Ný lán til fyrirtækja í ár minna en tíu prósent af því sem var lánað 2018

Aðgengi íslenskra fyr­ir­tækja að láns­fjár­magni hjá bönkum virð­ist vera tor­veld­ara en áður. Ástæðan er aukin áhætta sem end­ur­spegl­ast í hækk­andi vaxta­á­lagi fyr­ir­tækja­út­lána bank­anna.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Ný útlán banka til atvinnu­fyr­ir­tækja lands­ins, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðsl­um, hafa numið 18,6 millj­örðum króna það sem af er ári. Það er ein­ungis 17 pró­sent af nýjum útlánum þeirra til fyr­ir­tækja á öllu síð­asta ári og tæp níu pró­sent af þeim nýju útlánum sem veitt voru árið 2018, þegar eft­ir­hruns­met var sett í útlánum banka til atvinnu­fyr­ir­tækja.

Þetta má lesa úr nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um íslenska banka­kerfið.

Þar af voru 16,2 millj­arðar króna lán­aðir út í mars og 12,5 millj­arðar króna í ágúst. Í fimm af níu fyrstu mán­uðum árs­ins voru ný útlán hins vegar nei­kvæð.

Mikil og snöggur samdráttur í nýjum útlánum

Mikill vöxtur var í útlánum inn­láns­stofn­ana lands­ins á upp­gangs­tímum síð­ustu ára. Um er að ræða, að uppi­stöðu, útlán sem Lands­bank­inn, Íslands­banki, Arion banki og Kvika banki veita.

Árið 2013 voru ný veitt útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja 79,2 millj­arðar króna. Ári síðar voru þeir 30 pró­sent meiri og á árinu 2015 juk­ust þau um 52 pró­sent. Ári síðar var heild­ar­um­fang nýrra útlána komið í 196,5 millj­arða króna og hélst á því róli út árið 2018, þegar það topp­aði í 208,7 millj­örðum króna.

Síðan þá hefur verið umtals­verður sam­dráttur í nýjum útlánum. Í fyrra voru þau 107,8 millj­arðar króna og nán­ast helm­ing­uð­ust á milli ára.

[adspot]Í ár hefur síðan orðið eðl­is­breyt­ing og bank­arnir greini­lega haldið að sér höndum í útlánum í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir og ein­ungis lánað 17 pró­sent af því sem þeir gerðu árið 2018 það sem af er árinu 2020.

Vaxtalækkanir skila sér ekki til fyrirtækja

Seðla­banki Íslands hefur gripið til ýmissa aðgerða vegna yfir­stand­andi ástands sem ætti að nýt­ast bönkum og við­skipta­vinum þeirra. Sveiflu­jöfn­un­ar­auki var afnumin sem losar veru­lega um það eigið fé sem bank­arnir þurfa að halda á og stýri­vextir voru lækk­aðir úr 4,5 pró­sentum niður í eitt pró­sent á þrettán mán­uðum, sem átti að skila miklu betri kjörum fyrir við­skipta­vini banka.

Seðla­bank­inn sagði í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu sem kom út í júní að vaxta­lækk­un­ar­ferlið hafi hins vegar „ekki skilað sér alveg eins vel á inn­láns- og útláns­vexti KMB [kerf­is­lega mik­il­vægir bankar] og sér­stak­lega hafa vextir nýrra útlána til fyr­ir­tækja lítið lækkað.“

Hættan á virðisrýrnun og gjaldþrotum fer vaxandi

Fjallað var áfram um þessa þróun í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands, sem kom út í lok síð­asta mán­aðar. Þar segir að sam­dráttur í inn­lendum skuldum fyr­ir­tækja bendi til þess að aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­magni sé hugs­an­lega tor­veld­ara en áður, fyrst og fremst vegna auk­innar áhættu sem end­ur­spegl­ast í hækk­andi vaxta­á­lagi fyr­ir­tækja­út­lána bank­anna. „Efna­hags­sam­drátt­ur­inn og aukin óvissa vegna far­sótt­ar­innar hefur einnig dregið veru­lega úr eft­ir­spurn eftir lánum þar sem sam­hliða dregur bæði úr áhættu­sækni fyr­ir­tækja og fram­boði á arð­bærum fjár­fest­ing­ar­tæki­færum.“

Seðla­bank­inn telur að skuldir fyr­ir­tækja sem nýta sér lána­úr­ræði stjórn­valda og fjár­mála­fyr­ir­tækja muni vaxa næstu mán­uði. „Mörg fyr­ir­tæki hafa orðið fyrir miklum tekju­sam­drætti og munu fara skuld­sett­ari inn í þann efna­hags­bata sem vænta má þegar far­sóttin verður um garð gengin. Áhætta fyr­ir­tækja vegna vaxta­breyt­inga og/eða tekju­falls eykst með auk­inni skuld­setn­ingu. Lágt vaxta­stig styður þó við skuld­sett fyr­ir­tæki að öðru óbreyttu og eykur sjálf­bærni skuld­setn­ingar.“

Versn­andi útlána­gæði lána­stofn­ana end­ur­spegl­ast hins vegar í breyttu áhættu­mati og vax­andi virð­is­rýrnun á öðrum árs­fjórð­ungi. Enn sem komið er hefur aðeins lít­ill hluti útlána kerf­is­lega mik­il­vægra banka til fyr­ir­tækja verið færður á stig 3 sam­kvæmt IFRS-9-reikn­ings­skila­staðl­inum, en við­búið sé að það breyt­ist næstu miss­eri enda hafi orðið tvö­földun á kröfu­virði útlána á stigi 2 og virð­is­rýrnun þeirra fimm­fald­ast. „Hættan á enn frek­ari virð­is­rýrnun og fjölgun gjald­þrota fer vax­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár