Fimmta mánuðinn í röð flýja sjóðsfélagar með húsnæðislánin sín frá lífeyrissjóðum til banka

Upp­greiðslur á hús­næð­is­lánum hjá líf­eyr­is­sjóðum námu hærri upp­hæð en nokkru sinni áður í októ­ber­mán­uði. Íslenskir við­skipta­bankar hafa lánað tvisvar sinnum meira á fyrstu tíu mán­uðum þessa árs en þeir gerðu allt árið í fyrra.

Frá því í júní hefur átt sér stað flótti hús­næð­is­lán­tak­enda frá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins og til við­skipta­bank­anna. Hann byrj­aði hægt. Í fyrsta mán­uði þessa tíma­bils dróg­ust útlán umfram upp­greiðslur saman um nokkur hund­ruð millj­ónir króna. Í júlí var sam­drátt­ur­inn vel á þriðja millj­arð króna. Í ágúst var hann tæp­lega fimm millj­arðar króna og í sept­em­ber um 3,5 millj­arðar króna. Sam­an­lagt greiddu sjóðs­fé­lagar upp lán fyrir um 13,7 millj­arða króna umfram ný útlán á þessum fjórum mán­uðum.

Nýjar hag­tölur Seðla­banka Íslands , sem sýna stöðu líf­eyr­is­sjóða í lok októ­ber, voru birtar í morgun. Þar kemur fram að sá mán­uður sló öll met þegar horft er til sam­dráttar í hús­næð­is­lánum til sjóðs­fé­laga. Alls dróg­ust útlán sjóð­anna saman um 8.955 millj­ónir króna í októ­ber­mán­uði. Það er mesta lækkun sem orðið hefur í einum mán­uði á útlána­safni líf­eyr­is­sjóða lands­ins frá því að Seðla­bank­inn fór að halda utan um, og birta opin­ber­lega, þær tölur í byrjun árs 2009.

[adspot]Fyrir júní­mánuð 2020 hafði það aldrei gerst, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Seðla­bank­inn birtir, að upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána námu hærri fjár­hæð en nýjar lán­tök­ur.

Nú hefur það gerst fimm mán­uði í röð.

Lágir vextir og hækkandi verðbólga

Langstærstur hluti þeirra lána sem greidd hafa verið upp á ofan­greindu tíma­bili eru verð­tryggð lán. Alls hafa sjóðs­fé­lagar í líf­eyr­is­sjóðum greitt upp 24,7 millj­arða króna af slíkum lánum umfram þau nýju lán sem hafa verið tek­in á þessu fimm mán­aða tíma­bili.

Ástæða þessa eru tvær. Í fyrsta lagi hafa stýri­vaxta­lækk­anir Seðla­banka Íslands (bank­inn lækk­aði vexti niður í eitt pró­sent í vor og svo niður í 0,75 pró­sent við síð­ustu vaxta­á­kvörðun) leitt til þess að óverð­­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir þriggja stærstu bank­anna hafa hríð­­lækk­­að. Breyt­i­­legir óverð­­­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­­­bank­ans eru nú til að mynda 3,3 pró­­­sent. Hjá Íslands­banka eru þeir 3,4 pró­sent. Á sam­­­­bæri­­­­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,54 pró­­­­sent. Í upp­­­hafi árs í fyrra voru breyt­i­­­legir óverð­­­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­­­sent. Þeir hafa því helm­ing­ast.

Við þessu hafa íslenskir lán­tak­endur brugð­ist með því að færa lánin sín þangað sem bestu kjörin eru. Sömu­leiðis hefur þessi mikla vaxta­lækkun, sem þýðir ein­fald­lega að lánsfé er hún helm­ingi ódýr­ari en það var fyrir tæpum tveimur árum, hleypt miklu lífi í fast­eigna­mark­að­inn.

Í öðru lagi hefur verð­bólga farið vax­andi og mælist nú 3,5 pró­sent. Íslenskir lán­tak­endur hafa sýnt það á síð­ustu árum að þeir hafi margir hverjir lært sína lexíu af banka­hrun­inu og er fljótir að skipta yfir í óverð­tryggð lán þegar verð­bólgan fer yfir mark­mið Seðla­bank­ans, sem er 2,5 pró­sent. Síðustu mán­uðir hafa ekki verið und­an­tekn­ing frá þeirri reglu.

Bankarnir hafa lánað tvöfalt meira

Frá haustinu 2015 og fram á vor­daga 2020 þá kepptu við­skipta­bankar lands­ins ekki um hluta þeirra hús­næð­is­lán­tak­enda sem mynda íslenskan fast­eigna­markað. Þeir gátu boðið hærra láns­hlut­fall en líf­eyr­is­sjóð­irnir, og náðu þannig til þeirra sem þurftu að skuld­setja sig meira til að eign­ast þak yfir höf­uðið, en vaxta­kjörin á lánum bank­anna voru í óra­fjar­lægð frá því sem stóð til boða hjá líf­eyr­is­sjóð­unum.

[links]Það hefur breyst. og breyst hratt, líkt og rakið var hér að ofan.

Á þessu ári nema ný útlán við­skipta­banka til heim­ila lands­ins umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur, þar sem veð er tekið í fast­eign, alls um 260,5 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar voru þau 128,2 millj­arðar króna allt síð­asta ár. Það þýðir að á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2020 hafa bank­arnir lánað tvisvar sinnum meira í hús­næð­is­lán til heim­ila en þeir gerðu allt árið í fyrra.

Ásóknin hefur öll verið í óverð­tryggð lán. Umfang nýrra slíkra er um 282 millj­arðar króna það sem af er ári, sem þýðir að meira hefur verið greitt upp af verð­tryggðum lánum en tekið af þeim. Tæplega 96 pró­sent allra óverð­tryggðu lán­anna hafa verið tekin á breyti­legum vöxtum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár