Lágar skuldir og hátt þjónustustig í Reykjavík

Skuldir A-hluta Reykja­vík­ur­borgar eru minni en í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þegar tekið er til­lit til mann­fjölda. Þrátt fyrir það virð­ist þjón­ustu­stigið þar vera hærra en í mörgum öðrum sveit­ar­fé­lögum.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skuldir borg­ar­sjóðs Reykja­vík­ur­borgar á hvern íbúa nema um 856 þús­und krónum, sem er lægra en hjá öllum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þrátt fyrir það er þjón­ustu­stigið í Reykja­vík næst­mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á eftir A-hluta Sel­tjarn­ar­nes­bæjar, ef gert er ráð fyrir að það end­ur­speglist í rekstr­ar­kostn­aði á hvern íbúa.

Þetta kemur fram þegar A-hlutar árs­reikn­inga sveit­ar­fé­laga fyrir árið 2019 eru bornir saman í árbók sveit­ar­fé­laga. A-hlut­arnir eru aðal­sjóðir sveit­ar­fé­lag­anna sem eru að mestu eða öllu leyti fjár­magn­aðir með skatt­tekjum.

Samkvæmt reikn­ing­unum var rekstr­ar­nið­ur­staða þeirra allra jákvæð í fyrra, nema hjá Sel­tjarn­ar­nesbæ. A-hlutar Reykja­vík­ur­borgar og Kópa­vogs­bæjar högn­uð­ust um rúman millj­arð, á meðan bæj­ar­sjóðir Hafn­ar­fjarðar og Mos­fells­bæjar högn­uð­ust um 3-400 millj­ónir. Garðabær hagn­að­ist svo um tæpar 100 millj­ónir, sem er svipuð upp­hæð og tap Sel­tjarn­ar­nes­bæjar.

Sökum stærð­ar­munar sveit­ar­fé­lag­anna var rekstr­ar­kostn­aður þeirra mjög breyti­legur. Í Reykja­vík, sem er stærsta sveit­ar­fé­lagið, nam hann um 122 millj­örðum króna, sem er 27 sinnum meira en í minnsta sveit­ar­fé­lag­inu, Sel­tjarn­ar­nesi.

Ef tekið er til­lit til mis­mun­andi mann­fjölda sveit­ar­fé­lag­anna er rekstr­ar­kostn­aður á hvern íbúa mestur á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem hann nemur 943 þús­undum króna. Í öðru sæti er Reykja­vík­ur­borg þar sem borg­ar­sjóður ver 934 þús­undum króna á hvern íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í Kópa­vogsbæ er hann þó um 15 pró­sentum minni og nemur um 795 þús­und krónum á hvern íbúa.

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, bar saman skuldir hvers sveit­ar­fé­lags á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir mann­fjölda á Facebook-síðu sinni í gær. Samkvæmt þeim sam­an­burði eru skuld­irnar í A-hluta Reykja­vík­ur­borgar lægstar, en þær nema um 856 þús­undum króna á hvern íbúa sveit­ar­fé­lags­ins.

Á mynd hér að ofan má sjá skuldir á hvern íbúa hjá A-hluta sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en sam­kvæmt henni eru skuld­irnar hæstar í Hafn­ar­fjarð­arbæ þar sem þær nema yfir 1,3 milljón króna. Í Kópavogi, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi nema skuldir A-hlut­ans einnig yfir milljón á hvern íbúa, en þær eru 925 þús­und krónur fyrir hvern íbúa Garða­bæjar.

Ef litið er á skulda­hlut­fall sveit­ar­fé­lag­anna, þ.e.a.s. hlut­fall skulda af heild­ar­eignum, blasir við svipuð mynd. Hlut­fallið er lægst í Reykja­vík, Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi í rúmum 50 pró­sentum, en hæst í Hafn­ar­firði þar sem það nær heilum 85 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár