Tæpir fimm milljarðar króna til sveitarfélaganna

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um að auka fjár­veit­ingar til sveit­ar­fé­lag­anna um tæpa fimm millj­arða króna til að bæta skulda­stöðu þeirra til næstu fimm ára.

Karl Hafsteinsson, Bjarni Benediktsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson við undirritun samningsins í morgun
Karl Haf­steins­son, Bjarni Bene­dikts­son, Aldís Haf­steins­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son við und­ir­ritun samn­ings­ins í morgun

Rík­is­stjórnin vill veita sveit­ar­fé­lögum fjár­hags­lega við­spyrnu sem nemur 4,8 millj­örðum króna, á sama tíma og sveit­ar­fé­lögin hafa sam­mælst um afkomu­mark­mið sem er í sam­ræmi við fjár­mála­stefnu hins opin­bera fyrir næstu fimm árin. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins sem gefin var út fyrr í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni ætla sveit­ar­fé­lögin og ríkið sér að stöðva hækkun skulda hins opin­bera sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu innan fimm ára, en búist er við að grípa þurfi til afkomu­bæt­andi ráð­staf­ana til þess.

Sam­komu­lagið inni­heldur fjölda verk­efna sem gert er ráð fyrir að ríki og sveit­ar­fé­lög vinni saman að á næstu árum. Þeirra á meðal er end­ur­skoðun á tekju­stofnun sveit­ar­fé­laga og reglu­verki Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga, auk þess sem útgjöld á ýmissi þjón­ustu við aldr­aða verði end­ur­metin.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, ásamt Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurði Inga Jóhanns­syni sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, und­ir­rit­uðu í morgun vilja­yf­ir­lýs­ingu um að veita sveit­ar­fé­lögum alls 4.805 millj­óna króna við­spyrnu. Með yfir­lýs­ing­unni lýstu ráð­herr­arnir því yfir að unnið yrði að því að afla þess­ara fjár­heim­ilda á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár