Úttekt FAO mun skiptast í fjóra áfanga og Ísland greiðir fyrir þann fyrsta

Ekki er enn búið að skrifa form­lega undir samn­ing við Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ina FAO um úttekt sem íslensk stjórn­völd eiga frum­kvæði að og varðar við­skipta­hætti útgerða. Vinnunni var hrundið af stað eftir að Sam­herj­a­málið kom upp fyrir ári síðan.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lét Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra vita af málinu eftir að ráðuneyti hans fékk ábendingu um það.
Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra lét Katrínu Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vita af mál­inu eftir að ráðu­neyti hans fékk ábend­ingu um það. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki er enn búið að und­ir­rita samn­ing við Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ina (FAO) um þá úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem íslensk stjórn­völd boð­uðu að þau myndu hafa frum­kvæði að í nóv­em­ber í fyrra, en vonir standa til að samn­ingur verði und­ir­rit­aður um miðjan nóv­em­ber.

Nú er eitt ár liðið frá því að málið sem varð til þess að rík­is­stjórnin ákváð að kosta þessa úttekt kom upp á yfir­borðið, með umfjöll­unum Kveiks og Stund­ar­innar um starf­semi Samherja í Namibíu.

Skömmu eftir að málið setti íslenskt sam­fé­lag hálf­part­inn á hlið­ina sett­ist rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir niður og kom sér saman um aðgerða­lista til þess að auka traust á íslensku atvinnu­líf­i. Ein af þessum sjö aðgerðum var umrædd úttekt FAO. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra átti að hafa frum­kvæði að því að alþjóða­stofn­unin myndi vinna úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir, þar á meðal í þró­un­ar­löndum.

Á grund­velli úttekt­ar­innar átti FAO svo að vinna „til­lögur til úrbóta í sam­vinnu við aðrar alþjóð­legar stofn­anir sem vinna að heil­brigðum við­skipta­hátt­um, gegn spill­ingu, mútum og pen­inga­þvætt­i,“ sam­kvæmt því sem sagði í aðgerða­lista rík­is­stjórn­ar­inn­ar.[links]


Kjarninn spurði atvinnu­vega­ráðu­neytið út í stöðu máls­ins fyrir rúmum mán­uði síðan og fékk þá þau svör að búið væri að móta verk­efnið og ná sam­komu­lagi við FAO um grund­vall­ar­at­riði úttekt­ar­innar og kostun Íslands á henni. Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar hefur einnig spurst fyrir um málið og í svari sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn hennar, sem birt hefur verið á vef Alþingis, er farið yfir stöðu máls­ins í meiri smá­at­riðum.

Fjögurra áfanga verkefni og Ísland mun a.m.k. kosta þann fyrsta

Samkvæmt svari ráð­herra mun verk­efnið skipt­ast í fjóra áfanga. Ísland hefur ákveðið að fjár­magna fram­kvæmd að minnsta kosti fyrsta áfang­ans, en annar áfangi úttekt­ar­innar verður útfærður nánar þegar þeim fyrsta er lokið og svo koll af kolli.

Fyrsti áfang­inn af þessum fjórum felst í kort­lagn­ingu á þeim fisk­veiði­samn­ingum sem um er að ræða. Ráðherra tekur sér­stak­lega fram í svari sínu að þetta verði ekki „upp­taln­ing á slíkum samn­ingum heldur grein­ing á því hvernig slíkir samn­ingar eru,“ og á það við að farið verði yfir „hvað þeir eigi sam­eig­in­legt og hvað sé ólíkt meðal þeirra, með svæð­is­bund­inni áherslu sem taki til­lit til mis­mun­andi aðstæðna og skoði hver séu helstu efn­is­at­riði slíkra samn­inga.“

„FAO telur að ekki sé til úttekt á þessu og því sé það mik­il­væg for­senda fyrir frekara starfi í þessu sam­bandi að skýra við­fangs­efnið frekar með því að skoða mis­mun­andi gerðir og eðli samn­inga og mis­mun­andi stöðu milli hinna ýmsu svæða heims­ins hvað það varðar. Úttekt sam­kvæmt fyrsta áfanga ætti því að vera til mik­illa bóta, ekki bara vegna næstu áfanga í þessu sam­starfs­verk­efni Íslands og FAO heldur ætti það að nýt­ast öðrum sem vinna að málum tengdum sam­skiptum þró­un­ar­ríkja við erlendar útgerðir,“ segir í svari ráð­herra.

Þar kemur einnig fram að vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hafi vinna við frá­gang forms­at­riða um úttekt­ina taf­ist og að ráðu­neytið hafi reynt að sýna því skiln­ing, en jafn­framt eftir fremsta megni reynt að þrýsta á hraða afgreiðslu máls­ins.

Talið að FAO hefði bestu sérfræðiþekkinguna

Hanna Katrín spurði ráð­herra af hverju ákvörðun hefði verið tekin um að leita til FAO um gerð úttekt­ar­innar frekar en UNODC, fíkni­efna- og glæpa­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefur á und­an­förnum árum barist gegn spill­ingu innan fisk­veiði­geirans á heims­vísu.

Í svari ráð­herra segir að FAO sé „vissu­lega ekki eina alþjóða­stofn­unin sem sinnir starfi tengdu þessum mál­efnum,“ en að varð­andi þetta verk­efni hefði nið­ur­staðan orðið sú að FAO væri sú stofnun sem hefði bestu sér­fræði­þekk­ingun og jafn­framt væri stefnt að því að nýta nið­ur­stöður FAO í vinnu á vett­vangi ann­arra alþjóða­stofn­ana.

Ráðherra vísar til yfir­lýs­inga rík­is­stjórn­ar­innar frá 19. nóv­em­ber í fyrra þar sem segir að FAO sé stærsta alþjóð­lega stofn­unin sem sinni reglu­bundnu starfi hvað varðar aðgerðir til að bæta stjórn fisk­veiða og þróun sjáv­ar­út­vegs á heims­vísu. Á vett­vangi stofn­un­ar­innar hafi verið gerðir alþjóða­samn­ingar m.a. til að takast á við ólög­legar veiðar og bæta stjórn og upp­lýs­inga­gjöf með fisk­veiðum. Verk­efnið falli því vel að hlut­verki stofn­un­ar­innar.

Ísland gerðist aðili að yfirlýsingu um skipulagða glæpastarfsemi í fiskiðnaði í nóvember í fyrra

Hanna Katrín spurði ráð­herra einnig út í svo­kall­aða „Kaup­manna­hafn­ar­yf­ir­lýs­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 2018 um skipu­lagða alþjóð­lega glæp­a­starf­semi í fisk­iðn­aði“. Þing­mað­ur­inn spurði hvort Ísland hefði verið aðili að henni frá upp­hafi og ef ekki, þá hvers vegna. Einnig spurði Hanna Katrín hvort Ísland hefði síðar gerst aðili að yfir­lýs­ing­unni og þá hvenær og hvers vegna.

Í svari ráð­herra er tekið fram að hvorki alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna né und­ir­stofn­anir þess hafi gefið út sér­staka yfir­lýs­ingu um hvernig verj­ast skuli alþjóð­legri glæp­a­starf­semi í fisk­iðn­aði. Kaup­manna­hafn­ar­yf­ir­lýs­ingin svo­kall­aða sé óbind­andi yfir­lýs­ing ráð­herra. En þar segir einnig að Ísland hafi ekki verið aðili að henni frá upp­hafi, heldur gerst aðili 27. nóv­em­ber 2019.

„Þar sem ráð­herra var ekki á ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn und­ir­rit­aði hann ekki yfir­lýs­ing­una,“ segir í svari ráð­herra. Níu ráð­herrar tóku þátt í und­ir­ritun þess­arar yfir­lýs­ingar í upp­hafi og er tekið fram í svar­inu að ráð­herrar frá Kyrra­hafs­eyjum hafi komið til Íslands í fram­hald­inu af fund­inum í Kaup­manna­höfn, tekið þátt í ráð­stefn­unni Arctic Circle og snætt kvöld­verð með ráð­herra.

„Yfir­lýs­ingin er mjög áþekk sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu nor­rænu sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anna frá 2017. Hún bygg­ist, m.a. hvað fisk­veiðar snertir, á sömu hugsun og finna má í samn­ingi FAO um hafn­rík­is­að­gerðir, sem Ísland hefur með ýmsum hætti stutt, þar sem horft er til þess að við fisk­veiði­stjórnun verði upp­rættur efna­hags­legur ábati af ólög­mætum fisk­veiðum. Í fram­haldi af ráð­stefn­unni hafa nokkur ríki lýst yfir stuðn­ingi við yfir­lýs­ing­una. Meðal þeirra er Ísland sem lýsti form­lega yfir stuðn­ingi við hana og gerð­ist því aðili að henni með ráð­herra­bréfi til vörslu­að­ila, dags. 27. nóv­em­ber 2019,“ segir í svari ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár