Fjörutíu færri sveitarfélög árið 2026

Í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu er lagt til að ekk­ert sveit­ar­fé­lag verði með færri en 1000 íbúa árið 2026. Meiri en helm­ingur sveit­ar­fé­laga á Íslandi er í dag með færri en þús­und íbúa en sveit­ar­fé­lögin munu fá fjár­hags­legan stuðn­ing til sam­ein­ingar.

Fjörtíu manns búa í Árneshreppi.
Fjörtíu manns búa í Árnes­hreppi. Mynd: Úr safni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stefnu­mót­andi áætlun í mál­efnum sveit­ar­fé­laga fyrir árin 2019 til 2033 og aðgerða­á­ætlun til næstu fimm ára á Alþingi. Í áætl­un­inni er meðal ann­ars lagt til að árið 2026 verði engin sveit­ar­fé­lög á land­inu með færri en þús­und íbúa. Meiri en helm­ingur sveit­ar­fé­laga er í dag með færri en þús­und íbúa en auk­inn verður fjár­hags­legan stuðn­ing til sam­ein­ingar sveit­ar­fé­lag­anna.

Meginstoð velferðar íbúa

Áætlunin dregur saman meg­in­þætti í lang­tíma­stefnu­mörkun rík­is­ins í þeim mála­flokkum sem snúa að verk­efnum sveit­ar­fé­laga til næstu fjórtán ára. Þá skal sveit­ar­stjórn­ar­málum hagað í sam­ræmi við þessa áætlun verði hún sam­þykkt og auk þessi mun þessi áætlun verða hluti af heild­stæðri sam­þættri stefnu í sam­göngu­málum, fjar­skipta­málum og byggða­málum.

Samkvæmt áætl­un­inni er mark­miðið að sveit­ar­fé­lög á Íslandi verði öfl­ugar og sjálf­bærar stað­bundnar stjórn­sýslu­ein­ingar sem verði ein meg­in­stoð vel­ferðar íbú­anna. Þá á sjálf­bærni að verða leið­ar­ljós stefnu­mörk­unar fyrir sveit­ar­stjórn­ar­stigið en hún nær til félags­legra, efna­hags­legra og umhverf­is­legra þátta sam­fé­lags­ins. [adspot]

Þrjátíu sveitarfélög á landinu eftir sjö ár

Afdrifa­rík­asta og umdeildasta aðgerðin sem lögð er fram í áætl­un­inni er sú að árið 2026 muni ekk­ert sveit­ar­fé­lag hafi færri en þús­und íbúa. Samkvæmt áætl­un­inni miðar sú aðgerð að því að auka sjálf­bærni sveit­ar­fé­laga og tryggja getu þeirra til að ann­ast lög­bundin verk­efni. Sett er fram til­laga um að lág­mark­s­í­búa­fjöldi verði 250 frá almennum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2022 en 1.000 frá almennum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2026.

Í grein­ar­gerð áætl­un­ar­innar segir að þrátt fyrir þá stað­reynd að sveit­ar­fé­lögum hafi fækkað umtals­vert á síð­ustu 30 árum og þau stækkað að sama skapi þá séu mörg þeirra enn fámenn. Sveit­ar­fé­lög eru nú 72 tals­ins en 40 eru með færri en eitt þús­und íbúa eða alls eða 56 pró­sent sveit­ar­fé­laga á land­inu.

Aftur móti búa ein­ungis innan við fimm pró­sent þjóð­ar­innar í þessum 40 sveit­ar­fé­lögum en sjö fámenn­ustu sveit­ar­fé­lögin eru með íbúa­fjölda á bil­inu 40 til 91 manns. Áhrifin af þess­ari til­lögu yrðu því þau að frá og með árinu 2022 myndi sveit­ar­fé­lögum fækka um allt að 14, en allt að 40 frá og með árinu 2026. Fjöldi sveit­ar­fé­laga gæti því farið niður í um 30 tals­ins.

Margar umsagnir um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sneru að þess­ari aðgerð en sam­kvæmt grein­ar­gerð­inni var meðal ann­ars kallað eftir því í umsögn­unum að lýð­ræð­is­legur réttur íbúa verði hafður að leið­ar­ljósi í fækk­un­inni og að fjár­stuðn­ingur auk­ist til muna við sam­ein­ing­una.

Hagræðingin gæti skilað 5 milljörðum

Í grein­ar­gerð­inni er greint frá nið­ur­stöðum úttektar á hag­rænum áhrifum þess að fækka sveit­ar­fé­lögum. Tveir sér­fræð­ingar unnu að úttekt­inni og beittu þeir mis­mun­andi aðferðum við að reikna út áhrifin. Önnur þeirra gaf til kynna að svig­rúm til hag­ræð­ingar við það að miða lág­mark­s­í­búa­fjölda sveit­ar­fé­laga í 1.000 geti orðið 3,6 millj­arðar króna á ári á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu. Hin aðferðin skil­aði 5 millj­örðum. Í grein­ar­gerð­inni segir að því sé um að ræða umtals­verð hag­ræn áhrif.

Með stærri og öfl­ugri sveit­ar­fé­lög skap­ist svig­rúm til að lækka stjórn­sýslu­kostnað á íbúa og auka skil­virkni. Hag­ræð­ing í rekstri búi til aukin tæki­færi til að veita íbúum betri þjón­ustu eða þjón­ustu sem hefur áður ekki staðið til boða. Þá skap­ast tæki­færi til að efla sveit­ar­stjórn­ar­stigið og færa fleiri stór verk­efni frá ríki til sveit­ar­fé­laga og þar með færa þjón­ust­una nær íbú­unum.

Stóraukinn fjárhagslegur stuðningur við sameiningu sveitarfélaga

Í áætl­un­inni er að finna tíu aðgerðir til við­bótar. Ein af þeim er að stór­auka stuðn­ing við sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga en stuðn­ing­ur­inn getur verið í ýmsu formi, svo sem þátt­töku í kostn­aði við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sam­ein­ingar, fram­lögum til að mæta tekju­tapi vegna lækk­unar á jöfn­un­ar­fram­lögum og með fram­lögum til að stuðla að end­ur­skipu­lagn­ingu þjón­ustu og stjórn­sýslu í kjöl­far sam­ein­ingar, til að mynda fram­lög fyrir allt að 50 pró­sent stofn­kostn­aðar grunn­skóla­mann­virkja og leik­skóla.

Samkvæmt til­lög­unni gætu allt að 15 millj­arðar farið í þennan stuðn­ing á tíma­bil­inu, þar að segja fram til árs­ins 2026 þegar 1000 íbúa­markið tekur gildi og í allt að sjö ár eftir það, sem væri end­an­legur útgreiðslu­tími.

Aðrir aðgerðir sem lagðar eru fram í til­lög­unni eru meðal ann­ars að fjölga opin­berum störfum á lands­byggð­inni, koma á fót lýð­ræð­is­legum vett­vangi sveit­ar­fé­lag­anna til að tryggja íbúum sveit­ar­fé­laga og þeim sem njóta þjón­ustu þeirra mögu­leika á að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveit­ar­fé­lags­ins og und­ir­bún­ing stefnu­mót­unar.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár