Facebook grípur til aðgerða gegn upplýsingaóreiðu í kringum kosningarnar

Stofn­andi Facebook greindi frá því í dag að mið­ill­inn ætl­aði að beita sér sér­stak­lega gegn útbreiðslu mis­vísandi upp­lýs­inga í aðdrag­anda kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í haust. Facebook fer í sam­starf við Reuters um miðlun loka­nið­ur­staðna.

Mark Zuckerberg stofnandi Facebook.
Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook. Mynd: EPA

Facebook ætlar gera ákveðnar breyt­ingar á þjón­ustu sinni í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum, í því skyni að draga úr upp­lýs­inga­óreiðu og reyna að koma böndum yfir til­raunir til þess að hafa letj­andi áhrif á kosn­inga­þátt­töku. Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook greindi frá þessu, í færslu á Facebook.

Á meðal þess sem Facebook ætlar að gera er að hætta að taka á móti nýjum póli­tískum aug­lýs­ingum í birt­ingu síð­ustu vik­una fyrir kosn­ingar, frá 27. októ­ber og til kjör­dags­ins 3. nóv­em­ber. Zuckerberg segir í færslu sinni um málið að til­gang­ur­inn með þessu sé að tryggja að hægt verði að sann­reyna það sem fram kemur í aug­lýs­ing­unum fyrir kjör­dag, en ef aug­lýs­ingar yrðu birtar á Facebook með skemmri fyr­ir­vara yrði það mögu­lega erfitt.

Einnig ætlar mið­ill­inn að fylgj­ast vel með til­raunum til þess að letja kjós­endur til þátt­töku og vinna með yfir­völdum til þess að fjar­lægja hverskyns mis­vísandi upp­lýs­ingar um kosn­ingar sem settar verða fram. Þá verða settar hömlur á hversu mörgum ein­stak­lingar geta áfram­sent ein­staka hlekki í gegnum Messen­ger. Hvern hlekk verður bara hægt að senda til eins ein­stak­lings í einu, í stað þess að hægt sé að deila hlekk með öllum vinum sínum.

Segir Zuckerberg að þetta hafi áður verið gert á for­rit­inu WhatsApp á „við­kvæmum tíma­skeiðum“ og þetta hafi reynst vel í mörgum löndum til þess að koma í veg fyrir að lyga­sögur og fals­fréttir fari á flug.

Heims­far­ald­ur­inn setur líka mark sitt á aðgerðir Facebook: „Við erum að setja upp reglur gegn því að ógnir tengdar COVID-19 verði not­aðar til þess að letja fólk til kosn­inga­þát­töku. Við munum fjar­lægja færslur með full­yrð­ingum um að fólk muni fá COVID-19 ef það fer að kjósa. Við munum hengja skila­boð frá yfir­völdum um COVID-19 við færslur þar sem veiran er notuð til að letja fólk til þátt­töku í kosn­ingu og við munum ekki leyfa slík skila­boð í aug­lýs­ingum,“ skrifar Zuckerberg.

Miðill hans hefur þegar sett upp sér­stakan kosn­inga­upp­lýs­inga­vef þar sem kjós­endur geta leitað sér upp­lýs­ingar um hvernig eigi að skrá sig til að kjósa og hvernig eigi að bera sig að við það að póst­leggja atkvæði sín, svo eitt­hvað sé nefnt.

Samstarf við Reuters og kosningayfirvöld um birtingu niðurstaðna

Ljóst er að í ljósi útbreiðslu COVID-19 í Banda­ríkj­unum munu mjög margir kjós­endur ákveða að bréf­leggja atkvæði sín. Viðbúið er að þetta leiði til tafa á því að nið­ur­stöð­urnar verði kynntar og við því búast margir sér­fræð­ingar. Zuckerberg segir að fólk verði að vera und­ir­búið að nið­ur­stöður kosn­ing­anna verði vafa­mál, þar til atkvæða­taln­ingu lýkur, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur gefið í skyn að mögu­lega muni hann ekki sætta sig við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna ef hann tapar, þar sem póst­at­kvæði auki hættu á að brögð séu í tafli.

Ítrekað hefur komið fram að það er ekk­ert sem bendir til þess að þetta sé rétt hjá for­set­anum, en Facebook ætlar að búa sig undir það að full­yrð­ingar um hver sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna sé muni ganga fram og til baka allt þar til loka­tölur liggja fyrir.

Zuckerberg segir að Facebook muni miðla upp­lýs­ingum til not­enda til þess að „búa fólk undir mögu­leik­ann á því að það gæti tekið nokkurn tíma að fá opin­berar nið­ur­stöður. Þessar upp­lýs­ingar munu hjálpa fólki að skilja að það er ekk­ert ólög­mætt við það að nið­ur­stöður verði ekki komnar á kosn­inga­nótt.“

Í þessu skyni ætlar Facebook í sam­starf við frétta­veit­una Reuters og kosn­inga­yf­ir­völd í Banda­rík­unum um upp­lýs­ingu­miðlun um nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Facebook ætlar að eiga frum­kvæði að því að láta fólk vita þegar nið­ur­stöð­urnar liggja fyrir.

„Ef ein­hver fram­bjóð­andi eða fylk­ing reynir að lýsa yfir sigri áður en nið­ur­stöð­urnar liggja fyrir, munum við merkja færslur þeirra með upp­lýs­ingum um að opin­berar loka­nið­ur­stöður liggi ekki enn fyrir og vísa fólki á þær nið­ur­stöður sem liggja fyrir,“ skrifar Zuckerberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár