Fjármagnstekjur áfram hærri á Seltjarnarnesi og í Garðabæ

Fjár­magnstekjur Íslend­inga dróg­ust saman milli áranna 2017 og 2018. Það var í fyrsta sinn í nokkur ár sem slíkt ger­ist. Íbúar Sel­tjarn­ar­ness og Garða­bæjar eru með mun hærri slíkar að með­al­tali en aðrir íbúar stórra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Mikil munur er á milli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins þegar kemur að fjármagnstekjum íbúa.
Mikil munur er á milli sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þegar kemur að fjár­magnstekjum íbúa. Mynd: Bára Huld Beck

Með­al­tals­fjár­magnstekjur íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ eru umtals­vert hærri en í öðrum stærri sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þær eiga þó enn tölu­vert í land með að ná þeim hæðum sem þær náðu á árunum fyrir banka­hrun.

Með­al­tals­fjár­magnstekjur voru 1.379 þús­und krónur á hvern íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi í fyrra en 1.104 þús­und krónur í Garðabæ. Á sama tíma voru þær 541 þús­und krónur á hvern íbúa Reykja­víkur, 566 þús­und á íbúa í Kópavogi, 449 þús­und íbúa í Mos­fellsbæ og 448 þús­und í Hafn­ar­firði.

[adspot]Alls er með­al­tal fjár­magnstekna á land­inu 511 þús­und krónur og því eru með­al­fjár­magnstekjur á íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi tæp­lega 170 pró­sent hærri en hjá meðal Íslend­ingnum.

Þessi munur á fjár­magnstekjum á íbúa er fjarri því að vera nýtil­kom­inn. Árið 2007, þegar banka­góð­ærið var í algleym­ingi, náði með­al­tal fjár­magnstekna á hvern íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi til að mynda 3.738 þús­und krónum og 3.165 þús­und krónum í Garðabæ. Þá var heild­ar­með­al­talið 775 þús­und krónur og með­al­tal fjár­magnstekna á Sel­tjarn­ar­nesi því næstum fjór­falt hærra en hjá meðal Íslend­ingnum.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Fjármagnstekjur drógust saman milli ára

Fjár­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­lingar hafa af eignum sínum. Þær eru til að mynda vextir, arður, sölu­hagn­aður eða leigu­tekjur af lausafé og fast­eignum.

Ef ein­stak­lingur er með þorra tekna sinna í formi fjár­magnstekna þá borgar hann mun minna hlut­fall af tekjum sínum til rík­is­sjóðs en ef hann er með þær í formi launa­tekna.

Venju­legur launa­maður greiðir á bil­inu 36,94 til 46,24 pró­sent af launum sínum í skatta að útsvari með­töldu. Fjár­magnstekj­ur­skattur er hins vegar 22 pró­sent og ekki þarf að greiða neitt útsvar. Þeir sem hafa ein­vörð­ungu fjár­magnstekjur greiða þar af leið­andi ekk­ert til rekst­urs þess sveit­ar­fé­lags sem þeir búa í af þeim tekjum. Íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ greiða mun lægri útsvarspró­sentu en íbúar ann­arra stórra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í Reykja­vík er útsvarspró­sentan í hámarki, og þar nemur greiðsla hvers greið­anda 14,52 pró­sent af launum þeirra. Í Kópavogi, Hafn­ar­firði og í Mos­fellsbæ er hún lítið eitt lægri, eða 14,48 pró­sent. Á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ er hún hins vegar 13,7 pró­sent.

Alls námu fjár­magnstekjur Íslend­inga 123,5 millj­örðum króna á árinu 2018.

[adspot]Þær dróg­ust saman 25,4 millj­arða króna milli ára eftir að hafa verið 148,9 millj­arðar króna árið 2017, þegar þær náðu sínum hæsta punkti eftir banka­hrun. Heild­ar­fjár­magnstekjur í fyrra voru þó þær næst hæstu síðan 2009.

Elíta úr viðskiptalífinu

Ástæða þess að fjár­magnstekjur eru hærri á hvern íbúa Sel­tjarn­ar­ness og Garða­bæjar er meðal ann­ars sú að þar býr mikið af fólki sem á fjár­magns­eignir.

Í grein Magn­úsar Þórs Torfa­­son­­ar, lekt­ors í við­­skipta­fræð­i­­deild Háskóla Íslands, Þor­­gerðar Ein­­ar­s­dótt­­ur, pró­­fess­ors við stjórn­­­mála­fræð­i­­deild Háskóla Íslands, Guð­­bjargar Lindu Rafns­dótt­­ur, pró­­fess­ors við félags- og mann­vís­inda­­deild Háskóla Íslands, og Mar­grétar Sig­rúnar Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, lekt­ors við við­­skipta­fræð­i­­deild Háskóla Íslands, í tíma­­rit­inu Stjórn­­­mál og Stjórn­­­sýsla sum­arið 2017 var fjallað um elítur á Íslandi og inn­­­byrðis tengsl þeirra.

Nið­ur­staða hennar var að íslenskt sam­fé­lag væri lag­skipt og að það væri gjá milli elítu og almenn­ings. Flestir sem til­heyrðu þess­ari elítu búa, sam­kvæmt grein­inni, á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ. Þar búa 150 pró­sent fleiri ein­stak­lingar í við­skipta- og atvinnu­lífsel­ít­unni en vænta hefði mætti út frá íbúa­fjölda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár