Svartárvirkjun myndi raska verulega miklum náttúruverðmætum

Skipu­lags­stofnun telur að umhverf­is­á­hrif virkj­unar Svartár verði veru­lega nei­kvæð. Stofn­unin telur í því sam­bandi mik­il­vægt að horfa til þess að um er ræða virkjun með undir 10 MW upp­sett afl sem mun hafa í för með sér að mikil nátt­úru­verð­mæti raskast.

Hólma­svæði Svar­tár og þrengsl­in Glæfra þar upp af. Stífla Svar­tár­virkj­un­ar yrði neðan túna efst í hægra horni mynd­ar­inn­ar.
Hólma­svæði Svar­tár og þrengsl­in Glæfra þar upp af. Stífla Svar­tár­virkj­un­ar yrði neðan túna efst í hægra horni mynd­ar­inn­ar. Mynd: Af Facebook-síðu Verndarfélags Svartár og Suðurár

Áformuð Svart­ár­virkjun í Bárð­ar­dal í Þing­eyj­ar­sveit myndi hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og mun hafa í för með sér „að mikil nátt­úru­verð­mæti raskast veru­lega“. Hún fellur ekki að ímynd svæð­is­ins og er lík­leg til að draga úr gildi þess fyrir nátt­úru­ferða­mennsku. Hún myndi lík­lega hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á fugla og sömu­leiðis á vatnafar og vatna­líf.

Skipu­lags­stofnun hefur gefið út álit um mat á umhverf­is­á­hrifum Svart­ár­virkj­unar í Bárð­ar­dal, Þing­eyj­ar­sveit.

SSB Orka áformar að reisa 9,8 MW virkjun með því að stífla Svartá um 500 metra fyrir ofan ármót Svartár og Grjótár. Vatn yrði leitt um aðrennsl­is­pípu um 3 kíló­metra leið að stöðv­ar­húsi sem yrði stað­sett um 1,5 kíló­metrum ofan við ármót Svartár og Skjálf­anda­fljóts. Virkj­unin mun leiða til skerð­ingar á rennsli Svartár á um þriggja kíló­metra kafla á milli stíflu og frá­rennsl­is­skurðar frá stöðv­ar­húsi.

[adspot]

Svartá og Suðurá eru lindár sem eiga upp­runa í lind­ar­vatn­inu Svart­ár­vatni og lindum sem spretta fram í Suð­ur­ár­botnum í Ódáða­hrauni. Árnar sam­ein­ast nokkru neðan Svart­ár­vatns og bera heitið Svartá frá ármótum að Skjálf­anda­fljóti. Vatna­svið Svartár og Suðurár hefur mikið vernd­ar­gildi, segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar. „Um er að ræða einar líf­rík­ustu og vatns­mestu lindár lands­ins sem renna um blásin hraun í umhverfi þar sem inn­grip manns­ins eru lítil auk þess sem vatna­sviðið er talið alþjóð­lega mik­il­vægt fugla­svæði.“ Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands hefur lagt til að svæðið fari á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár vegna ferskvatns­vist­gerðar og fugla.

Mun raska sérstæðu landslagi

Áformuð Svart­ár­virkjun mun að mati Skipu­lags­stofn­unar raska vot­lendi og jarð­minjum sem njóta sér­stakrar verndar á grund­velli 61. gr. laga um nátt­úru­vernd og sem ber að forð­ast að raska nema brýna nauð­syn beri til. Helstu áhrif fram­kvæmd­ar­innar fel­ast þó í áhrifum á vatnafar og líf­ríki vatns­falls með mikið vernd­ar­gildi. Auk þess mun virkj­unin raska sér­stæðu lands­lagi sem má ætla að hafi mikið upp­lif­un­ar­gildi.

Skipu­lags­stofnun telur að umhverf­is­á­hrif virkj­unar Svartár í heild verði veru­lega nei­kvæð. Stofn­unin telur í því sam­bandi einnig mik­il­vægt að horfa til þess að um er ræða virkjun með undir 10 MW upp­sett afl „sem mun hafa í för með sér að mikil nátt­úru­verð­mæti raskast veru­lega“.

Áformin verði endurskoðuð

Áform um Svart­ár­virkjun kalla á breyt­ingu á aðal­skipu­lagi Þing­eyj­ar­sveitar, en ferli við aðal­skipu­lags­breyt­ingu vegna virkj­un­ar­innar hefur verið í bið­stöðu á meðan umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar fór fram. Skipu­lags­stofnun telur nið­ur­stöður umhverf­is­mats­ins gefa til­efni til að end­ur­skoða áform um að gera ráð fyrir Svart­ár­virkjun í aðal­skipu­lagi Þing­eyj­ar­sveitar.

Lindár eru að mörgu leyti sér­stakar hvað varðar eðlis- og efna­eig­in­leika sem og vatna­fræði­lega eig­in­leika og finn­ast óvíða ann­ars staðar í heim­inum en á Íslandi. Bendir Skipu­lags­stofnun á. Þétt­leiki dýra í Svartá er meiri en í flestum lindám hér á landi og í ánni er að finna stór­vax­inn urriða. „Fyr­ir­huguð virkjun mun hafa í för með sér veru­lega skert rennsli á löngum kafla árinnar sem er lík­legt til að leiða til breyt­inga á eig­in­leikum vatns­falls­ins og nei­kvæðra áhrifa á fæðu­keðj­una. Skert rennsli er lík­legt til að draga úr líf­rænni fram­leiðslu og fram­burði líf­rænna efna og minnka búsvæði.“

Að mati Skipu­lags­stofn­unar eru áhrif fram­kvæmd­ar­innar á vatnafar og vatna­líf lík­leg til að verða veru­lega nei­kvæð.

Einu heimkynni hús- og straumanda í Evrópu

Húsönd og straumönd eru ein­kenn­i­s­teg­undir vatna­sviðs Svartár og Suðurár. Ísland er einu heim­kynni teg­und­anna í Evrópu og eru þær ábyrgð­ar­teg­undir Íslands og á lista Bern­ar­samn­ings­ins yfir teg­undir sem ber að vernda. Svæðið Svartá-Suðurá er á lista Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands yfir mik­il­væg fugla­svæði með alþjóð­legt vernd­ar­gildi þar sem fjöldi húsanda á svæð­inu nær alþjóð­legum vernd­ar­við­miðum. „Þrátt fyrir að vatna­svið Svartár og Suðurár sé ekki víð­feðmt, má telja vatna­sviðið mik­il­væg­asta búsvæði húsandar og straum­andar að vor- og sum­ar­lagi utan Mývatns og Laxár,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar. Auk áður­nefndra teg­unda verpir nokkur fjöldi ann­arra fugla­teg­unda á válista við Svartá.

[adspot]

Fyr­ir­huguð virkjun mun raska svæði sem er talið mik­il­vægt hús­önd að vori en hátt hlut­fall af húsand­ar­stofni vatna­sviðs­ins getur haldið til á svæð­inu á þeim árs­tíma. Þá eru heim­ildir um að fjöldi húsanda hafi leitað inn á þetta svæði þegar æti hefur brugð­ist á Mývatns- og Lax­ár­svæð­inu.

Fram­kvæmdin er að mati Skipu­lags­stofn­unar lík­leg til að rýra gæði svæð­is­ins veru­lega fyrir hús­önd en búsvæði húsandar eru afar tak­mörkuð „og kann fram­kvæmdin að hafa áhrif á heild­ar­stofn húsanda á Íslandi og þar af leið­andi í Evrópu“. Að mati Skipu­lags­stofn­unar eru fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir lík­legar til að hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á fugla.

Mun ekki falla að ímynd svæðisins

Svartá flæðir með­fram grónum bökkum um fossa, gil og flúðir um lands­lag þar sem grósku­miklir árbakkar kall­ast á við hrjóstrugt heiða- og hraun­lands­lag. Svæðið ber jafn­framt ein­kenni hefð­bund­ins land­bún­að­ar­lands­lags á mörkum byggðar og óbyggða þar sem tak­mörkuð ummerki eru um inn­grip manns­ins. „Tilkoma virkj­unar mun breyta veru­lega upp­lifun af svæði næst virkjun og rýra gildi þeirrar sér­stæðu lands­lags­heildar sem Svartá og Suðurá mynda,“ segir í álit­inu. Samkvæmt vernd­ar­mark­miðum nátt­úru­vernd­ar­laga skal stefnt að því að varð­veita lands­lag sem er sér­stætt eða fágætt eða sér­lega verð­mætt vegna fag­ur­fræði­legs og/eða menn­ing­ar­legs gildis. Skipu­lags­stofnun telur að lands­lag Svartár og Suðurár falli þar undir.

Samkvæmt skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála um áhrif Svart­ár­virkj­unar á ferða­þjón­ustu og úti­vist er það nátt­úran og mann­vist­ar­lands­lagið sem dregur fólk á svæðið, fólk sæk­ist eftir því að upp­lifa ósnortna nátt­úru. Gildi Svartár sem veiðiár felist ekki ein­göngu í sterkum urriða­stofni heldur einnig nátt­úru svæð­is­ins og þeirri upp­lifun að dvelja í ósnortnu umhverfi árinnar. Fyr­ir­huguð virkjun falli ekki að ímynd svæð­is­ins og sé lík­leg til að draga úr gildi þess fyrir nátt­úru­ferða­mennsku og skerða mögu­leika til að þróa áfram nátt­úru­tengda ferða­þjón­ustu á svæð­inu.

Tengsl við rammaáætlun

Allir virkj­un­ar­kostir, 10 MW og stærri, sæta heild­stæðri grein­ingu og mati verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun. Svart­ár­virkjun, sem er áformuð 9,8 MW, sýnir að mati Skipu­lags­stofn­unar „veik­leika þess að ákveðið upp­sett afl segi alfarið til um það hvaða fram­kvæmdir skulu teknar fyrir í ramma­á­ætlun“. Hér er um að ræða virkjun undir þeim stærð­ar­mörkum sem mun að mati Skipu­lags­stofn­unar hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og til­efni hefði verið til að meta með öðrum virkj­un­ar­kostum í ramma­á­ætlun, þar á meðal vegna sam­legð­ar­á­hrifa með Hrafna­bjarga­virkjun sem er lagt til að falli í vernd­ar­flokk sam­kvæmt til­lögu til þings­á­lykt­unar um ramma­á­ætlun, en er í bið­flokki sam­kvæmt gild­andi ramma­á­ætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár