„Heita kartaflan“ sem mun „kljúfa samfélagið í Bárðardal“

Þing­eyj­ar­sveit hefur áður skipst í fylk­ingar í virkj­ana­málum. Lax­ár­deilan er mörgum enn í fersku minni en í þess­ari sömu sveit hyggst fyr­ir­tækið SSB Orka reisa Svart­ár­virkjun sem engin sátt er um.

Svartá er meðal vatnsmestu lindáa landsins.
Svartá er meðal vatns­mestu lindáa lands­ins. Mynd: Af Facebook-síðu Verndarfélags Svartár og Suðurár

SSB Orka, sem áformar að virkja Svartá í Bárð­ar­dal, hefur ekki haft sam­band við sveit­ar­stjórn Þing­eyj­ar­sveitar og óskað eftir því að virkj­unin verði færð inn á aðal­skipu­lag eftir að álit Skipu­lags­stofn­unar á fram­kvæmd­inni lá fyrir um ára­mót. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Heiðar Guð­jóns­son, hefur ekki svarað ítrek­aðri fyr­ir­spurn Kjarnans um næstu skref máls­ins. Skipu­lags­stofnun telur nið­ur­stöður umhverf­is­mats­ins gefa til­efni til að end­ur­skoða áform um að gera ráð fyrir virkj­un­inni á aðal­skipu­lagi.

Stofn­unin komst að því að umhverf­is­á­hrifin í heild yrðu veru­lega nei­kvæð. Það er allt önnur nið­ur­staða en SSB Orka komst að í mats­skýrslu sinni: Að Svart­ár­virkjun væri ekki lík­leg til að hafa umtals­verð umhverf­is­á­hrif í för með sér.

[adspot]

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar er fjallað um ýmsa van­kanta í mats­skýrslu SSB Orku og kemur fram að „á köflum virð­ist umfjöllun fram­kvæmda­að­ila þar miða að því að draga úr mik­il­vægi áhrifa­svæðis fram­kvæmd­ar­innar og mögu­legum áhrifum fram­kvæmd­ar­innar“.

[links]Höfundar álits­ins, Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar og Egill Þór­ar­ins­son sviðs­stjóri á umhverf­is­mats­sviði, tala m.a. um að vinnu­brögðin séu „aðfinnslu­verð“, að um „van­mat“ sé að ræða og að ákveðin efn­is­tök kasti „rýrð á trú­verð­ug­leika mats­skýrsl­unnar“. Dæmi séu um að nið­ur­stöður athug­ana sér­fræð­inga um mögu­leg nei­kvæð áhrif séu ekki reif­aðar og að óvissa um áhrif vegna tak­mark­aðra upp­lýs­inga sé ekki túlkuð af varúð í sam­ræmi við aðstæður.

Sjötíu athuga­semdir bár­ust við frum­mats­skýrslu SSB Orku árið 2017 og ljóst að virkj­ana­hug­myndin er umdeild. Þá hefur verið deilt um lagn­ingu raf­lína frá henni og leigu rík­is­ins á vatns­rétt­indum jarðar í þess eigu.

Bara mjög vont mál

„Svart­ár­virkjun mun kljúfa sam­fé­lagið í Bárð­ar­dal, ef það hefur ekki þegar verið gert,“ er haft eftir Dag­björtu Jóns­dóttur sveit­ar­stjóra og Arnóri Ben­ón­ýs­syni odd­vita Þing­eyj­ar­sveitar, í nýlegri skýrslu Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Háskól­ans á Akureyri um sam­fé­lags­leg áhrif virkj­ana sem unnin var í tengslum við fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar sem enn er í vinnslu. „Land­eig­endur sem hafa bara efna­hags­legan hag af því að hún eigi sér stað, þeir eru auð­vitað fylgj­andi henni. Meðan aðrir sem að sjá frek­ari upp­bygg­ingu í ferða­þjón­ustu eða ein­hverju slíku eru á móti henni. Og það er alveg svona nágranna­dæmi [...], Svart­ár­virkjun er bara mjög vont mál.“

Í landi fjögurra jarða

Uppsett afl Svart­ár­virkj­unar yrði 9,8 MW og áætluð orku­vinnsla 78,6 GWh á ári. Helstu mann­virki eru stöðv­ar­hús, aðrennsl­is­pípa, jöfn­un­ar­þró og sam­byggð stífla og inn­tak, auk frá­rennsl­is­skurðar og aðkomu­vega. Virkj­un­ar­svæðið er í landi fjög­urra jarða; Stóru-Tungu, Víðikers, Bjarna­staða og Rauða­fells.

SSB Orka er í eigu Svart­ár­virkj­unnar ehf. Eigendur þess félags eru Ursus ehf. (í eigu Heiðars Guð­jóns­sonar) sem á 42,9 pró­sent, Íslands­virkjun ehf. (í jafnri end­an­legri eigu Péturs Bjarna­sonar og Auðuns Svafars Guð­munds­sonar) sem á 50 pró­sent og Íshóll (í eigu Stefáns Ákasonar) sem á 7,10 pró­sent.

Svartá er lindá sem á upp­runa sinn í Svart­ár­vatni og er vatns­mest þveráa Skjálf­anda­fljóts. Lindár eru fyrir margar sakir sér­stakar á Íslandi hvað varðar eðlis- og efna­eig­in­leika sem og vatna­fræði­lega eig­in­leika. Linda­vötn finn­ast auk þess óvíða ann­ars staðar í heim­inum en á Íslandi. Ætla má að um 10 pró­sent af ám lands­ins falli í flokk lindáa og Svartá er með þeim vatns­mestu. Hún flæðir með­fram grónum bökkum um fossa, gil og flúðir um lands­lag þar sem grósku­miklir árbakkar kall­ast á við hrjóstrugt heiða- og hraun­lands­lag.

Við Svartá og Suðurá þrífst líf­ríkt fugla­líf og eru ein­kenn­i­s­teg­undir vatna­sviðs­ins hús­önd og straumönd. Ísland er eina heim­kynni teg­und­anna í Evrópu og eru þær ábyrgð­ar­teg­undir Íslands og á lista Bern­ar­samn­ings­ins yfir teg­undir sem ber að vernda.

[adspot]

Nokkuð er síðan félagið SSB Orka hóf að stefna á virkjun Svartár. Eftir nokk­urra ára und­ir­bún­ing kom verk­efnið inn á borð Skipu­lags­stofn­unar í lok árs 2015 og í byrjun þess næsta ákvað stofn­unin að fram­kvæmdin skyldi háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Frum­mats­skýrsla var aug­lýst árið 2017 og í lok des­em­ber í fyrra var svo komið að Skipu­lags­stofnun að gefa út álit sitt. Og það var nokkuð svart.

Þegar mats­skýrslan er borin saman við álitið má glöggt sjá þann mikla mun á mati á áhrifum hinnar fyr­ir­hug­uðu virkj­unar á ákveðna þætti.

Áhrif á vatnalíf

SSB Orka: Áhrif fram­kvæmdar á vatna­líf verða nokkuð til tals­vert nei­kvæð að teknu til­liti til mót­væg­is­að­gerða.

Skipu­lags­stofnun: Þrátt fyrir boð­aðar mót­væg­is­að­gerðir, sem jafn­framt ríkir óvissa um að muni skila til­ætl­uðum árangri, mun Svart­ár­virkjun hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á líf­ríki Svartár.


Áhrif á gróður

SSB Orka: Heild­ar­á­hrif á gróður eru metin nokkuð til tals­vert nei­kvæð, stað­bundin og óaft­ur­kræf á virkj­un­ar­svæð­inu, en óveru­leg til nokkuð nei­kvæð þegar horft er til stærra svæðis.

Skipu­lags­stofnun: Áformin fela í sér skerð­ingu á vot­lendi þar sem aðrennsl­is­pípa liggur á kafla í gegnum halla­mýri. Halla­mýrin nýtur sér­stakrar verndar skv. lögum um nátt­úru­vernd. Ekki komi fram hvaða brýnu hags­munir liggi að baki og þarf fram­kvæmda­að­ili að leggja fram nýja leið fyrir aðrennsl­is­pípu og veg þar sem leit­ast er við að draga eins og kostur er úr raski á vot­lend­is­svæði. Engu að síður muni mann­virki virkj­un­ar­innar hafa í för með sér tals­verð nei­kvæð áhrif á gróður.

Áhrif á fugla

SSB Orka: Fram­kvæmd­irnar geta haft stað­bundin áhrif og breytt dreif­ingu húsanda. Í ljósi þess að um mik­il­vægt fugla­svæði er að ræða fyrir teg­und­ina eru þau metin tals­vert nei­kvæð á áhrifa­svæð­inu en nokkuð nei­kvæð á vatna­svið­inu. Áhrif á straum­endur verði var­an­leg og nokkuð nei­kvæð á áhrifa­svæð­inu en óveru­leg utan þess.

Skipu­lags­stofnun: Þrátt fyrir boð­aðar mót­væg­is­að­gerðir er Svart­ár­virkjun lík­leg til að hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á fugla. Það er „aðfinnslu­vert af hálfu fram­kvæmd­ar­að­ila að halda því fram“ að áhrifa­svæði virkj­un­ar­innar sé sá hluti árinnar sem sé síst mik­il­vægur fyrir hús­önd. Í svörum við athuga­semdum segir fram­kvæmd­ar­að­ili að full­yrð­ingin sé byggð á skýrslu Nátt­úru­stofu Norð­aust­ur­lands frá 2015 sem byggði á rann­sóknum frá árinu 2012 auk þess sem vísað er til þess að við heild­ar­taln­ingu í júní 2016 hafi svæðið verið með einna minnst af hús­önd. „Fram­kvæmd­ar­að­ili skautar hins­vegar fram­hjá nið­ur­stöðum taln­ingar að vori 2016 þegar mun fleiri húsendur voru innan áhrifa­svæðis virkj­un­ar­innar og þeirra álykt­ana sem Nátt­úru­stofan dregur af þeim taln­ingum.“

Áhrif á landslag og ásýnd

SSB Orka: Lands­lagið á svæð­inu hefur miðl­ungs gildi fyrir fjöl­breyti­leika, upp­lifun og vernd­ar­gildi. Fram­kvæmd­irnar koma ekki til með að skerða fjöl­breyti­leika lands­lags­ins en raska lít­il­lega svæði sem heyra undir sér­staka vernd eins og vot­lendi og nútíma­hraun. Með til­liti til mót­væg­is­að­gerða eru áhrif á lands­lag metin nokkuð nei­kvæð, stað­bundin og aft­ur­kræf.

Skipu­lags­stofnun: Virkjun Svartár kæmi til með að hafa tals­vert nei­kvæð stað­bundin áhrif á lands­lag og ásýnd. Hún myndi hafa nei­kvæð áhrif á aðdrátt­ar­afl árinnar og umhverfi hennar á því svæði sem áhrifa gætir.

Umfjöllun í mats­skýrslu um gildi svæð­is­ins með til­liti til lands­lags er „ekki sann­fær­andi“. Aðferð­ar­fræðin við matið er ekki útskýrð og umfjöll­unin ekki til þess fallin að draga fram sér­kenni lands­lags­ins eða gildi þess. Stofn­unin telur fram­kvæmd­ar­að­ila van­meta gildi lands­lags og nærum­hverfis Svartár.

Áhrif á ferðamennsku og útivist

SSB Orka: Áhrif Svart­ár­virkj­unar á ólíka hópa ferða­manna geta verið frá því að vera óveru­leg og allt að tals­vert nei­kvæð.

Skipu­lags­stofnun: Gildi Bárð­ar­dals fyrir nátt­úru­ferða­mennsku mun rýrna ef af virkjun verður. Öll ferða­mennska og ferða­þjón­usta sem nú er stunduð í Bárð­ar­dal verður fyrir nei­kvæðum áhrifum af fyr­ir­hug­aðri virkjun.

Áhrif á samfélag

SSB Orka: Áhrif á sam­fé­lagið eru talin verða nokkuð jákvæð á fram­kvæmda­tíma vegna auk­inna umsvifa en mögu­leg nei­kvæð áhrif verða vegna auk­ins álags á inn­viði. Á rekstr­ar­tíma verða áhrif óveru­leg til nokkuð jákvæð.

Skipu­lags­stofnun: Í athuga­semdum við frum­mats­skýrslu, sem skiptu tugum, komu fram þau sjón­ar­mið að áform um virkjun Svartár hefðu skapað ósætti meðal íbúa Þing­eyj­ar­sveitar. Er það í sam­ræmi við það sem kom fram í rann­sókn Rann­sókna­mið­stöðvar Háskól­ans á Akureyri (RHA) á sam­fé­lags­legum áhrifum virkj­ana í 4. áfanga ramma­á­ætl­unar. Í rann­sókn­inni var gagna aflað með ein­stak­lings- og rýni­hópa­við­tölum.

Virkjun Svartár mun mögu­lega hafa áhrif á sam­heldni íbúa nær­sam­fé­lags­ins. „Af frá­sögnum íbúa í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu og Austur-Húna­vatns­sýslu settu harð­vít­ugar deilur í aðdrag­anda Lax­ár­virkj­unar III og Blöndu­virkj­unar mark sitt á sam­fé­lögin í mörg ár,“ segir í skýrslu RHA. „Í báðum til­vikum var um sveit­ar­sam­fé­lög að ræða þar sem nánd og sam­heldni er talin ein­kenna sam­skipti í meira mæli en í borg­ar­sam­fé­lögum og fólk þarf að vinna saman að ýmsum verk­efnum. Klofn­ingur og ósætti veikja sam­fé­lögin og getur tekið langan tíma að end­ur­heimta traust og eðli­leg sam­skipti á milli deilu­að­ila. Í ein­staka til­vikum virð­ist aldrei gróa um heilt á milli manna af sömu kyn­slóð og deil­urnar geta smit­ast yfir á sam­skipti barna þeirra sem deila.“

Samlegðaráhrif við Hrafnabjargavirkjun

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem enn liggur fyrir þing­inu, er lagt til að vatna­svið Skjálf­anda­fljóts verði verndað. Þar vildi Lands­virkjun reisa Hrafna­bjarga­virkjun og voru þrjár útfærslur hennar sendar til umsagnar verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar á sínum tíma og eru þær í bið­flokki 2. áfanga hennar.

Skipu­lags­stofnun bendir í áliti sínu á sam­legð­ar­á­hrifin með þessum tveimur virkj­ana­hug­myndum; Svart­ár­virkjun og Hrafna­bjarga­virkjun. En þar sem sú fyrr­nefnda er undir 10 MW þarf hún ekki að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar sem sýnir að mati stofn­un­ar­innar veik­leika þess­ara stærð­ar­for­senda. „Hér er um að ræða virkjun undir þeim stærð­ar­mörkum sem mun að mati Skipu­lags­stofn­unar hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og til­efni hefði verið til að meta með öðrum virkj­un­ar­kostum í ramma­á­ætlun [...].“

Nánast vígvöllur í virkjanadeilu

Í Þing­eyj­ar­sveit eru fyrir Lax­ár­virkj­anir sem reistar voru á árunum 1939-1973. Í skýrslu RHA segja sveit­ungar sem sátu í rýni­hópum að ekki hafi komið til mik­illa deilna vegna þeirra fyrstu en allt aðra sögu hafi verið að segja um Lax­ár­virkjun III. Deil­urnar um hana voru einkar ill­vígar „og nán­ast víg­völlur hérna“ í 6-7 ár, er haft eftir einum íbúa, þar til gerð var sátt­ar­gjörð um lausn Lax­ár­deil­unnar árið 1973.

Svo erfið var sú deila mörgum að sárin erfð­ust í raun á milli kyn­slóða. „Ég kann­ast alveg við að hafa alist upp og menn voru að takast á, bara fárán­legt, bara út af því hvar feður þeirra voru í þeirri deilu,“ sagði einn af yngri íbúum sem ræddi við skýrslu­höf­unda.

Jákvæðni í garð Þeistareykjavirkjunar

Í Þing­eyj­ar­sveit er einnig ein yngsta virkjun lands­ins: Þeista­reykja­virkjun. Deilur um hana voru ekki miklar í sveit­ar­fé­lag­inu, að minnsta kosti ekki opin­ber­lega. Á því var hamrað, að sögn eins íbú­ans sem rætt er við í skýrslu RHA, að hún ætti að nýt­ast íbúum í Þing­eyj­ar­sýslu og á Húsavík og „það nátt­úr­lega gerði fólk jákvæð­ara gagn­vart henni“.

Virkj­unin var að frum­kvæði heima­manna og einnig er sveit­ar­fé­lagið land­eig­andi sem hafði líka sitt að segja. Í við­tali við odd­vita og sveit­ar­stjóra Þing­eyj­ar­sveitar í RHA-skýrsl­unni kom fram að Þing­ey­ingar hefðu tekið ákvörðun um að „fórna Þeista­reykjum fyrir virkjun sem átti að verða til atvinnu­upp­bygg­ingar í hér­aði. Þetta er mjög heil­agur staður fyrir marga …“

Gjaldþrota án Þeistareykjavirkjunar

Á þessum tíma, rétt fyrir alda­mót, var staða sveit­ar­fé­lags­ins slæm og fólks­fækkun mikil. „… það er engin laun­ung á því og má alveg segja það upp­hátt, að ef ekki hefði verið farið í Þeista­reyki og við hefðum ekki getað selt Þeista­reyki til Lands­virkj­unar þá hefði Þing­eyj­ar­sveit verið gjald­þrota í dag,“ er haft eftir odd­vita og sveit­ar­stjóra í skýrslu RHA.

[adspot]

Sveit­ar­stjórn­ar­fólkið segir einnig að áformin hafi verið vel kynnt fyrir íbúum, sam­ráð haft við þá og til­lit tekið til athuga­semda stað­kunn­ugra heima­manna um hvað mætti betur fara. Ekki sé hægt lengur að byggja virkjun án svo ítar­legs sam­tals. Það seg­ist hins vegar hafa áhyggjur af áformum um virkj­anir sem mæti and­stöðu. Í þannig málum lendi sveit­ar­stjórnir í klemmu á milli land­eig­enda sem vilja semja við virkj­un­ar­að­ila og vilja ann­arra íbúa. Er ann­ars vegar talað um að Svart­ár­virkjun sé „heit kartafla núna“ og að í ljósi auk­ins áhuga á smá­virkj­unum sé óska­staðan að sveit­ar­fé­lög geti ákveðið hvar megi virkja og hvar ekki – sama hversu lítil virkj­unin er að afli.

Vitið þið ekki að það á að sökkva þessum dal?

Reynslan af þessum tveimur virkj­ana­hug­myndum; Lax­ár­virkj­unar III ann­ars vegar og Þeista­reykja­virkj­unar hins vegar, ætti að sýna fram á nauð­syn góðs sam­ráðs við íbúa við­kom­andi sveit­ar­fé­lags. Einn eldri íbúi í Þing­eyj­ar­sveit tók dæmi af hinu litla sam­ráði við heima­menn þegar Lax­ár­virkjun III var í píp­unum: „1967 og 8 þá frétta þeir það bændur í Laxárdal tveir sem að sækja um lán hjá stofn­lána­deild Land­bún­að­ar­ins til þess að stækka hel­vítis fjár­húsin eða hlöð­una eða eitt­hvað. Þá er þeim sagt það: Nei, það kemur ekki til greina. Vitið þið ekki að það á að sökkva þessum dal?”

Álitið grundvöllur ákvarðanatöku

Dagbjört sveit­ar­stjóri Þing­eyj­ar­sveitar, segir við Kjarnann að ekki sé gert ráð fyrir Svart­ár­virkjun á gild­andi aðal­skipu­lagi og að SSB Orka hafi ekki óskað eftir því frá því að álit Skipu­lags­stofn­unar lá fyrir. Álitið var tekið fyrir á fundi sveit­ar­stjórnar fyrir helgi og vísað til kynn­ingar í umhverfis- og skipu­lags­nefnd. „Eðlilegt er að sveit­ar­fé­lagið bíði eftir við­brögðum fram­kvæmda­að­ila eða kalli eftir afstöðu fram­kvæmda­að­ila og ef óskað verður eftir breyt­ingu á aðal­skipu­lagi mun sveit­ar­stjórn taka ákvörðun og í fram­hald­inu afgreiða málið,“ segir Dagbjört. „Álit Skipu­lags­stofn­unar ætti að fela í sér betri grund­völl til ákvarð­ana­töku þegar og ef til þess kemur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár