Leikskólagjöld lægst í Reykjavík

Mikill munur er á leik­skóla­gjöldum á milli sveit­ar­fé­laga, mun­ur­inn á almennu leik­skóla­gjaldi er mest 53 pró­sent á milli sveit­ar­fé­laga eða rúm 150 þús­und á ári. Leik­skóla­gjöld hækka hja 80 pró­sent sveit­ar­fé­laga á þessu ári.

Mikill munur er á milli sveit­ar­fé­laga hér á landi þegar kemur að leik­skóla­gjöldum en 53 pró­sent munur er á hæstu og lægstu gjöld­unum eða 13.655 krónur á mán­uði sem jafn­gildir 150.205 á ári. Verð­mun­ur­inn er enn meiri eða um 69 pró­sent á milli sveit­ar­fé­laga ef sömu leik­skóla­gjöld fyrir for­gangs­hópa eru skoðuð. Lægstu leik­skóla­gjöldin eru í Reykja­vík, ef miðað er við almennt gjald, en hæst eru þau í Garðabæ. Þetta kemur fram í sam­an­burði Alþýðu­sam­band Íslands en verð­lags­eft­ir­lit ASÍ kann­aði breyt­ingar á gjald­skrám fyrir vistun og fæði í leik­skólum hjá 16 stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins frá 1. jan­úar 2018 til 1. jan­úar 2019.

Leikskólagjöld hæst í Garðabæ

Miðað við 8 tíma, sem er almennt gjald, eru lægstu gjöldin í Reykja­vík, 25.963 krónur þrátt fyrir 2,9 pró­sent hækkun á leik­skóla­gjöldum hjá borg­inni um ára­mótin. Hæst eru gjöldin í Garðabæ eða 39.618 og hækk­uðu þau um 3 pró­sent um ára­mótin. Næst hæst eru gjöldin í Fljóts­dals­hér­aði en þriðju hæst eru leik­skóla­gjöldin á Akranesi.

Heild­ar­myndin breyt­ist tölu­vert þegar gjöld fyrir for­gangs­hópa eru skoðuð en meðal þeirra sem til­heyra þeim hópi eru ein­stæðir for­eldrar, náms­menn og öryrkjar. Verð­mun­ur­inn er allt að 131.802 á ári milli sveit­ar­fé­laga þegar gjöld fyrir for­gangs­hópa eru skoðuð. Fyrir for­gangs­hópa eru gjöldin lægst í Reykja­vík en hæst hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg 29.241.

Níundi tíminn mjög dýr í sumum sveitarfélögum

Í grein­ingu Alþýðu­sam­bands­ins segir að margir for­eldrar nýti sér að geta haft börnin í níu tíma á leik­skóla til að auð­veld­ara sé að sam­ræma vist­un­ar­tíma barna við vinnu­tíma og getur það jafn­vel verið nauð­syn­legt fyrir suma eins og ein­stæða for­eldra. Níundi tím­inn er hins vegar mjög dýr í mörgum til­fellum og getur hækkað leik­skóla­gjöldin tölu­vert. Á almennu níu tíma gjaldi er 58 pró­sent munur á milli sveit­ar­fé­laga eða 17.837 á mán­uði og 65 pró­sent munur er á hæsta og lægsta gjaldi fyrir for­gangs­hópa eða 14.049 á mán­uði.

Níundi tím­inn er dýrastur í Kópavogi en gjöldin þar hækka um 44 pró­sent við að hafa barn í leik­skóla í 9 tíma á dag í stað 8 tíma. Ódýrastur er níundi tím­inn í Skaga­firði en þar kostar það ein­ungis 3.066 kr. á mán­uði að bæta níunda tím­anum við.

80 prósent sveitarfélaga hækkuðu gjöld sín um síðustu áramót

Hjá þrettán af sextán sveit­ar­fé­lögum hækka leik­skóla­gjöld með fæði árið 2019 en hækk­unin nam oft­ast 2 til 3 pró­sentum á milli ára. Mest var hækk­unin hjá Sel­tjarnesi eða um 5 pró­sent en leik­skóla­gjöldin þar eru þó næst lægst allra leik­skóla­gjalda. Mesta lækk­unin eru hjá Fjarð­ar­byggð eða 4,1 pró­sent á 8 tímum m eð mat og 5,3 pró­sent lækkun á sama gjaldi fyrir for­gangs­hópa.

Systk­ina­af­slættir eru eitt af því sem getur haft mikil áhrif ef fólk er með fleira en eitt barn á leik­skóla. En sam­kvæmt sam­an­burði ASÍ er afslátt­ur­inn mis­mik­ill eftir sveit­ar­fé­lögum eða frá 25 til 7 pró­sent afsláttur fyrir annað barn og 75 til 100 pró­sent afsláttur fyrir þriðja barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár