Sveitarfélag með stórfellt fiskeldi geti setið uppi með engar tekjur af nýtingu fjarðarins

Skorað er á stjórn­völd að end­ur­skoða reglu­verk um sjó­kvía­eldi og tryggja að tekjur af eld­inu renni til sveit­ar­fé­lag­anna þar sem það er stundað í ályktun sem sam­þykkt var á Fjórð­ungs­þingi Vest­firð­inga.

Aðlaga þarf regluverk að sjókvíaeldi svo tekjur skili sér til sveitarfélagana þar sem það er stundað, að mati Fjórðungsþings Vestfirðinga.
Aðlaga þarf reglu­verk að sjó­kvía­eldi svo tekjur skili sér til sveit­ar­fé­lag­ana þar sem það er stundað, að mati Fjórð­ungs­þings Vest­firð­inga. Mynd: Wiki Commons.

Tekju­stofnar sveit­ar­fé­laga vegna fisk­eldis hafa ekki verið tryggðir í sam­ræmi við eðli grein­ar­innar og því er gerð krafa um end­ur­skoðun, að því er fram kemur í ályktun sem sam­þykkt var á Fjórð­ungs­þingi Vest­firð­inga sem haldið var á Ísafirði 22.-23. októ­ber.

„66. Fjórð­ungs­þing Vest­firð­inga skorar á stjórn­völd að end­ur­skoða reglu­verk varð­andi sjó­kvía­eldi. Eldi lax­fiska í sjó er atvinnu­grein í örum vexti á Vest­fjörðum og er orðin ein af und­ir­stöðu­at­vinnu­greinum í fjórð­ungnum. Skýra þarf lagaum­hverfið og opin­bera gjald­töku í grein­inni til að tryggja að þær tekjur sem fisk­eldi skapar á Vest­fjörðum renni til sveit­ar­fé­lag­anna þar sem sjó­kvía­eldi er stundað til að byggja upp grunn­inn­viði sem svara kröfum sam­fé­lag­anna og atvinnu­lífs­ins,“ segir í álykt­un­inni en hún var lögð fram fyrir hönd starfs­hóps um sam­fé­lags­sátt­mála í fisk­eldi á Vest­fjörðum.

[adspot]

Fjórar meg­in­breyt­ingar á reglu­verki og gjald­töku í kringum fisk­eldið eru lagðar til í ályktun þings­ins.

  • Fisk­eld­is­sjóð sem sam­keppn­is­sjóð þarf að leggja niður en tryggja að fisk­eld­is­gjaldið renni beint til inn­viða­upp­bygg­ingar þar sem eldið er stundað.
  • End­ur­skoða þarf hafn­ar­gjöld, vöru­gjöld og afla­gjöld til að þau skili við­un­andi tekjum til þeirra sveit­ar­fé­laga sem þjón­ust­una veita og að gjald­töku­heim­ildir falli betur að þess­ari nýju atvinnu­grein.
  • End­ur­skoða þarf Umhverf­is­sjóð sjó­kvía­eldis og tryggja að rann­sóknir verði efldar og störfum fjölgað við rann­sóknir í nær­sam­fé­lögum fisk­eldis. Mik­il­vægt að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­sjóðs­ins séu birtar jöfnum höndum.
  • End­ur­skoða þarf tekjur sveit­ar­fé­laga vegna eld­iskvía og umsvifa í sjó­kvía­eldi á þeirra heima­svæði. Krafan er ekki að auka álögur á atvinnu­grein­ina heldur að eðli­legur hluti tekna renni til upp­bygg­ingar og við­halds inn­viða sveit­ar­fé­lag­anna og skili sér beint til þeirra sveit­ar­fé­laga sem verða fyrir beinum áhrifum af sjó­kvía­eldi.

Kallað eftir nánu samráði við sveitarfélög

Jafn­framt segir í álykt­un­inni að tryggja þurfi upp­bygg­ingu grunn­inn­viða á Vest­fjörðum svo svæðið verði sam­keppn­is­hæft við aðra lands­hluta þannig að fyr­ir­tæki og sam­fé­lög geti dafnað.

Mik­il­vægt sé að haft verði náið sam­ráð við sveit­ar­fé­lögin varð­andi upp­bygg­ingu grunn­inn­viða og tekju­stofna ríkis og sveit­ar­fé­laga varð­andi fisk­eldi.

Telur þingið að tryggja þurfi tekjur til þeirra sveit­ar­fé­laga þar sem sjó­kvía­eldi er stundað og einnig að skilja þurfi aðferða­fræð­ina við tekju­öflun frá hefð­bund­inni gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Þannig byggi núver­andi gjald­taka á hafna­lögum sem eigi við löndun á villtum fiski, en ein­ungis það sveit­ar­fé­lag þar sem fiski er dælt af land fái tekjur af fisk­eldi á grund­velli þeirrar lög­gjafar. Tryggja þurfi að hægt sé að taka gjald af mann­virkjum í sjó í formi fast­eigna­gjalda eða aðstöðu­gjalda svo það sveit­ar­fé­lag sem hýsir mann­virkin fái tekjur.

Bent er á að lögin nái ekki yfir það ef fiski er slátrað á slát­ur­prömmum eða hann fluttur annað til slátr­unar, þá fái sveit­ar­fé­lög á Vest­fjörðum engar tekjur. „Tekjur af þjón­ustu­bátum eru litlar þó þeir nýti þjón­ustu og hafn­ar­mann­virki allan árs­ins hring. Engar tekjur eru af kvíum á fjörðum og því getur sveit­ar­fé­lag með stór­fellt eldi setið uppi með engar tekjur af nýt­ingu fjarð­ar­ins. Fóðri er nær öllu landað beint í pramma og því skapa þau aðföng engar tekjur til sveit­ar­fé­lag­anna. Þar þarf að end­ur­skoða regl­urum vöru­gjöld til að gæta sam­ræmis við hafnir. Seiða­eld­is­stöðvar skila ein­göngu tekjum í formi fast­eigna­gjalda stöðv­ar­innar,“ segir í grein­ar­gerð með álykt­un­inni.

Óeðlilegur hvati sé í núverandi löggjöf

„Laga- og reglu­gerð­aum­hverfi sem sveit­ar­fé­lögin vinna eftir varð­andi fisk­eldi hefur haft veru­lega nei­kvæð áhrif. Óeðli­legur hvati er í núgild­andi lög­gjöf þannig að sveit­ar­fé­lög kepp­ast um að fá eld­is­fiski landað til sín á sama tíma og þjón­ustu­hafnir í fisk­eldi hafa litlar sem engar tekjur til að standa undir vax­andi umsvifum,“ segir í grein­ar­gerð­inni og er bent á að stærstur hluti tekna komi á lönd­un­ar­stað við slát­ur­hús sem end­ur­spegli ekki þá nýt­ingu mann­virkja og þjón­ustu sem eldið nýtir. Því sé mik­il­vægt að skýra for­sendur gjald­tök­unnar og sam­ræma regl­urnar á lands­vísu.

Tekju­stofnar sveit­ar­fé­laga vegna fisk­eldis hafi ekki verið tryggðir í sam­ræmi við eðli grein­ar­innar og því þurfi að ná utan um heild­ar­gjald­töku af fisk­eldi, skoða undir hverju tekj­unum er ætlað að standa sem og hvernig þær tekjur skipt­ast á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga. Sveit­ar­fé­lög þar sem sjó­kvía­eldi er stundað þurfi skýrar heim­ildir til töku gjalda, að því er segir í grein­ar­gerð. Slík gjald­taka þurfi að standa undir nauð­syn­legum verk­efnum sveit­ar­fé­laga og sjálf­bærni hafna og sam­fé­laga þar sem sjó­kvía­eldi fer fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár