Raunhæfur möguleiki á glundroða í kjölfar forsetakosninganna

Hvernig mun banda­rískt sam­fé­lag dags­ins í dag bregð­ast við ef svo fer, eins og margt bendir til, að úrslit for­seta­kosn­ing­anna þar í landi muni ekki liggja ljós fyrir á kosn­inga­nótt? Óhuggu­legar sviðs­myndir eru fyrir hendi.

Donald Trump er þegar búinn að sá fræjum efa í huga almennings um lögmæti komandi kosninga. Hvað gerist ef niðurstaðan verður hreint ekki ljós á kosninganótt?
Donald Trump er þegar búinn að sá fræjum efa í huga almenn­ings um lög­mæti kom­andi kosn­inga. Hvað ger­ist ef nið­ur­staðan verður hreint ekki ljós á kosn­inga­nótt? Mynd: EPA

Það er mögu­legt og meira að segja jafn­vel tölu­vert lík­legt, að nið­ur­stöður banda­rísku for­seta­kosn­ing­anna í ár muni ekki liggja fyrir á kosn­inga­nótt, eins og oft­ast er. Ástæðan fyrir þessu er sú að fjöldi póst­at­kvæða í þessum kosn­ingum verður miklu mun meiri en áður hefur sést, vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Hawkfish, töl­fræði­fyr­ir­tæki í eigu auð­kýf­ings­ins Michael Bloomberg sem reyndi að verða for­seta­fram­bjóð­andi demókrata, hefur sett fram spá þar sem fram kemur að 40 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í ár verði póst­at­kvæði. Þetta gæti, sam­kvæmt sviðs­mynd fyr­ir­tæk­is­ins, leitt til þess að staða Donald Trumps muni virð­ast sterk­ari stöðu á kosn­inga­nótt en hann er í raun, þar sem ekki verði búið að telja öll póst­at­kvæði.

Ástæðan fyrir þessu er sú að hlut­falls­lega eru stuðn­ings­menn Joe Bidens mun lík­legri til þess hafa ætlan um að kjósa með póst­at­kvæðum en stuðn­ings­menn Trumps, sam­kvæmt John Mendelsohn fram­kvæmda­stjóra Hawkfish, sem ræddi málið í við­tali í frétta­þætti Axios á HBO-sjón­varps­stöð­inni í síð­ustu viku.

„Við erum að hringja við­vör­un­ar­bjöll­unni og segja að þetta sé mjög raun­veru­lega mögu­legt, að töl­urnar á kosn­inga­nótt muni sýna ótrú­legan sigur Donalds Trump,“ sagði Mendelsohn. Hann segir jafn­framt að þegar hvert eitt og ein­asta lög­mætt atkvæði hafi verið talið gæti nið­ur­stöð­urnar sýnt fram á að það sem sást á sjón­varps­skjám lands­manna á kosn­inga­nótt hafi ein­ungis verið tál­mynd.

„Rauð tál­mynd,“ segir hann og vísar til ein­kenn­islits Repúblikana­flokks­ins.

Dæmi frá Hawkfish

  • Samkvæmt einni sviðs­mynd gæti Trump verið spáð 408 kjör­mönnum á kosn­inga­nótt, gegn 130 kjör­mönnum Bidens, ef á þeim tíma­punkti væri ein­ungis búið að telja 15 pró­sent póst­at­kvæða.
  • Þegar 75 pró­sent póst­at­kvæða hefðu verið talin, til dæmis fjórum dögum seinna, gæti fjöldi kjör­manna verið búinn að snú­ast Biden í hag.
  • Þessi sviðs­mynd hefur þá loka­nið­ur­stöðu að Biden myndi vinna risa­stóran sigur, með 334 kjör­menn gegn 204.

Búið að tala lögmæti kosninganna niður

Hvernig myndi banda­rískt sam­fé­lag bregð­ast við ef svo færi að for­set­inn liti út fyrir að hafa unnið kosn­inga­sigur á kosn­inga­nótt en annað kæmi í ljós nokkrum dögum seinna, þegar öll atkvæði hefðu skilað sér?

Þetta banda­ríska sam­fé­lag er þegar klofið í herðar niður eftir póli­tískum flokkalínum, stór hluti þess van­treystir fjöl­miðlum og það er undir stjórn for­seta sem hefur einmitt haldið því fram marg­ít­rekað að póst­kvæði muni leiða til þess að demókratar „steli kosn­ing­unum“ og að nið­ur­stöður þeirra verði ómark­tækar vegna póst­at­kvæða.

[adspot]

Það er búið að sá fræjum efans, þrátt fyrir að ekk­ert sem hald­bært er í raun­veru­leik­anum bendi til þess að póst­at­kvæði auki hætt­una á kosn­inga­svindli.

Blandan er eld­fim og af þessu hafa margir áhyggjur, meðal ann­ars stóru tækni­fyr­ir­tækin, sem telja sig bera ábyrgð á því að upp­lýs­inga­óreiða á þeirra miðlum fari ekki úr bönd­unum í kringum kosn­ingar.[links]

Kjarninn greindi frá því í lið­inni viku að Facebook ætl­aði að grípa til sér­stakra ráð­staf­ana til þess að takast á við þetta og væri meðal ann­ars komið í sér­stakt sam­starf við Reuters-frétta­stof­una og banda­rísk kosn­inga­yf­ir­völd til þess að tryggja að fals­fréttir um kosn­inga­nið­ur­stöð­urnar færu ekki á flug. Ef ein­hver fram­bjóð­andi eða fylk­ing reynir að lýsa yfir sigri áður en nið­ur­staðan liggur fyrir, þá mun Facebook merkja þá pósta sem slíka og beina not­endum sínum inn á síðu þar sem hægt er að glöggva sig á stöðu atkvæða­taln­ingar.

Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook sagði við sjón­varps­þátt Axios á HBO í lok viku að það væri því miður aukin hætta á óeirðum í sam­fé­lag­inu og mik­il­vægt væri fyrir Facebook og aðra áhrifa­mikla miðla í banda­rísku sam­fé­lagi að gera sitt til þess að vekja almenn­ing til vit­undar um að það að þrátt fyrir að kosn­inga­úr­slit liggi ekki fyrir á kosn­inga­nótt, heldur kannski enn fyrr en dögum eða vikum síðar, þýði það ekki að það sé eitt­hvað ólög­mætt við fram­kvæmd kosn­ing­anna.

„Ég held að við þurfum að gera allt sem við getum til þess að draga úr hætt­unni á ofbeldi eða óeirðum í kringum þessar kosn­ingar,“ sagði Zuckerberg. Samkvæmt kosn­inga­lögum þurfa öll banda­rísku ríkin að vera búin að skila loka­nið­ur­stöðum þann 8. des­em­ber, rúmum mán­uði eftir kosn­ingar.

Biden með forystu í skoðanakönnunum sem fyrr

Joe Biden for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins hefur nokkra for­ystu á Donald Trump sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, þrátt fyrir að dregið hafi saman með þeim und­an­farna daga.

Samkvæmt kosn­inga­spá Economist, þar sem nið­ur­stöður fjölda skoð­ana­kann­ana eru vegnar, eru sig­ur­líkur Bidens 83 pró­sent og hann með 53,9 pró­senta stuðn­ing á lands­vísu gegn 46,1 pró­senta stuðn­ingi við Trump.

Kosn­inga­spá FiveT­hir­tyEight gefur Biden 70 pró­sent sig­ur­líkur og Trump 29 pró­sent sig­ur­líkur á móti, en í töl­fræði­út­reikn­ingum sínum setur FiveT­hir­tyEight upp 40.000 sýnd­ar­kosn­ingar sem byggja á nið­ur­stöðum nýjasta sam­an­safns skoð­ana­kann­ana hverju sinni. Samkvæmt sam­an­tekt FiveT­hir­tyEight myndi Biden hljóta 52,5 pró­sent atkvæða­magns­ins og Trump 46,2 pró­sent.

Eftir stendur þó spurn­ingin hvenær hvaða atkvæði verða talin og hvað myndi ger­ast ef Donald Trump myndi lýsa yfir sigri á kosn­inga­nótt­inni eftir tæpa tvo mán­uði, þegar alls óljóst væri hvort sig­ur­inn væri í raun hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár