Mikilvægt að muna að ríkissjóður er ekki rekinn eins og fyrirtæki

Kristrún Frosta­dóttir hag­fræð­ingur Kviku banka stígur inn í umræðu um stöðu sveit­ar­fé­laga í COVID-krís­unni og segir það hættu­legt út frá efna­hags­legu sjón­ar­miði að gera sveit­ar­fé­lög­unum að mæta miklu tekju­tapi sínu með nið­ur­skurði.

Kristrún Frostadóttir hagfræðingur telur að ríkissjóður þurfi að hjálpa sveitarfélögunum að komast í gegnum kófið án þess að fara í verulegan niðurskurð í þjónustu eða fjárfestingu.
Kristrún Frosta­dóttir hag­fræð­ingur telur að rík­is­sjóður þurfi að hjálpa sveit­ar­fé­lög­unum að kom­ast í gegnum kófið án þess að fara í veru­legan nið­ur­skurð í þjón­ustu eða fjár­fest­ingu. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV.

„Það síð­asta sem ríkið ætti að vilja núna er að sveit­ar­stjórnir fari að vinna gegn þeirra eigin örv­un­ar­að­gerðum,“ segir Kristrún Frosta­dóttir hag­fræð­ingur Kviku banka. Hún telur að sú nálgun að sveit­ar­fé­lög hafi ekki sýnt ráð­deild á und­an­förnum árum og þurfi því að draga saman seglin til að kom­ast í gegnum COVID-krepp­una – og eigi jafn­vel að læra ein­hverjar lex­íur af því – á meðan að ríkið hafi sýnt ráð­deild og eigi því kost á að reka sig í halla á næstu árum sé bæði „ein­feldn­ings­leg“ og „hættu­leg út frá efna­hags­legu sjón­ar­miði“.

Kristrún var gestur bæði Sprengisands á Bylgj­unni og Silf­urs­ins í Rík­is­út­varp­inu í dag og vakti þar máls á þessu sjón­ar­miði. Hún sagð­ist í við­tali við Kristján Krist­jáns­son á Sprengisandi hafa áhyggjur af því að ef það ætti að ýta sveit­ar­fé­lögum til hliðar og ætla þeim að skera niður í fjár­fest­ingu og öðrum þjón­ustu­liðum muni það vega stór­kost­lega á móti því sem rík­is­sjóður er að reyna að gera núna.

Á bilinu 125-150 milljarða gat hjá sveitarfélögum til ársins 2025

Hún sagði að sveit­ar­fé­lögin í land­inu þyrftu 50 millj­arða á næstu tveimur árum og að hennar útreikn­ingar bentu til þess að þeim vant­aði 125-150 millj­arða króna fram til árs­ins 2025, bara til þess að mæta gat­inu sem skap­ast vegna COVID-far­ald­urs­ins.

„Mér hefur þótt mik­il­vægt að koma upp­byggi­legri umræðu af stað um fjár­mál sveit­ar­fé­lag­anna, því stað­reyndin er sú að þau hafa ekk­ert verið svona hræði­lega illa rekin síð­ustu ár. Auðvitað má alltaf gera eitt­hvað betur, en guð minn góður, það má örugg­lega gera það líka hjá rík­is­sjóði,“ sagði Kristrún.

Hún sagði mun­inn á stöðu rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga sá að rík­is­sjóður fékk 400 millj­arða króna úr stöð­ug­leika­fram­lögum frá þrota­búum gömlu bank­anna, sem hafði ekk­ert með rekstur rík­is­sjóðs að gera.

„Það er eng­inn að gera lítið úr því áfalli sem rík­is­sjóður er að taka á sig, en við þurfum að átta okkur á því í huga að sveit­ar­fé­lögin hafa líka verið að vinna í mjög erf­iðu launaum­hverfi síð­ustu ár og ekki fengið svona ein­skiptis­tekjur síð­ustu ár,“ sagði Kristrún.

Hún sagði mik­il­vægt að muna að rík­is­sjóður er ekki rek­inn eins og fyr­ir­tæki, en það séu sveit­ar­fé­lög hins vegar, sem hafi haft það í för með sér að fjár­fest­ing þeirra hrundi eftir efna­hags­hrunið árið 2008. Þau þurfi að „balansera bæk­urnar“ á meðan að ríkið hafi allt önnur hag­stjórn­ar­tól á sínu for­ræði.

Hún minnti einnig á að stærstur hluti launa­kostn­aðar sveit­ar­fé­laga, 80 pró­sent af launa­kostn­að­inum, sé vegna fræðslu­mála og félags­þjón­ustu og einnig að ljóst sé að ekki hafi nægi­legt fjár­magn fylgt yfir­færslu mál­efna fatl­aðra frá ríki yfir til sveit­ar­fé­laga árið 2011.

„Ég held að það sé mjög mik­il­vægt áður en við förum af stað í umræðu um að sveit­ar­fé­lög þurfi ein­hvern­veg­inn bara að gera upp sín mál eftir tíma­bil und­an­far­inna ára, að átta sig á því í hvað pen­ing­arnir hafa verið að fara. Það þýðir ekki að það sé ekki hægt að spara ein­hvers­staðar og ekki hægt að hag­ræða,“ sagði Kristrún og bætti svo við að um 65 pró­sent af heild­ar­kostn­aði sveit­ar­fé­laga færi til fræðslu og félags­þjón­ustu.

„Þá sitja eftir 35 pró­sent, það eru svona í kringum 120-150 millj­arðar króna. Þetta er ígildi gat­s­ins sem er að byggj­ast upp á næstu árum í rekstri sveit­ar­fé­laga og ef við ætlum að takast á við þessa stöðu hjá sveit­ar­fé­lög­unum með því að skera niður í rekstri þyrfti bara að fara í fjórð­ungs eða fimmt­ungs nið­ur­skurð á öllu nema félags­þjón­ustu og fræðslu­málum, eða þá er nátt­úr­lega hægt að gera bara eins og síð­ast og sleppa fjár­fest­ing­unni,“ sagði Kristrún.

Þvert á alþjóðlegar ráðleggingar að ætla sveitarfélögum að bakka

Hún sagði að henni hefði þótt áhuga­vert að lesa í fjár­mála­á­ætlun að það ætti að draga úr fjár­fest­ingu sveit­ar­fé­laga sem hlut­falli af lands­fram­leiðslu á næstu árum.

„Rík­is­sjóður er að gefa í og sveit­ar­fé­lög eiga að bakka á sama tíma. Þetta er ekki bara þvert á það sem rík­is­sjóður er að gera heldur þvert á allar alþjóð­legar ráð­legg­ingar. Það kom út skýrsla í sumar sem ég held að mjög fáir hafi lesið á vegum OECD, Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar, þar sem sér­stak­lega var fjallað um stöðu sveit­ar­fé­laga í COVID. Þar var talað um mik­il­vægi þess – og ég vitna í þetta beint – að líta ekki á fjár­fest­ingar sveit­ar­fé­laga sem afgangs­stærð,“ sagði Kristrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár