrika Sig­ur­geirs­dóttir, bóndi á Bjarna­stöðum, og bætti við að málið hefði verið blásið upp í fjöl­miðlum. Bjarna­staðir eiga land að Svartá og skrif­aði Friðrika í opinni færslu á Facebook í byrjun jan­úar, eftir að álit Skipu­lags­stofn­unar lá fyrir, að hún hefði bundið vonir við að Svart­ár­virkjun myndi leysa af hólmi litla heima­virkjun í ánni sem fyrst var komið upp á fyrri hluta síð­ustu aldar. Sú litla virkjun útheimti vinnu vegna bil­ana, oft við erf­iðar og jafn­vel hættu­legar aðstæður.

Ekki gert ráð fyrir virkjununum á aðalskipulagi

Fyr­ir­huguð Ein­búa­virkjun er líkt og sú sem til stóð að reisa í næsta nágrenni í Svartá rétt innan við 10 MW sem þýðir að lögum sam­kvæmt þarf hún ekki að fara í gegnum ítar­legt ferli ramma­á­ætl­unar þar sem virkj­ana­kostir eru flokk­aðir í orku­nýt­ingar, bið- eða vernd­ar­flokk. Bæði verk­efnin hafa hins vegar farið í gegnum umhverf­is­mat. Ekki er gert ráð fyrir þessum virkj­unum í gild­andi aðal­skipu­lagi Þing­eyj­ar­sveitar svo breyt­inga á því er þörf eigi fram­kvæmd­irnar að verða að veru­leika. Nú hefur fram­kvæmda­að­ili varpað ljósi á það umfang sem fram­kvæmdin hefur í för með sér og í kjöl­farið mun sveit­ar­stjórn taka ákvörðun um hvort taka eigi til­lög­una lengra, senda hana í aug­lýs­ing­ar­ferli og fá þær athuga­semdir sem ber­ast.

Bárð­ar­dalur í Þing­eyj­ar­sveit er efsti hluti vest­asta dals­ins sem gengur upp frá Skjálf­anda­flóa. Hann er fremur mjór og langur og um hann fellur Skjálf­anda­fljót. Fljótið á upp­tök sín í Von­ar­skarði og und­ir­hlíðum Bárð­ar­bungu og því eru margir og miklir fossar. Þekkt­astur þeirra er Goðafoss og er Ein­búa­virkjun fyr­ir­huguð um sjö kíló­metrum ofan hans. Efst í dalnum er svo t.d. Ald­eyj­ar­foss sem á síð­ustu árum hefur orðið vin­sæll áning­ar­staður ferða­manna.

Bárð­ar­dalur er tal­inn einn lengsti byggði dalur á land­inu en um 45 kíló­metrar eru á milli neðsta og efsta bæjar. Neðsti bær er rúm­lega 100 metra yfir sjáv­ar­máli en efsti bær, Svart­ár­kot, er um 400 m.y.s. Íbúar voru 85 árið 2005.

Mokað krapa í 55 ár

Svartá er lindá með nokkuð jöfnu rennsli en Skjálf­anda­fljót, þar sem virkjun kennd við eyði­jörð­ina Einbúa er nú fyr­ir­huguð, er hins vegar að uppi­stöðu jök­ulá þar sem rennsli getur sveifl­ast mikið milli árs­tíða og krapa­myndun og fram­burður sömu­leiðis orðið mik­ill. „Ég, maður sem hef mokað krapa í 55 ár, datt aldrei í hug að þessi hug­mynd færi svona langt,“ sagði Hlöðver Pétur Hlöðvers­son, bóndi að Björgum, bæ skammt frá ósum Skjálf­anda­fljóts, sem viðr­aði áhyggjur sínar af áhrifum krapa og stór­grýti sem honum getur fylgt á vélar virkj­un­ar­innar.

Í umsögn sinni um frum­mats­skýrslu Ein­búa­virkj­unar benti nátt­úru­vernd­ar­nefnd Þing­ey­inga á að þótt Bárð­ar­dalur og ásýnd hans mót­ist af ábúð manna og á heild­ina litið sé hann ekki við­kvæmur fyrir þeim mann­virkjum sem fram­kvæmd­inni myndu tengj­ast þá sé far­vegur Skjálf­anda­fljóts órask­aður af manna völdum. Stórar virkj­anir í fljót­inu hafa staðið til, m.a. við Hrafna­björg, en í til­lögu til þings­á­lykt­unar um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, er lagt til að sá virkj­ana­kostur fari í vernd­ar­flokk. Tillagan hefur beðið afgreiðslu þings­ins frá árinu 2016.

Í grein­ar­gerð aðal­skipu­lags Þing­eyj­ar­sveitar, sem sam­þykkt var árið 2011, kemur fram sú stefna sveit­ar­fé­lags­ins að nýta vatns­afl innan þess, sé það til hags­bóta fyrir íbúa og í sam­ræmi við sjálf­bæra þróun. „Þing­eyj­ar­sveit telur eft­ir­sókn­ar­vert að kanna frekar fram­tíð­ar­mögu­leika á og kosti þess að byggja fleiri virkj­anir til einka­nota sem og orku­sölu á frjálsum raf­orku­mark­aði, en sveit­ar­fé­lagið er á móti hug­myndum um að virkja Skjálf­anda­fljót.“

Stefnubreyting?

Þessi afstaða er svo ítrekuð og und­ir­strikuð síðar í grein­ar­gerð­inni: „Eins og fram kemur í kafla 4.1, Fram­tíð­ar­sýn og meg­in­mark­mið, er það almenn stefna sveit­ar­fé­lags­ins að nýta vatns­afl í sveit­ar­fé­lag­inu enn frekar, en sveit­ar­fé­lagið er á móti hug­myndum um að virkja Skjálf­anda­fljót.“

Var þetta meðal þess sem íbúar og aðrir þeir sem fylgd­ust með kynn­ing­ar­fund­inum um Ein­búa­virkjun ósk­uðu eftir að sveit­ar­stjórn­ar­menn útskýrðu: Hvort að alls­herjar stefnu­breyt­ing hefði orðið og sveit­ar­fé­lagið nú áfram um að setja virkjun í Skjálf­anda­fljót. „Ég ætla ekki að telja hér upp marga þá skelfi­legu þætti sem fylgja [Ein­búa­virkjun], sem ég tel á margan hátt mun verra en ætluð virkjun Svartár, sem er hlið­ará fljóts­ins, en hérna erum við að tala um virkjun í sjálfu Skjálf­anda­fljóti,“ sagði Gunn­laugur Friðrik Frið­riks­son, eig­andi og ábú­andi að Sunnu­hvoli, í þessu sam­bandi. „Mér finnst það vera nokkuð stórt mál að sveit­ar­fé­lagið haldi opinn fund þar sem kynnt er þessi stóra breyt­ing á skipu­lags­stefnu félags­ins, að stefnan breyt­ist úr því að ekki skuli virkja fljótið yfir í að virkja skuli fljótið, og eng­inn komi frá sveit­ar­fé­lag­inu sem treysti sér til að svara fyrir það.“

Í ágúst árið 2019 lagði verk­fræði­stofan Verkís fyrir hönd félags­ins Ein­búa­virkj­unar ehf. fram frum­mats­skýrslu um bygg­ingu Ein­búa­virkj­unar til athug­unar hjá Skipu­lags­stofnun. Tæpu ári síðar birti stofn­unin álit sitt. Mun lengri tími leið á milli þess sem frum­mats­skýrsla Verkís fyrir hönd SSB Orku um Svart­ár­virkjun var lögð fram og þar til álit Skipu­lags­stofn­unar lá fyrir eða rúm­lega þrjú ár.

„Hingað til í þessu ferli hefur ríkt nokkur sátt, að við skiljum, um þessa fram­kvæmd,“ sagði Hilmar Ágústs­son, annar eig­andi Ein­búa­virkj­unar ehf., á kynn­ing­ar­fund­inum í fyrra­dag, spurður af einum fund­ar­gesta um að hvaða leyti hann hefði áhyggjur af því að „kljúfa sam­fé­lagið í herðar niður með áformum af þessu tagi“.

Aðeins þrjár athugasemdir

Hilmar benti á að á meðan tæp­lega átta­tíu athuga­semdir hefðu borist við frum­mats­skýrslu um Svart­ár­virkjun hafi aðeins þrjár borist um Ein­búa­virkjun. „Þannig að það hefur almennt ríkt nokkur sátt um þessa virkjun, eins og ég hef upp­lifað það. Þess vegna hefur það í raun og veru ekki verið metið sem svo að þetta væri að hafa ein­hver sundr­ung­ar­á­hrif á þetta sam­fé­lag.“

Einar Jónsson, skipu­lags­fræð­ingur hjá Verkís, sem kynnti skipu­lags­til­lög­urnar á fund­inum, sagð­ist telja „smá átök“ eðli­leg í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Jafnvel um virkj­ana­mál. „Ég held að það sé frekar styrk­leiki heldur en hitt. En auð­vitað er ekk­ert fengið með að kljúfa sam­fé­lagið. Og ég held að það sé ekki mein­ingin. Við erum mætt hér að tala saman og allt í góðu enn.“

Guðrún Sigríður Tryggva­dóttir, bóndi í Svart­ár­koti í Bárð­ar­dal, sagði það „hár­rétt“ hjá Hilmari að það væri ekki ástæða til að hafa áhyggjur af klofn­ingi í sam­fé­lag­inu „því að þetta hefur ekk­ert verið rætt í sam­fé­lag­inu. Menn hafa ekki tekið þessa umræðu“. Hún viti ekki hvað sveit­ungum hennar finn­ist almennt um virkj­ana­á­formin, „við nefni­lega erum ekk­ert að ræða það“.

Hún velti því upp hvort að það væri ekki einmitt rík ástæða til að ræða málin, „jafn­vel þó að þau séu erfið“. Guðrún sagð­ist telja að ein helsta ástæða þess að fyr­ir­huguð Ein­búa­virkjun hafi ekki verið rædd sé hvernig við­brögðin urðu í aðdrag­anda Svart­ár­virkj­unar „Við erum svo góð í því að ákveða að láta ekki eitt­hvað svona eyði­leggja sam­fé­lagið okkar að við ræddum þetta ein­fald­lega aldrei. Þetta var sett til hliðar.“

[adspot]

Guðrún sagði erfitt að geta ekki rætt kosti og galla fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar í sveit­inni. „Mig langar ekki að búa í sam­fé­lagi þar sem ég má ekki hafa skoðun.“ Það hafi verið hennar upp­lifun í aðdrag­anda Svart­ár­virkj­unar, að fólk nái ekki að vera sam­mála um að vera ósam­mála. Betra hefði verið að umræðan og athuga­semdir um áform­aða Ein­búa­virkjun hefðu komið fram fyrr í ferl­inu. „En þetta snýst um ásýnd dals­ins,“ sagði hún. „Og þó að við séum sam­fé­lag sem er hvorki ríkt eða mjög töff þá ríkir hér ein­hver róleg og nota­leg stemn­ing sem fólk sem sækir okkur heim finnur.“

Mik­il­vægt væri að ræða opin­skátt um sam­fé­lags­leg áhrif fram­kvæmd­ar­innar, þau væru jákvæð að ein­hverju leyti, þ.e. sveit­ar­fé­lagið fær ákveðnar tekjur og sömu­leiðis eig­endur jarða sem eiga land að virkj­un­inni, „en hvaða fleiri jákvæðu sam­fé­lags­legu áhrif sjáum við?“

Á fund­inum kom fram að ekki er búið að reikna út hverjar fast­eigna­tekjur Þing­eyj­ar­sveitar yrðu af virkj­un­inni. Í mats­skýrslu kemur fram að mann­afls­þörf yrði mikil á fram­kvæmda­tíma en eng­inn að honum loknum.

„Þetta yrði stór virkjun,“ sagði Gunn­laugur á Sunnu­hvoli á fund­inum. „Annað er hrein­lega ekki rétt. Hlut­falls­lega er minni stærð­ar­munur á þessar virkjun og Kára­hnjúkum heldur en á þess­ari virkjun borið saman við venju­lega heima­virkjun. Hún er hlut­falls­lega nær Kára­hnjúkum í afli en meðal heima­virkjun. Þó hún sé mjög stór í okkar sam­hengi, skiptir hún hverf­andi máli í stóru mynd­inni ef horft er til orku­fram­leiðslu lands­ins og hún hefur ótrú­lega lítil jákvæð fjár­hags­lega áhrif á sam­fé­lagið. Útreikn­ingar sýna til dæmis að beinar fastar tekjur sveit­ar­fé­lags­ins af virkj­un­inni munu vera minni en sem nemur útsvars­tekjum af einum góðum launa­manni til eða frá,“ sagði Gunn­laugur sem vís­aði til útreikn­inga Samtaka um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN.

Skiljanlega erfitt að ræða málið

„Mig grunar að fólk sem hefur efa­semdir um þessa virkjun muni eiga erfitt með að stíga fram og segja sinn hug,“ hélt Gunn­laugur áfram. „Ég hef rætt við all­nokkra íbúa hérna í dalnum um þetta og nán­ast allir sem ég hef rætt við hafa miklar efa­semdir um þessa virkjun. Hins vegar heldur fólk þeirri skoðun fyrir sig, sem er skilj­an­legt, sér­stak­lega í ljósi þess hvað Svart­ár­deilan var erfið, og það gerir þetta sam­tal enn erf­ið­ara.“

Sagðist hann halda að margir hefðu enn „óbragð“ eftir Svart­ár­virkj­un­ar­deil­una, „og ég er þar með tal­inn. Það er mjög erfitt og sárt að að standa í þessu.“

Gunn­laugur sagði að það sem sér þætti einna verst væri að land­eig­endum væri haldið í von­inni árum saman um tekjur en þeim ekki gerð full grein fyrir þeirri óvissu sem fylgdi verk­efni sem þessu. „Svo er skuld­inni skellt á nátt­úru­vernd­ina. Frekar ætti að gera athuga­semdir við óraun­hæfar skýja­borgir einka­fyr­ir­tækja sem fara út í verk­efni á við þetta.“

Rætur Gunn­laugs í Bárð­ar­dal eru mjög sterkar og dvaldi hann oft sem barn að Sunnu­hvoli. „Afi minn sem byggði húsin sem standa á Sunnu­hvoli og hét líka Gunn­laugur. Og afi hans á undan honum hafði búið á sama stað.“ Fyrir þremur árum tók hann svo við jörð­inni og hefur síðan þá unnið að end­ur­bótum og upp­bygg­ingu. „Mig dreymir um að byggja fram­tíð hérna i dalnum. Ég skil í hverju aðdrátt­ar­afl hans felst og við þurfum að leyfa aðdrátt­ar­afl dals­ins að toga í fleiri. Við mig hefur verið sagt í sam­bandi við þessa virkjun að hér sé bara gam­alt fólk. Þá má álykta að þessi bar­átta um fram­tíð sam­fé­lags Bárð­ar­dals sé töpuð. Ég er ekki sam­mála því. Ég er ekki sam­mála því af þeirri ástæðu að við sjáum fólk búa til tæki­færi hér í dalnum, og ég trúi á að það sé hægt að styrkja þetta sam­fé­lag enn meira. En stífla í Skjálf­anda­fljótið er ekki lausnin.“

Engu að síður mikilvæg áhrif

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­skýrslu SSB Orku um Svart­ár­virkjun kom fram að miðað við það sem fram kom í athuga­semdum frá íbúum, sem og í skýrslu um sam­fé­lags­leg áhrif virkj­ana, þar sem rætt var við fjölda íbúa og sveit­ar­stjórn­ar­fólk í Þing­eyj­ar­sveit, væri mögu­legt að virkjun Svartár kæmi til með að hafa áhrif á sam­heldni íbúa nær­sam­fé­lags­ins. „Slík óhlut­bundin áhrif er erfitt að áætla eða meta en engu að síður er um að ræða mik­il­væg sam­fé­lags­leg áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár