Vilja að Hafnfirðingar fái að segja hug sinn um fyrirhugaða sölu á HS Veitum

Meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar áformar sölu á 15,42 pró­senta hlut í HS Veitum til HSV eign­ar­halds­fé­lags á um það bil 3,5 millj­arða króna. Samtök í bænum eru til­búin að reyna aftur að knýja fram íbúa­kosn­ingu um málið.

Ólga er innan bæjarstjórnarinnar í Hafnarfirði vegna málsins.
Ólga er innan bæj­ar­stjórn­ar­innar í Hafn­ar­firði vegna máls­ins. Mynd: Wiki Commons

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar og óháðra í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar hefur tekið ákvörðun um að stefna að sölu 15,42 pró­senta hlut bæj­ar­ins í HS Veitum til HSV eign­ar­halds­fé­lags slhf. á um það bil 3,5 millj­arða króna.

Sölu­ferlið hefur verið umdeilt innan og utan bæj­ar­stjórn­ar­innar og sam­tök fólks í bæj­ar­fé­lag­inu eru með til skoð­unar að reyna á ný að knýja fram íbúa­kosn­ingu um söl­una.

Við­skipta­blaðið greindi fyrst frá því að þessi ákvörðun hefði verið tekin af meiri­hlut­anum og sagði frá átaka­fundi bæj­ar­ráðs um málið sem fram fór á mánu­dag, en þá var nið­ur­staða sölu­ferl­is­ins kynnt. Í dag var málið svo form­lega lagt fram á bæj­ar­ráðs­fundi og verður í kjöl­farið lagt fyrir bæj­ar­stjórn.

Samtök sem kalla sig Íbúa­lýð­ræði stóðu að und­ir­skrifta­söfnun í sumar og söfn­uðu alls 1.593 und­ir­skriftum fyrir því að hafn­firskir kjós­endur fengju að taka afstöðu til máls­ins áður en lengra yrði haldið með sölu­ferlið, sem hefur verið í umsjá Kviku banka frá því á vor­mán­uðum.

Fjöldi und­ir­skrifta var ansi fjarri því marki sem þarf til að knýja fram íbúa­kosn­ingu um málið, en til þess þarf að fá und­ir­skriftir frá fjórð­ungi þeirra sem eru á kjör­skrá í bæj­ar­fé­lag­inu eða yfir 5 þús­und und­ir­skriftir alls.

Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson, tals­maður sam­tak­anna og ábyrgð­ar­maður und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar í sumar, segir í sam­tali við Kjarnann að ef svo fari að salan verði sam­þykkt í bæj­ar­stjórn muni sam­tökin reyna að ná því marki á ný og leggja auk­inn kraft í und­ir­skrifasöfn­un­ina.

„Ég held að okkur geti tek­ist að ná þessum 5.000 und­ir­skriftum sem þarf, ég held að það sé engin spurn­ing,“ segir Óskar, en hann segir að söfn­unin í sumar hafi aðal­lega verið kynnt á net­inu og þeir sem að henni stóðu hafi ekki verið að ganga í hús eða stoppa Hafn­firð­inga á förnum vegi til þess að safna und­ir­skriftum.

„Við náðum ekki þessum 25 pró­senta þrös­k­uldi en það var samt alveg greini­legt að það var mikil ólga í bæj­ar­fé­lag­inu og Hafn­firð­ingar voru ekki sáttir við þessa ákvörðun. Ég lít þannig á að þetta hafi þá bara verið upp­hitun og við lærum af reynsl­unni hvað gekk illa, hvað gekk vel og leggjum meiri orku í þetta,“ segir Óskar Steinn.

Telja lýðræðislegt umboð skorta

Samtökin sendu yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla í morgun og sögð­ust krefj­ast þess að bæj­ar­stjórnin leyfði Hafn­firð­ingum að kjósa um málið. Þau segja lýð­ræð­is­legt umboð skorta, þar sem einka­væð­ing opin­berra orku­inn­viða hafi ekki verið á stefnu­skrá neins flokks fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2018 og einnig þar sem flokk­arnir sem myndi meiri­hluta í bæj­ar­stjórn hafi færri atkvæði á bak við sig en minni­hlut­inn.

„Þessi stað­reynd hlýtur að setja þá kröfu á meiri­hlut­ann að hann sýni auð­mýkt og sam­starfsvilja en keyri ekki umdeild mál í gegn í krafti eins manns meiri­hluta í bæj­ar­stjórn,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna, sem telja málið krefj­ast mun meiri umræðu og sam­ráðs við bæj­ar­búa en raunin hafi verið.

Ætlað að styrkja bága stöðu bæjarsjóðs

Skulda­staða Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar er verri en allra hinna sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eins og dregið var fram í frétt Kjarnans í morgun. Skuldir A-hluta bæj­ar­ins námu yfir 1,3 millj­ónum króna á hvern íbúa í Hafn­ar­firði á síð­asta ári og skulda­hlut­fall bæj­ar­ins, hlut­fall skulda af heild­ar­eignum, var um 85 pró­sent.

Haft var eftir Rósu Guð­bjarts­dóttur bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í Morg­un­blað­inu í dag að mat meiri­hlut­ans væri að sala á hlutnum á ásætt­an­legu verði myndi styrkja stöðu bæj­ar­ins veru­lega, auk þess að draga úr þörf á lán­tökum. „Það hlýtur að vera fýsi­legt á þessum óvissu­tímum,“ sagði Rósa við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár