Engin bankakreppa

Ólíkt síð­ustu efna­hag­skreppu má ekki sjá sam­drátt­ar­merki í þremur stærstu bönkum lands­ins, sem hafa allir skilað millj­arða­hagn­aði það sem af er ári. Hvernig má það vera?

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka og Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri Lands­bank­ans, Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri Íslands­banka og Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka. Mynd: Samsett

Þrátt fyrir að Íslands­banki, Lands­bank­inn og Arion banki hafi allir orðið fyrir nei­kvæðum áhrifum vegna efna­hags­á­hrifa útbreiðslu kór­ónu­veirunnar skil­uðu þeir tveggja til sjö millj­arða króna hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Þar vega þyngst aðgerðir stjórn­valda, breytt neyt­enda­hegðun og hag­ræð­ing í rekstri.

Milljarðar tapast og lítið lánað

Þegar árs­hluta­reikn­ingar bank­anna þriggja eru bornir saman sést að mikil verð­mæti í eigu bank­anna hafa tap­ast á síð­ustu mán­uðum í formi virð­is­rýrn­unar lána. Leiða má líkum að því að stór hluti þess­arar virð­is­rýrn­unar komi frá inn­lendum fyr­ir­tækjum í rekstr­ar­vanda sem hafa útistand­andi lán hjá bönk­unum. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins nam virð­is­rýrn­unin hjá bönk­unum þremur sam­tals um 26 millj­örðum króna og var hún tæp­lega fjór­föld því sem hún var á sama tíma­bili í fyrra, þegar hún nam sjö millj­örðum króna.

Til við­bótar við aukna virð­is­rýrnun hefur fjár­fest­ing í einka­geir­anum minnkað tölu­vert og hefur því lán­taka þar dreg­ist tölu­vert saman. Þetta sést ef fjöldi fyr­ir­tækja­lána er bor­inn saman við árin á undan, en ný lán til fyr­ir­tækja í ár eru minna en tíu pró­sent af því sem var lánað árið 2018. Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka sagði á fjöl­miðla­fundi við kynn­ingu á árs­hluta­upp­gjöri bank­ans að ástæðan á bak við litla lán­veit­ingu til fyr­ir­tækja væri sú að lítil eft­ir­spurn væri eftir slíkum lánum þessa stund­ina.

Vaxtalækkanir juku eftirspurn

Þrátt fyrir minnk­andi útlán til fyr­ir­tækja hefur heild­ar­fjöldi útlána auk­ist í bönk­unum þremur á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Frá ára­mótum hafa lán til við­skipta­vina Arion banka auk­ist um fjögur pró­sent, á meðan sam­svar­andi aukn­ing nemur átta pró­sentum hjá Íslands­banka og tíu pró­sentum hjá Lands­bank­anum.

Þunginn af þess­ari aukn­ingu er í íbúða­lánum, en eft­ir­spurn eftir þeim stórjókst eftir að þau urðu ódýr­ari vegna mik­illa vaxta­lækk­ana í Seðla­bank­anum í vor og hafa bank­arnir þrír allir aukið veru­lega við sig í þeim flokki útlána.

Aukin innlán hjálpuðu bönkunum

Aftur á móti, þótt Seðla­bank­inn hafi aukið eft­ir­spurn eftir íbúða­lánum, var ekki sjálf­gefið að bank­arnir gætu annað henni. Það gátu þeir hins vegar nokkuð auð­veld­lega, þar sem magn inn­lána hefur auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum.

Arion banki bendir á þessa aukn­ingu inn­lána í nýj­ustu hag­spánni sinni, en sam­kvæmt honum hafa inn­lán í banka­kerf­inu auk­ist um 66 millj­arða króna í ár. Bankinn telur að aukn­ing­una megi að hluta til rekja til launa­hækk­ana, breyttrar neyslu­hegð­unar og óvissu um efna­hags­horfur. Þótt kreppan hafi leitt til mik­illar aukn­ingar í atvinnu­leysi hafa kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir, auk þess að flest störf sem töp­uð­ust voru lág­launa­störf, leitt til þess að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hefur auk­ist að með­al­tali.

Hins vegar hefur neysla ekki auk­ist jafn­hratt, ef til vill vegna þess að fólk ákveður að leggja meira til hliðar í efna­hag­sóvissu. Einnig má hér nefna að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir fylgdu óform­legum til­mælum Seðla­bank­ans á þessu tíma­bili um að halda aftur af fjár­fest­ingum erlendis og gæti sú ákvörðun einnig hafa leitt til þess að meira hafi verið sett inn á inn­láns­reikn­inga bank­anna.

Hjá Íslands­banka juk­ust inn­lán um 13 pró­sent, á meðan sam­svar­andi aukn­ing nam 15 pró­sentum í Lands­bank­anum og 22 pró­sentum í Arion banka. Þessi aukn­ing, auk slak­ari eig­in­fjár­krafna í kjöl­far þess að Seðla­bank­inn aflétti svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka, gerði bönk­unum kleift að bregð­ast við mik­illi eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu með meiri útlánum.

Vaxtamunur breyttist lítið

Lækkun vaxta getur skapað vand­ræði fyrir rekstur við­skipta­banka, sem hagn­ast aðal­lega á vaxta­mun inn- og útlána. Þegar vextir á útlánum bank­anna lækka þurfa vextir á inni­stæðum þeirra að lækka jafn­mikið svo að vaxta­tekj­urnar hald­ist óbreyttar. Erfitt er hins vegar að halda vaxta­mun­inum óbreyttum þegar inn­láns­vextir eru komnir nálægt núll­inu, þar sem setja þyrfti nei­kvæða vexti á inn­láns­reikn­inga.

Þrátt fyrir það hefur vaxta­munur bank­anna ekki minnkað svo mikið. Raunar hækk­aði hann lít­il­lega hjá Arion banka og er nú 2,9 pró­sent, miðað við 2,7 pró­sent á sama tíma í fyrra. Hjá Íslands­banka lækk­aði hann svo úr 2,6 pró­sentum niður í 2,5 pró­sent, og úr 2,3 niður í 2,2 pró­sent hjá Lands­bank­anum.

Skipulagsbreytingar drógu úr kostnaði

Einnig átti sér stað tölu­verð hag­ræð­ing á kostn­að­ar­hlið­inni, en skipu­lags­breyt­ingar sem bank­arnir hófu í fyrra hafa skilað sér í tölu­vert minni rekstr­ar­kostn­aði hjá öllum bönk­unum það sem af er ári, ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra. Stöðu­gildum hjá bönk­unum hefur fækkað um 70, sem er um þriggja pró­senta fækkun starfs­manna í fullu starfi.

Fækkun starfs­manna, auk ann­arra aðgerða, leiddi til þess að rekstr­ar­kostn­aður Íslands­banka minnk­aði um 9 pró­sent milli ára, en minnkunin nam 13 pró­sentum hjá Lands­bank­anum og Arion banka.

Milljarðahagnaður

Þökk sé svip­uðum rekstr­ar­tekjum og minni rekstr­ar­kostn­aði vegna skipu­lags­breyt­inga skil­uðu allir bank­arnir millj­arða­hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Hagnaður Íslands­banka nam 3,2 millj­örðum og var hann helm­ingi minni en á sama tíma í fyrra. Hjá Lands­bank­anum nam hagn­að­ur­inn hins vegar fjórum millj­örðum og jókst hann um 750 millj­ónir króna milli ára. Arion banki hagn­að­ist hins vegar um 6,7 millj­arða króna, sem er nærri því tvö­falt meira en hann gerði á sama tíma­bili í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár